Síða 1 af 2
Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 21:25
af g0tlife
Ég keipti tölvu í gær frá kísildal en fór fyrst í tölvuvirkni. Þegar ég kom þangað og var að púsla henni saman og var að spyrja strákana útí hlutina þá gátu þeir aldrei sagt mér afhverju sumir hlutir væru betri en aðrir. Eina sem ég fékk var þetta er mjög góður örgjörvi og þetta er mjög gott vinnsluminni. Svo ég tók nótuna og fór beint í kísildal, þar taka þeir vel á móti mér og ég segi við þá ''getiði toppað þetta tilboð'' og rétti þeim nótuna frá tölvuvirkni.
Þar fékk ég í eins miklum smáatriðum um alla hluti sem ég spurði þá um. Viti menn þeir náðu að gera sömu tölvu með kraftmeiri aflgjafa á 15 þúsund kall ódýrari.
Ég hef nú alltaf verslað við tölvuvirkni en þeir hafa verið leiðinlegir og klúðra hlutum.
Seinasta vél sem ég keipti hjá þeim þá gleymdu þeir að láta 1 harðadisk í og létu mig fá vitlaust skjákort !
Kísildalur átti samt ekki kassann sem ég vildi og ég spurði þá hvort ég ætti að fara í tölvuvirkni og kaupa hann og koma svo aftur þá sögðu þeir mér bara ''neinei ég skal bara fara og ná í hann fyrir þig'' sagði eigandinn og fór svo í einhverja heildsölu og náði í kassann fyrir mig.
Viti menn ég keipti vélina hjá kísildal og gef þessum strákum 10 af 10 mögulegum
Svona er vélin.
Örgjörvi: i7 920 Yorkfield 2.66Ghz 8mb L2 skyndiminni fjórkjarna
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1075Móðuborð: ASRock X58 Extreme ATX Intel LGA1366
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1122Minni: 3x2GB DDR3-1600
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1079Harðir Diskar: 2x500 GB Seagate Barracuda
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1209Skjákort: Force3D Radeon HD5870 1 GB
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1238Aflgjafi: Aerocool E78 730W
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1241Stýrikerfi: Microsoft Windows 7
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1213Kassi: CoolerMaster HAF 922 ATX turnkassi
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... CM_HAF_922
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 21:34
af mercury
til hamingju með þetta gamli
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 21:42
af Gúrú
Vil ekkert vera að vitna í einhverja gullmola en...
"Ég versla ekki við Tölvuvirkni."
Og já þjónustan hjá Kísildal obv. fáránlega góð, sér það bara á því að þeir eyða mjög litlu í auglýsingar(eru einhverjar auglýsingar einhversstaðar?)og nota word of mouth.. sbr. veitingastaðurinn Rikki Chan .
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 21:45
af Einarr
Hvað borgaðiru fyrir þetta?
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 21:48
af binnip
kisildals menn eru snillingar.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 21:58
af isr
Topp náungar,versla nánast allt hjá kísildal.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 22:24
af Frost
Bara við það að lesa þetta sér maður hvað þeir eru að gera sitt besta í þessum bransa. Ég ætla að byrja að versla mest allt hjá þeim. Hef reyndar mjög góða reynslu af tölvutækni líka en alltaf gott að prófa eitthvað nýtt.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 23:03
af chaplin
Held ad kisildalur se ein af theim fau budum sem eg hef ekki sed fa slaema umfjollun, enda snillingar sem vinna tharna.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 23:05
af Lexxinn
Ef mínir útreikningar eru réttir
haha þá ætti hann að hafa borgað um það bil eða akkurat 239.860isk
Einarr skrifaði:Hvað borgaðiru fyrir þetta?
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 23:20
af Some0ne
Gúrú skrifaði:Vil ekkert vera að vitna í einhverja gullmola en...
"Ég versla ekki við Tölvuvirkni."
Og já þjónustan hjá Kísildal obv. fáránlega góð, sér það bara á því að þeir eyða mjög litlu í auglýsingar(eru einhverjar auglýsingar einhversstaðar?)og nota word of mouth.. sbr. veitingastaðurinn Rikki Chan .
Fyndið að þú skulir minnast á Rikki Chan, þar sem það er total crap.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 23:24
af g0tlife
keipti aukaviftur og geisladrif og svona þetta var slétt 280 þús sem ég borgaði fyrir þetta
Hjá tölvuvirkni kostaði þetta 280 þús með 650 W aflgjafa og með 5850 kortinu
Hjá kísildal 730 W aflgjafi og 5870 kortið á 280 þús
Ég sagði þeim í tölvuvirkni þegar ég var þar að ég ætlaði að fara í kísildal og athuga þar. Þá kom einn maður sem vinnur bakvið og sagði að hann skilur ekki fólk sem er alltaf að leitast eftir aukakrónum!
Ég kalla þetta ekkert aukakrónur sem ég græddi þarna
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 23:57
af oskarom
Ef allir samlandar okkar stunduðu þetta eins og þú, þá værum við í mun skemmtilegra neytenda umhverfi í dag
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Þri 29. Des 2009 23:59
af Dazy crazy
Drengirnir í kísildal eru bara bestir, as simple as that, bendi öllum sem ég þekki á það.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Mið 30. Des 2009 15:10
af Gúrú
Some0ne skrifaði:Gúrú skrifaði:Fyndið að þú skulir minnast á Rikki Chan, þar sem það er total crap.
Ég hef aldrei getað borðað þennan mat en þjónustan þarna er fáránlega góð.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Mið 30. Des 2009 21:50
af Narco
Haha, er ánægður með bæði rikka og kísildal, keypti hjá þeim skjá um daginn og honum var bara skutlað í vél fyrir mig eins og skot.
Þetta er bara eins og það á að vera, og þótt þeir auglýsi ekki einhverja pixlaábyrgð þá taka þeir á svoleiðis eins og heiðursmenn komi það upp, hef samt ekki lent í neinu slíku sem betur fer
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fim 31. Des 2009 14:40
af DoofuZ
Narco skrifaði:Haha, er ánægður með bæði rikka og kísildal, keypti hjá þeim skjá um daginn
og honum var bara skutlað í vél fyrir mig eins og skot.
Þetta er bara eins og það á að vera, og þótt þeir auglýsi ekki einhverja pixlaábyrgð þá taka þeir á svoleiðis eins og heiðursmenn komi það upp, hef samt ekki lent í neinu slíku sem betur fer
Ha? Var skjánum þínum bara skutlað í vél?
En já, ég er alveg hjartanlega sammála öllum hér
Hef að vísu ekki verslað mikið við þá í dalnum en öll þau viðskipti voru skemmtileg og góð
Keypti að vísu öll nýju innyflin í tölvuna mína um daginn í Tölvuvirkni, en bara vegna þess að móðurborðið sem ég vildi var ódýrast hjá þeim og ekki til hvar sem er ásamt því að ég sparaði aðeins á heildinni. Reyndar sparaði ég aðeins meira en ef ég hefði keypt allt aðeins fyrr en ég gerði þar sem örgjörvinn lækkaði um heilar 9.000 krónur bara daginn áður eða eitthvað svoleiðis
Og svo er allur pakkinn eitthvað dýrari í dag, svo ég hitti greinilega vel á
Annars hef ég svosem litla reynslu af þeim svo ég get svosem ekki sagt mikið.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fim 31. Des 2009 15:57
af Drone
Hlýtur að vera að tala um fartölvuskjá
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fim 31. Des 2009 16:03
af bixer
eða að senda skjáinn í flugvél r sum
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fös 01. Jan 2010 21:59
af Blackened
Það stendur í profile hjá honum að hann búi á Egilsstöðum.. svo að hann var VÆNTANLEGA að tala um flugvél strákar
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fim 05. Ágú 2010 19:20
af Skuggi
Ég hef verslað við kísildalinn í nokkur ár og ég hef aldrei fengið jafn góða þjónustu!
Það virðist ekki skipta neinu máli að hverju maður spyr, þeir svara öllum spurningum heiðarlega og almennilega.
Þeir eru með allt á hreinu annað en flestar tölvuverslanir og eru með frábær verð.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fim 05. Ágú 2010 19:37
af Lexxinn
Skuggi skrifaði:Ég hef verslað við kísildalinn í nokkur ár og ég hef aldrei fengið jafn góða þjónustu!
Það virðist ekki skipta neinu máli að hverju maður spyr, þeir svara öllum spurningum heiðarlega og almennilega.
Þeir eru með allt á hreinu annað en flestar tölvuverslanir og eru með frábær verð.
Bara svona til að segja mun.
Fór í @tt um daginn og var að spurja um snúrur af því að ég er með tölva <-> sjónvarp <-> heimabíó. Ég fór í Start við hliðiná þeim og fékk þar mjög góðar upplýsingar um hvernig þetta væri hægt að leysa, svo fer ég yfir í @tt og vonast eftir góðri þjónustu og kannski betra verði en viti menn maðurinn sem afgreiddi mig eða reyndi að hjálpa mer með þetta vissi ekki sjálfur alveg nógu vel hvað hann var að segja. Talaði um að ég þyrfti að fá mér tölvuskjá í staðinn fyrir sjónvarpið nota hann og flækja þetta peningarlega séð :S
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fim 05. Ágú 2010 20:29
af intenz
Ég hef aldrei verslað hjá Kísildalsmönnum en vinur minn verslaði sína tölvu þar og sagðist aldrei framar ætla að versla annarstaðar.
Ég hef alltaf fengið dúndur þjónustu hjá Tölvuvirkni og keypti mína vél einmitt þar. Ég er mjög sáttur með þá.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fim 05. Ágú 2010 22:53
af k0fuz
Hef held ég bara verslað eina mús hjá þeim sem var btw ms 3.0 sem var mjög eftirsótt í langan tíma og kom svo loks í verslun kísildals og maður auðvitað stökk á hana, ég man ekki betur nema ég hafi fengið góðar móttökur þegar ég kom og keypti hana. Svo er einfaldlega svo mikilvægt að hafa áhuga á tölvum og þróun á því sviði þegar maður er að vinna svona vinnnu, sem mér heyrist að kísildalsmenn hafi.
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fim 05. Ágú 2010 23:32
af dabb
KEYPTI
Re: Kísildalur yfir Tölvuvirkni
Sent: Fös 06. Ágú 2010 01:29
af Son of a silly person
Ég hef verslað hjá þeim 3 tölvur. Ein þeirra í smíðum þessa dagana. Alltaf topp þjónusta og mjög fróðleg ráðgjöf. Mæli sterklega með þeim.