Síða 1 af 4

Ég er ósáttur við Tölvuvirkni

Sent: Fim 26. Nóv 2009 19:28
af rottuhydingur
heyriði ælla að byðjast afökunar á þessu öllu sem sagan sem ég skrifaði var mjög lika því sem gerðist , og þegar maður er pirraður þá kemur þetta svona útur manni , afsakið bara , :)

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 19:31
af blitz
Nennir þú að læra íslensku og skrifa þetta aftur?

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 19:33
af rottuhydingur
er bara svo pirraður að þetta kom eins og ég hafi skitið þessu , skal laga þetta þegar ég róast !

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 19:44
af SteiniP
Að bjóða 37þ í tölvuna er ekkert nema móðgun við þig, þetta er alveg lágmark 70k virði.
En ef hann sagði að þú fengir fullt verð, sem mér finnst samt frekar skrýtið, hljómar eins og hann hafi ekkert búist við að þú kæmir aftur með hana þá er þetta mjög lame.


Ég verslaði samt mikið við tölvuvirkni fyrir nokkrum árum og fannst þeir alltaf mjög fínir, hef samt aldrei látið reyna neitt á þjónustuna hjá þeim.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 19:48
af Legolas
Heir heir Sammála, ég hef sjaldan verslað við þá en í hvert einasta skipti hef ég lent í einhverju djöfuls bulli og kjaftæði ég sver það :evil:

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 19:51
af Demon
Væri gaman að heyra söguna frá hinum aðilanum. Aldrei lent í neinu veseni hjá Tölvuvirkni, verslað hjá þeim í hvað 4 ár núna eða svo.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 19:52
af hsm
Já þetta hljómar ekki vel. En það væri gaman að heyra í Tölvuvirknismönnum um þetta mál.
Hef reyndar mjög góða reynslu af Tölvuvirkni.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 19:58
af FriðrikH
þetta ætti líka að kenna manni að fa alltaf svona díla skriflega.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 20:00
af Nariur
ég á bágt með að trúa því að hann hafi sagt að þú fengir fullt verð uppí eftir mánaða notkunn

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 20:03
af MrT
fridrih skrifaði:þetta ætti líka að kenna manni að fa alltaf svona díla skriflega.


Munnlegir samningar eru jafngildir skriflegum (á Íslandi allavega).. En já, ef annar aðilinn ákveður að ljúga svo þá er hinn í djúpum nema hann hafi physical evidence.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 20:26
af intenz
Ég tek þessu með miklum fyrirvara, þar sem ég hef aldrei upplifað neitt nema almenni- og liðlegheit hjá Tölvuvirkni. Pabbi hefur verslað margoft hjá þeim og aldrei lent í veseni og alltaf fengið góða þjónustu. Svo verslaði ég hjá þeim um daginn og ekkert vesen og bara toppþjónusta! Ég ráðlegg þér að tala við eigandann, Björgvin, ef þú ert ósáttur.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 20:27
af Klemmi
Úffff, ég verð nú að viðurkenna að ég er ALVEG viss um að það hefur verið einhver misskilningur hjá ykkur þarna. Það myndi ekki vera mjög gáfulegt að bjóða sama uppítökuverð eftir mánaða notkun, þá kæmirðu bara með hana á 5 mánaða fresti og fengir nýja, betri tölvu án þess nokkurn tíman að borga neitt aukalega.

Þetta væri bara of gott til að vera satt og ég myndi taka það með miklum fyrirvara :)

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 20:30
af Lallistori
Legolas skrifaði:Heir heir Sammála, ég hef sjaldan verslað við þá en í hvert einasta skipti hef ég lent í einhverju djöfuls bulli og kjaftæði ég sver það :evil:


Sama hér.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 20:39
af Pandemic
Áður en þú ferð að kalla einhverja hálvita hérna þá verðuru aðeins að hugsa málið til enda.
Það er enginn verslun hvað þá seljandi að fara að láta þig fá sama verð í notaða vél eftir 3-5 mánuði og þú keyptir hana á. Tel það bara vera frekar fyndið að þú teljir að svo sé.
Ef þetta er dílinn sem Tölvuvirkni er að bjóða þá myndi ég glaður versla tölvur þarna og skipta út á nokkra mánaða fresti. :lol:

Ég hef alltaf fengið alveg einstaklega góða þjónustu hjá t.d Björgvin þegar ég verslað þarna í denn, mjög liðlegur og fín.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 21:14
af rottuhydingur
já en ég meina , 37þúsund kr , okei þeir segja að þeir myndu taka hana á samaverði og ég keypti hana en 37 er allt of litið

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 21:17
af chaplin
rottuhydingur skrifaði:já en ég meina , 37þúsund kr , okei þeir segja að þeir myndu taka hana á samaverði og ég keypti hana en 37 er allt of litið

Búinn að lesa þennan póst nokkrum sinnum og þú hlítur að vera ruglast.. það meikar ekki sens að kaupa eitthvað 100þkr og geta skilað því hálfu ári seinna fyrir sama pening, verslunin myndi fá öll viðskipti íslands en samt sem áður vera í 0 kr hagnaði. :?

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 21:19
af Glazier
rottuhydingur skrifaði:já en ég meina , 37þúsund kr , okei þeir segja að þeir myndu taka hana á samaverði og ég keypti hana en 37 er allt of litið

Þetta er svo mikið út í hött, afhverju í andskotanum ættu þeir að taka tölvuna upp í nýja tölvu á nákvæmlega sama verði og þú keyptir hana á? Það meikar bara engann sens.

Sjálfur hef ég reyndar slæma reynslu af þeim, þeir voru virkilega dónalegir síðast þegar ég var hringdi til þeirra (hef aldrei hringt þangað síðan) Var að hjálpa afa að leita sér að 24" skjá og hann hafði fundið einn hellvíti fínann hjá þeim en sökum þess hversu slæma þjónustu við fengum fórum við í kísildal og þar keypti hann sér skjá og vinnsluminni í fartölvuna.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 21:25
af intenz
daanielin skrifaði:
rottuhydingur skrifaði:já en ég meina , 37þúsund kr , okei þeir segja að þeir myndu taka hana á samaverði og ég keypti hana en 37 er allt of litið

Búinn að lesa þennan póst nokkrum sinnum og þú hlítur að vera ruglast.. það meikar ekki sens að kaupa eitthvað 100þkr og geta skilað því hálfu ári seinna fyrir sama pening, verslunin myndi fá öll viðskipti íslands en samt sem áður vera í 0 kr hagnaði. :?

Meira að segja tapi. ;)

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 21:26
af chaplin
intenz skrifaði:
daanielin skrifaði:
rottuhydingur skrifaði:já en ég meina , 37þúsund kr , okei þeir segja að þeir myndu taka hana á samaverði og ég keypti hana en 37 er allt of litið

Búinn að lesa þennan póst nokkrum sinnum og þú hlítur að vera ruglast.. það meikar ekki sens að kaupa eitthvað 100þkr og geta skilað því hálfu ári seinna fyrir sama pening, verslunin myndi fá öll viðskipti íslands en samt sem áður vera í 0 kr hagnaði. :?

Meira að segja tapi. ;)

Haha já nákvæmlega..

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 22:02
af Narco
Strákar, það er alveg greinilegt að hann hefur sagt (eða meint) að innan þessa tima sem hann tiltók gæti hann fengið fullt "uppítökuverð".
það hefur örugglega bara verið misskilningur á báða vegu, ekki að ég sé að bera í bætifláka fyrir þessa verslun sem ég hef aldrei átt viðskipti við. Sjálfur hef ég bara misskilið eða bara verið misskilinn i verslunum.
Finnst samt að þeir hefðu getað höndlað þetta betur.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 22:07
af palmi6400
ég hef lent í svipuðu og ég ætla alldrei að versla þarna aftur.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 22:58
af Victordp
Líka við mig, ok keypti Asus tölvu þar í Apríl, og fæ hana með Vista set svo upp Win7 og var með það í langan tíma, en á meðan ég var með það þá eyðinlagðist hleðslutækið og þurfti að skipta op pabbi borgaði þá 10.000 eða eiikva, svo er það komið að því að það þarf að straua hana og þá kostar það annað 10k, og svo kem ég með hana aftur og þá er það þannig að tölvan frís eftir 1 min eða eitthvað, og þá finna þeir ekkert að henni nema að það að hún er full af ryki :S, sem er bullshiiiit ! og enn og aftur borgar pabbi 10k, og svo þarf ég að fara með hana aftur, og fæ hana aftur og þá þarf að straua hana því ég instilaði DRIVER DISKNUM sem fylgdi með, og þá þarf pabbi að borga aftur 10k, sem gera 159.000+10.000+10.000+10.000+10.000 er það eiikvað eðlilegt ?

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 23:03
af Glazier
Victordp skrifaði:**Fullt af texta**
og þá þarf pabbi að borga aftur 10k, sem gera 159.000+10.000+10.000+10.000+10.000 er það eiikvað eðlilegt ?

Nei !! Það er ekki eðlilegt.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 23:04
af SteiniP
10k fyrir hleðslutæki og 10k fyrir rykhreinsun er HEAVY mikið.

Re: Tolvuvirkni eru fávitar ,

Sent: Fim 26. Nóv 2009 23:10
af KermitTheFrog
Victordp skrifaði:Líka við mig, ok keypti Asus tölvu þar í Apríl, og fæ hana með Vista set svo upp Win7 og var með það í langan tíma, en á meðan ég var með það þá eyðinlagðist hleðslutækið og þurfti að skipta op pabbi borgaði þá 10.000 eða eiikva, svo er það komið að því að það þarf að straua hana og þá kostar það annað 10k, og svo kem ég með hana aftur og þá er það þannig að tölvan frís eftir 1 min eða eitthvað, og þá finna þeir ekkert að henni nema að það að hún er full af ryki :S, sem er bullshiiiit ! og enn og aftur borgar pabbi 10k, og svo þarf ég að fara með hana aftur, og fæ hana aftur og þá þarf að straua hana því ég instilaði DRIVER DISKNUM sem fylgdi með, og þá þarf pabbi að borga aftur 10k, sem gera 159.000+10.000+10.000+10.000+10.000 er það eiikvað eðlilegt ?


Mér finnst bara skrítið hvað þú hefur látið hafa þig að miklu fífli.
Og svo er annað að sjá bara aðra hliðina á málunum. Og ef þú hefðir haft eitthvað með þetta að segja þá hefðirðu annaðhvort fengið útskýringu eða leiðréttingu.

Annars hef ég ekkert nema gott af þeim að segja, þá sérstaklega Björgvini.
Félagi minn fór með bilaða tölvu þarna með móðurborði sem hann hafði keypt í Tæknibæ vikunni áður. Hann fékk því skipt út endurgjaldslaust.

En til að svara upprunalega póstinum, þá langar mig að taka undir með hinum. Það bara gengi ekki upp ef þeir ætluðu að vera að endurgreiða notaðar tölvur að fullu. Alveg ljóst að þarna er um misskilning að ræða.