Síða 1 af 1

TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 02:36
af hsm
Vildi bara deila þessu með ykkur svo að þið missið ekki af þessu tilboði :D
A.T.H merkt sem TILBOÐ MÁNAÐARINS á computer.is

Intel Core 2 Duo örgjörvi, E8400, 3 GHz, 1333 MHz, 6 MB, LGA775 OEM 32.000 kr Retail 34.900 kr

A.T.H ekki á tilboði hjá
Tölvutækni OEM 28.900 kr Retail 29.900 kr
Kísildalur OEM 28.500 kr Retail ekki til.
Tölvuvirkni OEM ekki til Retail 28.860 kr
Tölvutek OEM 28.900 kr Retail 29.900 kr
att.is OEM 27.950 kr Retail ekki til.
Start OEM 28.990 kr Retail ekki til.

Meira að segja Tölvulistinn var með hagstæðara ekki tilboð en computer.is OEM 28.990 kr Retail 29.990 kr
Og þá gafst ég upp að leita eftir dýrari örgjörva annars staðar.

Já ég hef í mörg ár verið með horn í síðu computer.is fyrir :arrow: frábæra og umfram allt sveigjanlega og góða þjónustu [-X
Þeir hafa reyndar ekki verið þekktir fyrir að vera eitthvað dýrari heldur en aðrir, svo að þetta kom mér skemmtilega á óvart :D
nú gat ég pirrað mig aðeins á þeim og eftir þessa skrift líður mér betur og get farið að sofa :8)

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 02:42
af sakaxxx
eg er svo mikill computer.is fanboy kominn tími á að breyta #-o

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 05:20
af chaplin
Ánægður að fólk sé að benda á svona hluti, gæti sparað fólki marka þúsundkalla á hálfgerðu "ripoffi" hjá örðum fyrirtækjum.

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 11:09
af hsm
Þetta er bara móðgun við viðskiptavini computer.is að bjóða uppá svona.
Svo er fáránlegt að það skuli vera um 3.000 kr munur á OEM og Retail þegar það er 1.000 kr hjá öðrum.
Svo eru fleiri hlutir á Tilboði Mánaðarins á jafn fáránlegu verði t.d. E8500

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 11:39
af Legolas
já já ég bý rétt hjá computer.is (2min gangur) og sparaði mjög oft á því í denn EN ANDSKOTINN !! !! !! ég verð bara brjálaður þegar ég sé svona djöfulls BULL Arrrggg......
þetta er svo sem ekkert "nýtt" hjá þeim heldur frekar venjulegt þessa dagana. Fyrir sirka ári síðan hefði ég orðið reiður ef einhver hefði sagt eitthvað ljótt um COMPUTER.IS en í dag piffff...... [-( [-( [-( [-(

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 11:44
af Legolas
Legolas skrifaði:já já ég bý rétt hjá computer.is (2min gangur) og sparaði mjög oft á því í denn EN ANDSKOTINN !! !! !! ég verð bara brjálaður þegar ég sé svona djöfulls BULL Arrrggg......
þetta er svo sem ekkert "nýtt" hjá þeim heldur frekar venjulegt þessa dagana. Fyrir sirka ári síðan hefði ég orðið reiður ef einhver hefði sagt eitthvað ljótt um COMPUTER.IS en í dag piffff...... [-( [-( [-( [-(



PS. EAT SHIT !!! eigendur computer.is en ekki starfsmenn

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 12:16
af IsakRJ
Computer.is aka Glæpabær :)
Verslaði fyrir 2-3 árum siðan tóma cd diska og nokkrir voru gallaðir og ég fer og skila.
Mætti ekki nema dóna og ruddaskap og ásökunum um að ég kunni ekki að halda á cd diskum rétt.

Eftir það hef ég verslað í Kísildal í Álfheimum.

:D :lol:

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 12:47
af hagur
Skil ekki þetta diss á Computer.is .... hef verslað við þá í mörg ár og alltaf fengið topp þjónustu. Ef hlutur er gallaður, þá bara skila ég honum og hef fengið nýjan. No questions asked.

Lang mesta úrvalið líka og í 99% prósent tilfella með besta verðið líka. Finnst það mjög gott, því það kostar jú eitthvað að halda úti svona stórum lager með svona miklu úrvali.

Computer.is =D>

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 12:55
af vesley
og hvað þá 5000 seríu kortin þeirra.

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 13:14
af CendenZ
Það er ekkert óeðlilegt að þeir séu með einhverja hluti dýrara en annarstaðar. Það er væri skrítið ef ein búð væri ávalt ódýrust, þá myndu bjánarnir hérna hrópa samráð! samráð!

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 13:57
af mind
CendenZ skrifaði:Það er ekkert óeðlilegt að þeir séu með einhverja hluti dýrara en annarstaðar. Það er væri skrítið ef ein búð væri ávalt ódýrust, þá myndu bjánarnir hérna hrópa samráð! samráð!

Samráð ef ein búið væri ávalt ódýrust ?
Eða varstu bara að gefa í skyn að sumir bjánar þekktu ekki muninn :)

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 15:32
af emmi
Þetta er nottla tilboð mánaðarins hjá þeim,hvergi sagt að þetta sé lægsta verðið á landinu.

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 17:59
af techseven
.....nú gat ég pirrað mig aðeins á þeim og eftir þessa skrift líður mér betur og get farið að sofa :8)


Ég veit hvernig þér líður, það er svo gott að hleypa smásálinni í sér út af og til :D

Ég var einu sinni gramur út í þá, þurfti að borga kr. 3000 fyrir að láta segja mér að skjákort væri ekki bilað, að því að þeir gátu ekki framkallað bilunina ](*,) Þegar svona er komið fram við mann þá líður manni eins og þeir hafi verið að gera manni greiða með því að leyfa manni að versla við sig, en ef þeir þurfa að lyfta litla putta (eins og að athuga hvort varan sé gölluð), þá skal maður borga fyrir það, maður er bara heppinn að þurfa ekki að borga fyrir að fá að tala við sölumann! (Það er ekki óþekkt fyrirbæri í ýmsum geirum...) Það skal ENGINN koma til mín og segja: "Það svo mikill kostnaður að setja skjákort í tölvu og láta hana ganga meðan við gerum eitthvað allt annað á meðan við bíðum og sjáum hvort kortið sé bilað eða ekki....." Því það var nákvæmlega það sem þeir gerðu. Það kemur fyrir að ég versla þarna í dag, en þeir eru alltaf síðasti kosturinn sem ég vel.

Ahhh! Hvað þetta var gott! Ég hleypti út smásálinni :D

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Lau 14. Nóv 2009 23:41
af hsm
CendenZ skrifaði:Það er ekkert óeðlilegt að þeir séu með einhverja hluti dýrara en annarstaðar. Það er væri skrítið ef ein búð væri ávalt ódýrust, þá myndu bjánarnir hérna hrópa samráð! samráð!

Ekkert óeðlilegt að hlutir séu dýrari sumstaðar, en þetta er tilboð mánaðarins og þegar þú ert að versla á tilboði þá ert þú vonandi að gera góð kaup.
En klárlega ekki í þessu tilfelli og það er það sem málið snýst um.

Re: TILBOÐ MÁNAÐARINS computer.is

Sent: Sun 15. Nóv 2009 00:57
af Ulli
ég pantaði ati 5870 frá þeim en svo kom í ljós að byrgirin var hættur með það eða some shit.(Discontiniued)
þá áhváðum við að þeir myndu bara versla það hjá TTek þegar það kæmi til þeirra.

það kostar 58k hjá TTek en þeir Rukkuðu mig um 63k.
ps svo er ekki til neit sem heitir afsláttur hjá þeim.
bara álagning.

en þeir meiga eiga það að tjónustan var góð.
fekk láns kort Nvidia 9600gt silent pipe meðan ég beið eftir hinu.
kostar um 26k að ég held.
ps það kort er þrusu gott