Síða 1 af 1
Uppsetning á vefsíðu, hvaða blogg-/vefsíðukerfi?
Sent: Þri 11. Ágú 2009 00:45
af DoofuZ
Ég er að setja saman síðu sem á að vera svipuð í uppsetningu og t.d. tech.is, s.s. einn hluti þar sem verða greinar eða eitthvað í svipuðum dúr, annar hluti spjallborð og svo kannski ein til tvær aðrar undirsíður (undir rót þ.e.a.s.) og ég er að spá hvaða blogg-/vefsíðukerfi sé sniðugast að nota í þetta
Hef verið að fikta svoldið með WordPress en er smá efins þar, einhver kannski með betri hugmynd en það? Langar reyndar svoldið að búa til kerfi sjálfur en það gæti tekið forever (sérstaklega þar sem ég er með fullkomnunaráráttu og yfirleitt aðeins of vandvirkur við forritun)
Að vísu skiptir spjallborðið ekki það miklu máli hvað varðar greinahlutan þar sem ég mun líklegast vísa bara í það innaní bloggsíðu dæminu svo greinahlutinn er eiginlega mikilvægastur. Þar þarf að vera hægt að gefa greinum einkun og að admin geti samþykkt eða hafnað birtingu greinar en annað skiptir ekki eins miklu máli.
Hugmyndir?
Re: Uppsetning á vefsíðu, hvaða blogg-/vefsíðukerfi?
Sent: Þri 11. Ágú 2009 16:22
af Pandemic
Wordpress er einfaldlega best í svona einfalda hluti.
Re: Uppsetning á vefsíðu, hvaða blogg-/vefsíðukerfi?
Sent: Þri 11. Ágú 2009 16:48
af dori
Sammála, Wordpress er einfaldlega lang algengasta og besta kerfið ef þú vilt einfalt blogg. Hvað varðar spjall hlutann þá get ég ekki mælt með neinu sérstöku (hef ekki sett neitt þannig upp lengi) en allar þessar síður (vaktin/tech/esports etc.) eru að nota svipuð kerfi. Finndu bara það sem þér finnst þægilegast af þeim sem þú notar og settu það upp (ég fíla vaktina).
Re: Uppsetning á vefsíðu, hvaða blogg-/vefsíðukerfi?
Sent: Þri 11. Ágú 2009 18:10
af DoofuZ
Já, spjall hlutinn er nú minnsta áhyggjuefnið
Held ég skoði bara WordPress aðeins betur, var bara að spá hvort það væri til eitthvað annað sem væri kannski sniðugara
Re: Uppsetning á vefsíðu, hvaða blogg-/vefsíðukerfi?
Sent: Þri 11. Ágú 2009 23:57
af viddi
Spurning hvort
PHP-Nuke sé ekki fínnt í svona lagað.
Re: Uppsetning á vefsíðu, hvaða blogg-/vefsíðukerfi?
Sent: Mið 12. Ágú 2009 00:19
af idle
drupal
endalaust af modules til fyrir það, og þetta er easy peasy í notkun, mun einfaldara en joomla t.d og þeir sem nota þetta eru mjög sáttir.
Re: Uppsetning á vefsíðu, hvaða blogg-/vefsíðukerfi?
Sent: Mið 12. Ágú 2009 00:28
af Pandemic
Ekki nota drupal, það er hræðilegt ef það þarf að uppfæra það, þeir geta bara ekki haldið sig við að nota sömu hlutina þegar ný öryggisuppfærsla kemur út. Ef þú uppfærir þá þurfa allir sem gera plug-in að fylgja hratt á eftir annars er síðan þín í ruslinu.
Re: Uppsetning á vefsíðu, hvaða blogg-/vefsíðukerfi?
Sent: Mið 12. Ágú 2009 00:46
af dori
idle skrifaði:drupal
endalaust af modules til fyrir það, og þetta er easy peasy í notkun, mun einfaldara en joomla t.d og þeir sem nota þetta eru mjög sáttir.
Neineinei, eins og Pandemic segir þá er drupal ekki að gera sig. Kerfið lofaði góðu fyrir einhverju síðan en það varð bara ekkert úr því. Það er satt að segja frekar týnt í lífinu.
Re: Uppsetning á vefsíðu, hvaða blogg-/vefsíðukerfi?
Sent: Mið 12. Ágú 2009 00:50
af Pandemic
Stay simple
Wordpress og PhPbb3