Síða 1 af 1

Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Sun 12. Júl 2009 13:35
af TwiiztedAcer
Ég var bara að velta því fyrir mér hvort einhver annar en ég hafi dreymt um tölvuleiki
Þessir tölvuleikir sem ég dreymdi um voru Diablo 2 og CSS

Ég dreymdi að ég átti úber gott stuff í Diablo
Svo var það Í CSS að ég var að campa bakvið einhvern kassa og síðan stökk ég útí sjó, man ekki alveg hvað mappið hét en veit hvernig það lítur út
Svona er þetta, maður dreymir ansi skrýtna drauma stundum hehe

:lol:

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Sun 12. Júl 2009 16:56
af GTi
ofur-nörd.JPG
ofur-nörd.JPG (6.21 KiB) Skoðað 1961 sinnum

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Sun 12. Júl 2009 17:00
af FummiGucker
GTi skrifaði:
ofur-nörd.JPG

hahahah good one : D

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Sun 12. Júl 2009 19:18
af himminn
Fable, síðustu nótt.

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Sun 12. Júl 2009 19:20
af svanurorn
Ég er sífellt að dreyma heimsendi núna, veit samt ekki hvort það sé úr tölvuleik.

Djöfull hlakka ég til þegar myndin 2012 kemur í bíó, eru þið búinn að sjá Trailer 2?

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Sun 12. Júl 2009 20:28
af Joi_gudni
3D Sex Villa 2 fyrri nótt..

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Sun 12. Júl 2009 20:47
af KermitTheFrog
Dreymdi einhverntímann að ég og félagar mínir reyndum að komast til tunglsins með því að grafa okkur uppúr lagernum í Hagkaup í Garðabæ. Þannig komumst við til sólarinnar (ekki spurja hvernig. Einhvernveginn komumst við þangað) og vinur minn ætlaði bara að fara í gegnum geiminn og yfir til tunglsins. Ég mótmælti þá og sagði að við myndum deyja. Hann mótmælir því og til að sanna mál mitt þá fer ég út í geiminn og viti menn, ég dey. Svo kemur upp svona "load last save game" og ég lifna við í einhverjum byssuleik.

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Mán 13. Júl 2009 02:53
af svanurorn
Mig vantar vinnu.

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Þri 14. Júl 2009 13:22
af TwiiztedAcer
KermitTheFrog skrifaði:Dreymdi einhverntímann að ég og félagar mínir reyndum að komast til tunglsins með því að grafa okkur uppúr lagernum í Hagkaup í Garðabæ. Þannig komumst við til sólarinnar (ekki spurja hvernig. Einhvernveginn komumst við þangað) og vinur minn ætlaði bara að fara í gegnum geiminn og yfir til tunglsins. Ég mótmælti þá og sagði að við myndum deyja. Hann mótmælir því og til að sanna mál mitt þá fer ég út í geiminn og viti menn, ég dey. Svo kemur upp svona "load last save game" og ég lifna við í einhverjum byssuleik.


lol


TTT

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Þri 14. Júl 2009 20:36
af svanurorn
Ég fann vinnu! :D

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Mið 15. Júl 2009 00:12
af TwiiztedAcer
svanurorn skrifaði:Ég fann vinnu! :D


nice one

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Mið 15. Júl 2009 02:27
af DoofuZ
Man þegar ég var nýbúinn að kynnast Nintendo og Super Mario World 3 þá dreymdi mig góðann draum um það :) Eftir mikla spilun í leiknum einn daginn þá dreymdi mig að ég væri að spila leikinn, man reyndar voða lítið eftir því en minnir að ég hafi bara verið fyrir framan sjónvarpið og sá bara leikinn í spilun fyrir framan mig allan drauminn :roll: Mig minnir líka að daginn fyrir drauminn þá hafi ég spilað svo mikið að ég varð hálfónýtur eftirá, fékk einhvern hausverk og svoleiðis, enda ekki vanur að spila tölvuleiki eins mikið og ég gerði þann dag. Held meira að segja að þann dag hafi ég fyrst almennilega byrjað að spila tölvuleik =D>

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Mið 15. Júl 2009 13:14
af Blackz
Mig dreymndi einu sinni að ég var gaur i wow og var að drepa einhverjar risa kóngulær í lvl 15 minnir mig og og var bara eitthvað fokk helvitis kongulær og eikkað var að stúta eim með sverði 'n'shit
daginn eftir komst ég svo að því að ég var víst að blóta uppúr svefni xD

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Mán 20. Júl 2009 18:19
af TechHead
Ya all need to go out more :lol:

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Mán 20. Júl 2009 20:09
af TwiiztedAcer
TechHead skrifaði:Ya all need to go out more :lol:


Áááts buuurn, ekkert flame á topicinum mínum takk
*reported*

djuok

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Mán 20. Júl 2009 20:21
af coldcut
Manni hefur nú einu sinni eða tvisvar dreymt CounterStrike eftir strembin lön! :)

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Mán 20. Júl 2009 23:47
af TwiiztedAcer
coldcut skrifaði:Manni hefur nú einu sinni eða tvisvar dreymt CounterStrike eftir strembin lön! :)


næz1, hvað gerðist í draumnum? :P

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Þri 21. Júl 2009 00:49
af Allinn
Ég hef bara aldrei dreymt um tölvuleiki.

Re: Hafið þið dreymt um tölvuleiki?

Sent: Þri 21. Júl 2009 01:17
af TwiiztedAcer
Allinn skrifaði:Ég hef bara aldrei dreymt um tölvuleiki.


You aint cool like us m8