Síða 1 af 1

Samkeppnisaðili

Sent: Mið 17. Jún 2009 13:48
af coldcut
Já það er kominn annar samkeppnisaðili á klakann og er það http://www.tolvudoktor.is

Efa nú að spjallið verði almennilegt en það er gaman að sjá greinarnar sem er verið að setja þarna inn :D

tek fram að ég tengist ekki vefnum á nokkurn hátt!

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Mið 17. Jún 2009 18:36
af dori
Fyrir mitt leyti verð ég að segja að ég kann mjög illa við vefi sem eru með jafn mikla hreyfingu og þessi þarna. Á forsíðunni er ekkert kyrrt.

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Mið 17. Jún 2009 21:34
af GuðjónR
Held þetta sé nú ekki samkeppni við vaktina, gruna að þetta sé frekar samkeppni við tekk.is
Alltaf gaman þegar það bætast við nýjir nördavefir til að skoða, verð samt að vera sammála dóra að þetta er forljót síða og ég efast um að hún nái sér eitthvað frekar á flug en teck.is

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Mið 17. Jún 2009 21:36
af info
Finnst þetta all eitthvað svo klesst saman og renna í eitt..

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Mið 17. Jún 2009 22:28
af KermitTheFrog
Haha, kann ekki einusinni að stafa örgjörvi rétt.

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Mið 17. Jún 2009 22:30
af Gúrú
KermitTheFrog skrifaði:Haha, kann ekki einusinni að stafa örgjörvi rétt.


Ruglið í þér maður, orgjafi og örgjörfi eru allt góð og gild íslensk orð sko :D :lol:

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Fim 18. Jún 2009 00:27
af mind
Tek undir með flestum.

Frekar óþægileg síða. Virðist vera smíðuð til að vera flott frekar en stílhrein, góð og fleiri lýsingarorð.

Miðað við valið á fréttunum má samt álykta að allt sé vel meint með þessari síðu sem gerir hana góða viðbót við tölvuheiminn á íslandi.

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Fim 18. Jún 2009 08:29
af dori
Já, mjög gott framtak. Ég las margar fréttir þarna og þær virðast vel valdar og áhugaverðar.

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Þri 23. Jún 2009 12:57
af Garyx
Sælir,

Ég er ritstjóri tolvudoktor.is og er alltaf til í að fá gagnrýni á síðuna, hef reyndar verið að leitast eftir því en enginn getað sagt mér hvað gæti farið betur. Ekki gætuð þið sent mér hvað fer í taugarnar á ykkur með síðuna og hvernig þið teljið að það gæti farið betur. Endileg sendið mér línu á ritstjori(hja)tolvudoktor.is eða sendið mér skilaboð hérna á spjallborðinu.

Kveðja

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Fös 26. Jún 2009 15:05
af Demon
Gaman að því að enginn kommentar eftir þetta :)

Ég segji fyrir mitt leiti að þá er síðan ekki svo slæm. Fínar greinar amk.
En það eru nokkrir hlutir fyrir mér sem brjóta hönnunina á henni.

1. Eins og þið setjið fréttirnar upp þá koma 3 fréttir í einu row og svo eru 9 rows þar til maður þarf að fletta yfir á næstu síðu. Þetta virkar eiginlega of mikið á mig allavega, hefði frekar viljað að hver frétt fengi meira pláss, t.d. ein frétt væri í einu row og 9 fréttir á hverri síðu.

2. Spjallborðið virkar eins og það passi ekki alveg á síðuna, það er ekki sami appelsínuguli litur á spjallborðinu og í menu-inu uppi t.d. Virkar eitthvað off. Kannski bara annað letur or some, virkar bara meira eins og það sé ekki nógu vel integrated til að fitta með restinu af síðunni útlitslega.

3. Facebook innskráning takkarnir og að skrifa comment um greinar á facebook, svipað og í lið 2. Er ekki gert mikið til þess að láta þetta falla að útliti síðunnar og þetta er á ensku. Virkar svona hálfgert.

Flash-heavy-aðalmenu hjá ykkur. Veit ekki með það, er alveg flott en virkar eiginlega of mikið. Býst samt við því að þið viljið halda því eins og það er. En ég veit um marga sem finnst svona flash-heavy útlit bara pirrandi.

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Fös 26. Jún 2009 16:02
af coldcut
svo má ekki gleyma að orðið er ÖRGJÖRVI en ekki örgjafi!

...takk fyrir

EDIT: haha djöfullsins leiðréttingar kerfi hérna ;D
á að vera ÖRGJÖRVI en ekki ö-r-g-j-a-f-i :!:

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Fös 26. Jún 2009 16:14
af Some0ne
Ég verð að segja að mér finnst við margt við þessa síðu mjög flott, fýla einmitt svona flash síður þar sem að heitustu greinarnar rúlla með mynd.

Mætti vera skipulagt í flokka fréttirnar undir flaskubbnum, og bara fyrsta fréttin með mynd og mini-samantekt, fréttir fyrir neðan það bara textalína.

Svo er tölvudoktorslógóið náttúrulega nett ljótt =)

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Þri 31. Ágú 2010 22:36
af KermitTheFrog
Eitthvað hefur þetta dottið uppfyrir. Ekki komið ný grein síðan í janúar. Ég sakna þess soldið.

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Þri 31. Ágú 2010 22:58
af intenz
Já þetta var fín síða.

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Þri 31. Ágú 2010 23:24
af GuðjónR
Ég var reyndar búinn að gleyma þessari síðu, brjáluð vinna að halda svona síðu úti up-2-date.

Re: Samkeppnisaðili

Sent: Mið 01. Sep 2010 01:02
af coldcut
Já það er smá söknuður í þessari síðu þó hún hafi nú ekki lifað lengi...gaman að fá t.d. smá greinar um Linux kerfin og þessa nýjustu tækni og vísindi!