Síða 1 af 1

Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 14:50
af TwiiztedAcer
Er málið að kaupa sér tölvu strax eða bíða aðeins?
Hvenær mun þetta allt lækka í verði?

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 14:52
af GuðjónR
Það er aldrei besti tíminn að kaupa sér tölvu.

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 14:56
af TwiiztedAcer
GuðjónR skrifaði:Það er aldrei besti tíminn að kaupa sér tölvu.


Á ég að kaupa mér turn núna eða bíða?

helv kreppa

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 15:03
af tomas52
keyptu hana bara núna kreppan er ekkert að fara ef þú heldur það ef eikkað er þá á hún eftir að versna

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 15:43
af hagur
Bíða eftir hverju?

Að verð lækki? Að nýir hlutir komi á markað?

Þetta er eiginlega mutually exclusive. Verð eldri hluta lækkar þegar nýir hlutir koma á markað, en fæstir vilja eldri hluti, þannig að þeir fara að einblína á nýju, dýrari hlutina og fara þá jafnvel aftur að spá í að bíða eftir enn nýrri hlutum. Þetta er vítahringur.

Langar þig í nýja vél núna? Keyptu hana þá núna.

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 15:49
af TwiiztedAcer
hagur skrifaði:Bíða eftir hverju?

Að verð lækki? Að nýir hlutir komi á markað?

Þetta er eiginlega mutually exclusive. Verð eldri hluta lækkar þegar nýir hlutir koma á markað, en fæstir vilja eldri hluti, þannig að þeir fara að einblína á nýju, dýrari hlutina og fara þá jafnvel aftur að spá í að bíða eftir enn nýrri hlutum. Þetta er vítahringur.

Langar þig í nýja vél núna? Keyptu hana þá núna.


Er að spá í að kaupa mér eina tölvu ekki með hörðum diski né geisladrifi
Þessir eru hlutirnir sem ég ætla að fá:


Artic Cooling 120mm kassavifta
inn eða útblástur
1.250.-

Steelpad QcK músarm mini
250mm x 210mm
1.050.-

Sennheiser HD 201
létt og þægileg lokuð heyrnatól sem að ná utan um eyrun
3.450.-

Corsair XMS2 pöruð 2 stk. 1GB (=2GB) DDR2, 800MHz
240pin PC2-6400 CL4, minni með kæliplötu og lífstíðarábyrgð
6.450.-

EVGA GeForce 9600GT
512MB 1800MHz DDR3, 650MHz Core, 256-bit, 2xDVI, TV-Output, PCI-E 16X
18.750.-

AMD Athlon 64 X2 Dual Core 5200+ HT, 2,6GHz
Socket AM2, 65nm, 2x1MB cache, OEM
8.450.-

Coolermaster CK8-9JD2B-0C-GP
fyrir Socket 754 / 939 / AM2, 95mm vifta, 700-3600 RPM, 16-46 dBA
1.950.-

Chieftec Dragon3 Middle Tower svartur og silfraður
extra djúpur, LBX-02B-B-SL turnkassi, 400W
12.950.-

MSI K9N6PGM2-V - nForce MCP61
2xSATA2 Raid, Gb Lan, 1xPCI-E 16X, 2xDDRII 800, Geforce6 6100 skják.
9.450.-

Acer 22" viewable V223WD
TFT LCD, WideScreen, 1680x1050, 2500:1 ACM, 5ms, DVI (w/HDCP) tengi, svartur
33.950.-
Alls. 97.700.-




Á þetta eftir að lækka eitthvað?
Eða borgar það sig að bíða svona 5 vikur r sum

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 15:50
af GuðjónR
hagur skrifaði:Langar þig í nýja vél núna? Keyptu hana þá núna.

Nákvæmlega!

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 16:08
af Daz
Besti tíminn hlýtur að vera einhverskonar samtala af fjárhagsstöðu og tölvuþörf (S.s. því meiri pening sem maður og og því meira sem mann vantar tölvu, þeim mun betri tími til að kaupa tölvu). Ég t.d. er hálf blankur og nota mína tölvu ekki í krefjandi hluti nema svona klukkutíma á viku. Litlir peningar + lítil þörf = lítil nýtölvunauðsyn.

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 16:25
af hagur
TwiiztedAcer skrifaði:Á þetta eftir að lækka eitthvað?
Eða borgar það sig að bíða svona 5 vikur r sum


Það er ómögulegt að segja hvort þetta eigi eftir að lækka eitthvað. Fer svo mikið eftir krónunni okkar. Reyndar gæti þetta alveg lækkað ef það er eitthvað nýtt hardware að fara að koma út á næstu vikum.

Annars bara endurtek ég það sem ég sagði áðan, ef þú vilt kaupa vél núna í dag, þá bara skellir þú þér á hana í dag.

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Fös 20. Feb 2009 16:34
af dori
Það væri náttúrulega visst fail að kaupa eitthvað sem er "nýjast" og á verði skv. því þegar það dettur svo inn betri vélbúnaður í næstu viku og það sem þú varst að kaupa lækkar.
Held að það sé samt mjöööög ólíklegt svo að besta ráðið er það sem hefur komið fram hér oft. Kaupa ef þú vilt tölvu og átt pening.

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Lau 21. Feb 2009 14:42
af Gunnar
í guðana bænum hvað ertu buinn að gera marga þræði um þetta? hvernig væri að halda sig við einn þráð og kaupa tölvuna sem er buið að setja saman fyrir þig. buinn að sjá minnst 3 korka frá þér um að þú ætlir að kaupa þér tölvu og síðan kemuru með nýjan kort hálfum mánuði seinna. [-X

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Lau 21. Feb 2009 16:07
af TwiiztedAcer
Gunnar skrifaði:í guðana bænum hvað ertu buinn að gera marga þræði um þetta? hvernig væri að halda sig við einn þráð og kaupa tölvuna sem er buið að setja saman fyrir þig. buinn að sjá minnst 3 korka frá þér um að þú ætlir að kaupa þér tölvu og síðan kemuru með nýjan kort hálfum mánuði seinna. [-X


Það er svo erfitt að ákveða sig 8-[
Ætla að hætta að búa til fleiri korka

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Mán 09. Mar 2009 18:30
af maxbruno
Svarið er einfalt: ALDREI.

Hundskastu og kauptu þér gönguskó og reiðhjól. Þú þakkar mér eftir 20 ár :o

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Mán 09. Mar 2009 18:50
af TwiiztedAcer
maxbruno skrifaði:Svarið er einfalt: ALDREI.

Hundskastu og kauptu þér gönguskó og reiðhjól. Þú þakkar mér eftir 20 ár :o


Nei, það er enginn fræðilegur möguleiki að ég er að fara að kaupa mér gönguskó og reiðhjól...

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Mán 09. Mar 2009 20:29
af Glazier
Mundi ekki kaupa mér tölvu núna bíddu frekar þangað til svona ágúst, september á þessu ári og fáðu þér þá tölvu ;)
Ástæða.. Núna fer að styttast í sumarið og maður hefur ekki mikið við tölvu að gera í sumar fríinu og í lok sumars eru hlutirnir kannski búinir að lækka smá (kannski ekki) og þá eru væntanlega komnir eitthverjir betri hlutir á markað ;)

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Mán 09. Mar 2009 20:40
af Gúrú
Glazier skrifaði:maður hefur ekki mikið við tölvu að gera í sumar fríinu


:o

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Mán 09. Mar 2009 21:25
af TwiiztedAcer
Gúrú skrifaði:
Glazier skrifaði:maður hefur ekki mikið við tölvu að gera í sumar fríinu


:o


Nákvæmlega!
Gaurinn er alveg klikkaður! :shock:

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Mán 09. Mar 2009 23:22
af GGG
"kaldhæðni on"

Mæli með að bíða til 2016 þá kemur Intel N00Bion II með 1024Mb swapfly PDF-MB CompFlop3 minni, klárlega eitthvað til að bíða eftir!

ps. Ekki fara í bíó fyrr en 2033, en þá kemur Ferris Bueller 4.032 út í VampMax 11.1 DTZ á iGláp 3.01, massa gæði!

pps. Best er bara fyrir þig að loka augunum, flytja til Raufarhafnar og gera ekkert þangað til 2047, þá færðu nefnilega IonQuantum 11 TUX drive EPIC á LodPoD 43, á tilboði í BTELKOS, spez fermingartilboð á 3499 EURODOLLARA!

"kaldhæni off"

Það er alltaf/aldrei besti tíminn...

Re: Hvenær er besti tíminn að kaupa sér tölvu

Sent: Þri 10. Mar 2009 00:59
af Hnykill
GGG skrifaði:"kaldhæðni on"

Mæli með að bíða til 2016 þá kemur Intel N00Bion II með 1024Mb swapfly PDF-MB CompFlop3 minni, klárlega eitthvað til að bíða eftir!

ps. Ekki fara í bíó fyrr en 2033, en þá kemur Ferris Bueller 4.032 út í VampMax 11.1 DTZ á iGláp 3.01, massa gæði!

pps. Best er bara fyrir þig að loka augunum, flytja til Raufarhafnar og gera ekkert þangað til 2047, þá færðu nefnilega IonQuantum 11 TUX drive EPIC á LodPoD 43, á tilboði í BTELKOS, spez fermingartilboð á 3499 EURODOLLARA!

"kaldhæni off"

Það er alltaf/aldrei besti tíminn...

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
hehehe ég var kominn á aðra setningu þegar ég fattaði að þú værir að grínast!! svo dó ég úr hlátri =D>