Síða 1 af 2

Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fim 22. Jan 2009 21:45
af antono
Segið frá uppáhaldstölvubúðum ykkar og rökstyðjið ykkar mál! ekki bara nafnið

Min uppáhalds verð ég að setja tolvutaekni.is

mjög góð verð
Góð þjónusta
býður upp á marga möguleika
Góður persónuleiki í starfsmönnum :D

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fim 22. Jan 2009 21:48
af Allinn
Tölvutækni samálla.

Góð verð.
Þeir fá vöruna strax.
Og líka ég bý rétt hjá henni.

Tölvuvirkni er líka fín búð.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fim 22. Jan 2009 21:49
af bolti
Sammála síðustu 2 ræðumönnum. Hef notað þær óspart.

Tölvutek voru góðir en ég er ekki alveg jafn viss lengur.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fim 22. Jan 2009 21:49
af KermitTheFrog
Tölvuvirkni FTW. Hef sérstaklega góða reynslu af þeim, þá sérstaklega af þessum kappa. En þeir eru allir yndislegir

Hef ágæta reynslu af köppunum í @tt líka

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fim 22. Jan 2009 23:30
af vesley
bestu búðirnar að mínu mati er tölvutek og tölvutækni .. frábær þjónusta hjá þeim og verðin alltaf góð ;)

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fim 22. Jan 2009 23:38
af arnar7
þar sem maður er staddur á Akureyri nennir maður lítið að standa í sendingum þannig tölvulistinn er mín búð :oops: , fengið góða þjónustu þar
svo er það @tt, frábær þjónusta og þeir taka vel á hlutunum....

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fim 22. Jan 2009 23:49
af Opes
Computer.is og Kísildalur

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 00:20
af Sydney
Kísildalur og Tölvutækni

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 00:28
af emmibe
Tölvutek, ekki spurning.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 00:57
af Manager1
Sydney og emmibe - það var beðið um rökstuðning ?


Persónulega hef ég aldrei fengið slæma þjónustu hjá tölvuverslun, en ég hef svosem ekki verið stórtækur í kaupum á tölvubúnaði.

En af þeim sem ég hef verslað við hafa strákarnir í Kísildal verið langbestir, fór tvisvar með tölvuna mína í viðgerð þangað og í fyrra skiptið borgaði ég töluvert minna en ég átti von á og í seinna skiptið borgaði ég ekki neitt, þrátt fyrir að þeir hafi eytt töluvert miklum tíma í að finna út hvað var að og ég "geymdi" tölvuna mína hjá þeim í töluvert langan tíma. Fékk það svar að fyrst þeir löguðu hana ekki þá ætti ég ekki að borga neitt, sé ekki að önnur fyrirtæki sem rukka fleiri þúsund krónur á tímann hefðu gefið mér þetta svar.

Að auki hef ég keypt hjá þeim mús, lyklaborð og eitthvað meira smotterí og alltaf fengið toppafgreiðslu og hjálp við að velja það rétta fyrir mig.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 01:21
af Hyper_Pinjata
ég verð að segja...

@tt.is
Fínasta Þjónusta
Gott Verslunarviðmót í Gegn um síðuna hjá þeim (ef maður pantar eitthvað í gegn um vefinn þá fær maður upplýsingar um það hvort varan sé ekki til,hvenær hún verður send,hversu langt sé þartil varan kemur til þeirra osfv)
Góð Verð...og fínasti Opnunartími....

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 01:29
af Danni V8
@tt.is hefur reynst mér rosalega vel. Hef keypt flest mitt af þeim. Lenti í því í síðustu uppfærslu að bæði vinnsluminnið og móðurborðið sem ég keypti var gallað og þeir skiptu um það fyrir mig að kostnaðarlausu.

Svo finnst mér þeir hjá Tölvutækni mjög fínir líka, en það er reyndar langt síðan ég verslaði þar.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 02:43
af urban
Danni V8 skrifaði:@tt.is hefur reynst mér rosalega vel. Hef keypt flest mitt af þeim. Lenti í því í síðustu uppfærslu að bæði vinnsluminnið og móðurborðið sem ég keypti var gallað og þeir skiptu um það fyrir mig að kostnaðarlausu.

Svo finnst mér þeir hjá Tölvutækni mjög fínir líka, en það er reyndar langt síðan ég verslaði þar.



ok að mínu mati tel ég það ekki góða þjónustu að skipta út einhverju sem að er gallað, heldur tel ég það sjálfsagt.

úr því að einhverjir hérna nefna kísildal, þá bara get ég ekki nefnt þá þar sem að ég benti vinkonu minni á það að kaupa fartölvu hjá þeim sem að síðan einmitt bilaði (diskurinn fór í PIO mode) og það tók bara hreinlega alltof langan tíma og alltof mikið vesen að lagfæra það, (og ég gæti nefnt annað dæmi með þessa sömu tölvu en ákveð að sleppa því núna)

ég persónulega hef bestu reysluna af tölvutækni.

pantaði fyrsti 1x 20" skjá og fékk hann
pantaði síðan anna 20" skjá og sjóvarpsflakkara með 400 GB hdd, þeir sendu mér póst um það að 400 GB hdd væri ekki til hjá þeim, og ég fengi þess vegna 500 GB í staðin, mér að kostnaðarlausu.

eftir þetta þá var pöntuð fermingartölva handa litla bróður mínum með skjá, lyklaborði og öllum andskotanum...

lenntum í einhverjum vandræðum með hana og sendum hana í bæjin (ég er í eyjum nota bene) þeir lagfærðu það (gallað skjákort eða minni ef að ég man rétt) og þeir sendu hana til baka og greiddu póstburðargjald undir hana og höfðu sambandi við okkur til að borga það sem að við borguðum undir tölvuna til rvk.

þetta tel ég vera þjónustu.

enda kem ég hér eftir til með að versla við þá, þó svo að það komi til með að kosta mig einhverja þúsundkalla aukalega.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 07:30
af hsm
Algerlega sammála urban þarna. Þó að ég sé líka hrifin af Tölvuvirkni þá er Tölvutækni alltaf minn fyrsti valkostur.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 09:00
af KermitTheFrog
Vinur minn festi kaup á móðurborði um daginn og varð computer.is fyrir valinu þar sem Tölvuvirkni átti eintakið ekki til (Tölvuvirkni er okkar #1 choice). Móðurborðið reynist eitthvað gallað og computer.is neita að gera við þetta, segja að hann hafi skemmt það. Hann bjallar á Tölvuvirkni og þeir benda honum bara að koma með þetta til þeirra og þeir tjekka á þessu.
Hann rennur við hjá þeim og þeir hafa samband við hann nokkrum dögum seinna, búnir að fá nýtt og betra borð, honum algjörlega að kostnaðarlausu, og tölvan rönnar fínt núna.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 09:55
af hsm
KermitTheFrog skrifaði:Vinur minn festi kaup á móðurborði um daginn og varð computer.is fyrir valinu þar sem Tölvuvirkni átti eintakið ekki til (Tölvuvirkni er okkar #1 choice). Móðurborðið reynist eitthvað gallað og computer.is neita að gera við þetta, segja að hann hafi skemmt það. Hann bjallar á Tölvuvirkni og þeir benda honum bara að koma með þetta til þeirra og þeir tjekka á þessu.
Hann rennur við hjá þeim og þeir hafa samband við hann nokkrum dögum seinna, búnir að fá nýtt og betra borð, honum algjörlega að kostnaðarlausu, og tölvan rönnar fínt núna.

Það er eins og ég hef alltaf sagt að það eru eins og að sumar verslanir halda að viðskiptavinirnir séu einnota en aðrar vilja að maður komi aftur.
Að sjálfsögðu hagnast Tölvuvirkni og Tölvutækni á góðri þjónustu, en það sjá það bara ekki allir sem reka þessar verslanir, því miður fyrir þá.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 11:21
af coldcut
Frá mínum bæjardyrum séð þá er Tölvutækni frábær búð og versla ég allt mitt tölvudót þar. Starfsmennirnir alltaf til í að gera allt til að hjálpa og ég hef aldrei lent í neinu veseni hjá þeim.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 13:11
af hagur
Ég hef verslað við flest allar tölvuverslanir á höfuðborgarsvæðinu og hef aldrei lent í neinu veseni. Alltaf fengið góða þjónustu, sama um hvaða búð er að ræða.

Þannig að fyrir mig þá skiptir verðið helst máli og þar finnst mér computer.is iðulega hafa vinninginn. Ég hef líka verslað talsvert við þá og hef ekkert nema gott um þá að segja. Kísildal á ég reyndar eftir að versla við, vona að það verði fyrr en síðar :wink:

Spurning samt með Tölvulistann ... mér sýnist þeir vera að dragast verulega afturúr í verðum, þeir eru nánast alltaf töluvert dýrari en hinir. Ekki gott.

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 13:45
af zedro
KermitTheFrog skrifaði:Vinur minn festi kaup á móðurborði um daginn og varð computer.is fyrir valinu þar sem Tölvuvirkni átti eintakið ekki til (Tölvuvirkni er okkar #1 choice). Móðurborðið reynist eitthvað gallað og computer.is neita að gera við þetta, segja að hann hafi skemmt það. Hann bjallar á Tölvuvirkni og þeir benda honum bara að koma með þetta til þeirra og þeir tjekka á þessu.
Hann rennur við hjá þeim og þeir hafa samband við hann nokkrum dögum seinna, búnir að fá nýtt og betra borð, honum algjörlega að kostnaðarlausu, og tölvan rönnar fínt núna.

Þetta er eitt mesta bull sem ég hef lesið. Ertu að reyna að segja mér að hann skipti út ónýtu móðurborði frá Computer.is hjá Tölvuvirkni og þeir gerðu það ókeypis???
Ég get ss. tekið eitthvað bilað móðurborð og komið við í Tölvuvirkni og ég fæ nýtt og betra borð í staðin pro bono?

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 14:35
af Ezekiel
Tölvutækni er number one, góð þjónusta, oftast ódýrastir eða ódýrir, og klemmi er líka bara svo æðislegur

Tölvuvirkni kemur þar á eftir

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 14:40
af sakaxxx
computer.is vegna þess að þeir eru oftast með ódýrustu vörunar

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 15:12
af antono
sakaxxx skrifaði:computer.is vegna þess að þeir eru oftast með ódýrustu vörunar

How wrong can u BE?

Att og Tolvutækni LANG oftast og stundum tolvuvirkni svo kemur kannski computer.is

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 15:17
af Hyper_Pinjata
Chillaðu Antono...Computer eru kannski ekkert ódýrastir,en þeir eru hinsvegar ekki dýrastir heldur....Dæmi: Skoðaðu Dótið á Vaktinni (vaktin.is)

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 15:47
af KermitTheFrog
Zedro skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:Vinur minn festi kaup á móðurborði um daginn og varð computer.is fyrir valinu þar sem Tölvuvirkni átti eintakið ekki til (Tölvuvirkni er okkar #1 choice). Móðurborðið reynist eitthvað gallað og computer.is neita að gera við þetta, segja að hann hafi skemmt það. Hann bjallar á Tölvuvirkni og þeir benda honum bara að koma með þetta til þeirra og þeir tjekka á þessu.
Hann rennur við hjá þeim og þeir hafa samband við hann nokkrum dögum seinna, búnir að fá nýtt og betra borð, honum algjörlega að kostnaðarlausu, og tölvan rönnar fínt núna.

Þetta er eitt mesta bull sem ég hef lesið. Ertu að reyna að segja mér að hann skipti út ónýtu móðurborði frá Computer.is hjá Tölvuvirkni og þeir gerðu það ókeypis???
Ég get ss. tekið eitthvað bilað móðurborð og komið við í Tölvuvirkni og ég fæ nýtt og betra borð í staðin pro bono?


Ég er ekki að segja það, en móðurborðið var bilað, þeir hafa hugsanlega sent það út til Gigabyte og þetta verið í ábyrgð hjá þeim. Svo hafa þeir fengið nýtt borð og sett það í, en rukka ekki neinn viðgerðarkostnað eða neitt

Re: Uppáhalds tölvubúðinn þín!

Sent: Fös 23. Jan 2009 18:11
af antono
Hyper_Pinjata skrifaði:Chillaðu Antono...Computer eru kannski ekkert ódýrastir,en þeir eru hinsvegar ekki dýrastir heldur....Dæmi: Skoðaðu Dótið á Vaktinni (vaktin.is)

salla rólegur ;)