Síða 1 af 1

Skaupið

Sent: Fim 01. Jan 2009 18:26
af zzz179
Hvernig fannst mönnum skaupið ???

Að mínu mati var þetta versta skaupið frá upphafi meira að seigja skaupið (07) var skemtilegra en þetta !!1

Re: Skaupið

Sent: Fim 01. Jan 2009 18:31
af KermitTheFrog
Tjah, þetta átti alveg góð móment en yfir heildina litið þá var þetta bara svona lala

EDIT: Hefur alltaf verið svona 'studio audience' í skaupunum eða er það bara nýtt?? Fannst það verulega böggandi

Re: Skaupið

Sent: Fim 01. Jan 2009 18:39
af MariusThor
Held að þetta studio audience var í fyrsta skiptið og það eina fyndna í þessu skaupi var þegar Jón Gnarr var að mótmæla " Helvítis fokkin fokk "

Re: Skaupið

Sent: Fim 01. Jan 2009 18:41
af Sydney
MariusThor skrifaði:Held að þetta studio audience var í fyrsta skiptið og það eina fyndna í þessu skaupi var þegar Jón Gnarr var að mótmæla " Helvítis fokkin fokk "

Mér fannst líka Jón Gnarr að taka handahreyfingar Palla vera helvíti gott.

Re: Skaupið

Sent: Fim 01. Jan 2009 18:45
af KermitTheFrog
Mér fannst nú eigilega allt nema þetta stjórnmálakrapp gamanvert

Re: Skaupið

Sent: Fim 01. Jan 2009 18:45
af Blackened
Flest sem að Jón Gnarr gerir er snilld ;)

Re: Skaupið

Sent: Fim 01. Jan 2009 18:50
af KermitTheFrog
Blackened skrifaði:Flest sem að Jón Gnarr gerir er snilld ;)


Satt.. Hann er bara þannig karakter

Ég sjálfur hló að mér rassgatið þegar hann var að magna upp í sér reiðina =P~

Re: Skaupið

Sent: Fim 01. Jan 2009 19:02
af jonsig
Ég hélt á tímabili að þetta væri páll óskar , því ég var ekki með gleraugun hahaha

Re: Skaupið

Sent: Fim 01. Jan 2009 19:17
af depill
Ég var nú bara nokkuð ánægður með þetta, mér fannst þegar Ólafur F kemur að Tjarnarkvarteitnum eitt það fyndnasta sem ég hef séð, þetta geðveika look á Kjartani var bara aðeins of gott eftir að Ólafur fór að væla út af Spaugstofunni fyrr í ár....

Davíð atriði 1 var ömurlegt, og mér fannst Kjartan bara hreinlega ekki vera nógu feitur til að vera Davíð, Davíð er ekki svona grannur .... En þegar Davíð skaut ísbjörnin og sagði ætla kannski að segja Geir þetta í einrómi, þá hló ég.

Ennfremur var gott grín gert að Ragnhildi Steinunn, eða hvort að þetta var grín ? Þetta var alveg nákvæmlega eins og þátturinn :P

Sum atriði voru soldið vel teygð, en yfirleitt fannst mér þetta bara ágætt, teiknimyndaatriðin reyndar alveg verri en allt, kannski að þeir sem fýli Hugleik alveg svakalega fýli þetta líka. Ilmur fannst mér standa uppi sem besta leikkonan þarna, eins og oft áður, var klárlega lang best af þeim í Stelpunum.

Ekkert Skara skrípó quality en samt gott....

Re: Skaupið

Sent: Fös 02. Jan 2009 13:55
af hallihg
Þoli ekki Ilm, og ég þoldi ekki Stelpurnar.

Re: Skaupið

Sent: Fös 02. Jan 2009 14:21
af urban
Ekki fannst mér þetta nú neitt rosalega gott skaup.

en einsog við vorum sammála um hérna á heimilinu sem að horfðum, að það hefði oft verið verra.

mér fannst t.d. jón taka Pál Óskar alveg stórkostlega.
helvítis fokking fokk var ágætt svo sem en ekkert stórkostlegt.
Facebook atriðið var frábært
en mér fannst einna best þegar að kellingin kom að kallinum sínum uppí rúmi, og hann fór að tala um að vera ekki að leita af sökudólgum :)

helvítis hláturinn heðfi alveg mátt gleymast, sérstaklega þar sem að hann var oft á alveg fáránlegum tíma.
og mér fannst alveg vanta að það yrði gert grín að einum aðila þarna
en sá er einmitt ógreiddur"snarbrjálaður" gaukur í cat úlpu eða semsagt Sturla vörubílsstjóri.
einnig fannst mér ansi margir sketchar þarna vera alltof alltof langir.

Re: Skaupið

Sent: Fös 02. Jan 2009 14:22
af orrieinarsson
Mér fannst þetta besta í mörg ár, en Ilmur er snillingur haha.

Re: Skaupið

Sent: Þri 06. Jan 2009 23:07
af daniellos3
ég hló bara af helvítis fokking fokk atriðinu =), jon gnarr er nottlega bara goð í fyndni

Re: Skaupið

Sent: Þri 06. Jan 2009 23:18
af Allinn
Hló ekkert af skaupinu.

Re: Skaupið

Sent: Þri 06. Jan 2009 23:36
af Joi_gudni
Allinn skrifaði:Hló ekkert af skaupinu.

Re: Skaupið

Sent: Mið 07. Jan 2009 13:48
af coldcut
mér fannst skaupið algjör snilld...ég hló allann tímann.

besta atriðið var þegar Davíð og Jón Ásgeir voru að slást. Ég veit ekki hvort menn tóku eftir því en enskan sem þeir notuðu var frekar léleg. Eins og þegar þýðingin "Hættu Davíð, þú leggur mig í einelti!" kom þá sagði Jón í rauninni "Stop David, you are laying me in one chase!"
Snilld

Re: Skaupið

Sent: Mið 07. Jan 2009 13:52
af Allinn
Verð að vera ósamálla grínið af Íslensku pólutíkinni var EKKERT fyndinn. Sjálfur fannst mér þegar Jón Gnarr var að leika Pál Óskar í sambandi með BYR auglýsinginar.

Re: Skaupið

Sent: Mið 07. Jan 2009 14:40
af gRIMwORLD
Fjármálafréttirnar fannst mér vera lang besta atriðið by far í þessu skaupi.

"labbi Siggi labbi labbi"

Re: Skaupið

Sent: Mið 07. Jan 2009 15:08
af Allinn
grimworld skrifaði:"labbi Siggi labbi labbi"


Ha?

Re: Skaupið

Sent: Mið 07. Jan 2009 15:36
af Jth
Fannst þetta skaup skelfilegt

Re: Skaupið

Sent: Mið 07. Jan 2009 16:58
af Nariur
mér fannst það alls ekki gott, helvítis fokkíng fokk og Páll Óskar var það eina sem var nálægt því að vera fyndið.

þessar fjármálafréttir, labbi labbi sjónvarp strútur 5 % kvarðadrótin af jólasveinn var algert kjaftæði og alls ekki fyndið

Re: Skaupið

Sent: Mið 07. Jan 2009 17:21
af KermitTheFrog
Allinn skrifaði:
grimworld skrifaði:"labbi Siggi labbi labbi"


Ha?


Fréttatíminn :O

Re: Skaupið

Sent: Mið 07. Jan 2009 17:53
af Allinn
Já Það.

Re: Skaupið

Sent: Fim 08. Jan 2009 00:32
af beatmaster
Með betri skaupum sem að ég hef séð =D>