Síða 1 af 1

Styrking krónunnar

Sent: Fös 05. Des 2008 12:47
af Gerbill
Jæja, 15% styrking á krónunni á seinustu tveim dögum.

Ég var í þann mund að fara að kaupa mér turn en ætli tölvuvörur eigi ekki eftir að lækka örlítið ef að staðan helst svona? (þ.e. hún 15% sterkari en hún var fyrir 2 dögum).
Vísu þá er það alltaf svoleiðis að fyrirtæki eru fljót að hækka og lengi að lækka...en samt.
Ykkar skoðanir ?:)

Re: Styrking krónunnar

Sent: Fös 05. Des 2008 12:50
af emmi
Ég ætlaði að kaupa mér íhluti sjálfur en ég ætla pottþétt að bíða í nokkra daga eftir að verðið lækkar. Sumar búðir hafa nefnilega verið mjög fljótar að hækka öll verð þegar smá gengisbreytingar verða og ég geri þá kröfu um að þeir lækki jafn hratt og þeir hækkuðu.

Re: Styrking krónunnar

Sent: Fös 05. Des 2008 12:57
af gunnars04
Hvar eruð þið að panta að utan?

Borgið þið með Vísa?

Re: Styrking krónunnar

Sent: Fös 05. Des 2008 13:02
af Blackened
Þeir eru nú öruglega bara að kaupa af íslenskum tölvuverslunum.. hitt borgar sig sjaldnast ;)

En verslanir hér á landi þurfa að versla frá útlöndum og þá hefur gengið allt að segja.. og ef að gengið styrkist meira.. þá þýðir það að þeir hafa forsendur til að lækka verðin aftur eftir hækkanir síðustu vikna sem urðu vegna veikingu krónunnar

Re: Styrking krónunnar

Sent: Fös 05. Des 2008 13:21
af emmi
Það borgar sig ekki að kaupa að utan eins og staðan er í dag, Valitor.is hefur heldur ekki lækkað gengið hjá sér miðað við alla lækkunina í gær og dag þannig að ég hvet menn til þess að bíða með að nota kortin úti þar til þeir hafa leiðrétt þetta.

Re: Styrking krónunnar

Sent: Fös 05. Des 2008 14:39
af AngryMachine
emmi skrifaði:Valitor.is hefur heldur ekki lækkað gengið hjá sér miðað við alla lækkunina í gær og dag


Ekki Kreditkort heldur, djöfull eru þeir alltaf grófir.

Re: Styrking krónunnar

Sent: Fös 05. Des 2008 14:47
af Gets