Síða 1 af 1

BT....

Sent: Þri 18. Nóv 2008 20:55
af slowhands
Það sem var í ábyrgð hjá BT... er ekki í ábyrgð neinsstaðar núna ?

Re: BT....

Sent: Þri 18. Nóv 2008 21:20
af jonsig
Lastu ekki um strákinn sem var með psp tölvu í viðgerð hjá þeim .... þeir fóru á hausinn og foreldrar hans þurfa að gera kröfu í þrotabúið. og að sögn lögfræðingsins þá fær hann líklegast aldrei peninginn til baka

Re: BT....

Sent: Þri 18. Nóv 2008 22:22
af AngryMachine
Nú er ég ekki inní þessum málum þannig að ég set þetta fram með þeim fyrirvara að það gæti verið kjaftæði. En.... Ef að varan er keypt hjá innlendum birgja (eitthvað sem að getur náttúrulega verið erfitt að vita ) þá gætirðu reynt að fara með hana þangað, ath samt að heildsalar vilja sem minnst fyrir einstaklinga gera. Ef að þetta er eitthvað sem að þeir fluttu inn sjálfir þá gætirðu þurft að eiga við framleiðandann beint, eða einhvern regional umboðsaðila ef að slíkt er til.

Ef að þetta er eitthvað sem að var í þeirra vörslu vegna viðgerðar, eins og í dæminu sem að jonsig benti á, þá er það mál væntanlega í höndum skiptastjóra þrotabúsins.

Ég sá að menn voru mikið að velta sér upp úr þessu með BT á xbox360.is, kannski einhver þar sem veit meira.

Re: BT....

Sent: Þri 18. Nóv 2008 23:09
af arnar7
http://www.dv.is/frettir/2008/11/12/niu ... inn-af-bt/

maður getur nú varla annað en vorkennt þessum..

Re: BT....

Sent: Þri 18. Nóv 2008 23:11
af AngryMachine
arnar7 skrifaði:http://www.dv.is/frettir/2008/11/12/niu-ara-drengur-svikinn-af-bt/

maður getur nú varla annað en vorkennt þessum..


Þessi svipur... svekktur.is :(

Re: BT....

Sent: Þri 18. Nóv 2008 23:21
af coldcut
uuujá ókei...gaurinn fékk nýja PSP frá ELKO í staðinn og 7 nýja leiki í tölvuna frá Harmageddon. Ég vorkenni honum nú ekki mikið.

http://www.dv.is/frettir/2008/11/14/rok ... obert-leo/

ég elska hvað DV gera fréttirnar dramatískar...
"Saga Róberts Leós...snerti hjörtu landsmanna..."

Re: BT....

Sent: Þri 18. Nóv 2008 23:25
af slowhands
Takk fyrir svörin... Nei var ekki búinn að sjá þetta með litla guttann...

Er með fartölvu hjá mér sem var keypt þarna fyrir nokkrum vikum, hún bara dó og mjög líklega eitthvert hardware failure... Virkar öðru hverju samt.. Víst lítið hægt að gera í því núna :)

Hvernig er með BT lánin þá ?

Re: BT....

Sent: Þri 18. Nóv 2008 23:48
af KermitTheFrog
Róbert Leó Erlendsson, 9 ára drengur frá Akranesi, hafði beðið í fimm mánuði eftir að fá nýja PSP leikjatölvu frá BT í stað gallaðrar


Maður verður bara að segja: vá hvað BT er með hroðalega þjónustu

Ég væri löngu búinn að fara þarna niðreftir og vera með læti, en hvað getur svona drengur gert?? Hryllilegt.. Sennilega bara fyrir bestu að BT sé farið

Re: BT....

Sent: Þri 18. Nóv 2008 23:55
af AngryMachine
slowhands skrifaði:Hvernig er með BT lánin þá ?


Er þetta ekki ein aðal lexía kreppunnar: Eignir eru hverfular en skuldir blífa að eilífu.

Nú veit ég ekkert hvernig lán einstakra manna lítur út en þar sem BT var varla að standa í einhverri bankastarfsemi þá hlýtur einhver fjármálastofnun á borð við Lýsing eða Visa að hafa komið að þeim málum. Ef svo ólíklega vill til að BT hafi lánað einhverjum pening milliliðalaust þá má sá væntanlega eiga von á innheimtubréfi frá skiptastjóra.

Re: BT....

Sent: Mið 19. Nóv 2008 09:28
af Dagur
Þið getið prófað að tala við Árdegi.

Re: BT....

Sent: Mið 19. Nóv 2008 09:58
af Daz
Dagur skrifaði:Þið getið prófað að tala við Árdegi.


Árdegi er í gjaldþrotaskiptum.

Re: BT....

Sent: Fim 20. Nóv 2008 21:49
af AngryMachine
Jæja, líkið lifnar við: Hagar kaupa BT:Sumar verslanir opna

Re: BT....

Sent: Fös 21. Nóv 2008 00:16
af PO
Ef þú ert með vöru sem er í ábyrgð hjá fyrirtæki sem fer á hausinn, þá á ábyrgðin að virka hjá innflutningsaðila...

Re: BT....

Sent: Fös 21. Nóv 2008 01:16
af Semboy
arnar7 skrifaði:http://www.dv.is/frettir/2008/11/12/niu-ara-drengur-svikinn-af-bt/




elska hvernig þeir setja meik up á drengin ykja þetta svo vel :D

Re: BT....

Sent: Fös 21. Nóv 2008 11:31
af Darknight
PO skrifaði:Ef þú ert með vöru sem er í ábyrgð hjá fyrirtæki sem fer á hausinn, þá á ábyrgðin að virka hjá innflutningsaðila...


ekki ef þeir fluttu það inn sjálfir :( Held að þeir fluttu inn toshiba fyrir sig, og LG veit ég að voru þeirra.

Re: BT....

Sent: Fös 21. Nóv 2008 11:44
af Blackened
Darknight skrifaði:
PO skrifaði:Ef þú ert með vöru sem er í ábyrgð hjá fyrirtæki sem fer á hausinn, þá á ábyrgðin að virka hjá innflutningsaðila...


ekki ef þeir fluttu það inn sjálfir :( Held að þeir fluttu inn toshiba fyrir sig, og LG veit ég að voru þeirra.


Hvað með Raftækjaverslun Íslands/Johan Rönning.. þeir selja LG.. amk sjónvörp og svona

Re: BT....

Sent: Fös 21. Nóv 2008 12:38
af blitz
Blackened skrifaði:
Darknight skrifaði:
PO skrifaði:Ef þú ert með vöru sem er í ábyrgð hjá fyrirtæki sem fer á hausinn, þá á ábyrgðin að virka hjá innflutningsaðila...


ekki ef þeir fluttu það inn sjálfir :( Held að þeir fluttu inn toshiba fyrir sig, og LG veit ég að voru þeirra.


Hvað með Raftækjaverslun Íslands/Johan Rönning.. þeir selja LG.. amk sjónvörp og svona


Voru þeir ekki gjaldþrota?

Re: BT....

Sent: Fös 21. Nóv 2008 12:41
af Blackened
blitz skrifaði:
Voru þeir ekki gjaldþrota?


Ekki Johan Rönning amk.. þeir selja ennþá sjónvörp og raflagnaefni hérna á akureyri amk ;)

Re: BT....

Sent: Fös 21. Nóv 2008 16:18
af beatmaster
Raftækjaverslun Íslands fór ekki á hausinn, heldur var bara lokað, RÍ var strangt til tekið útibú frá Rönning heimilstækjum niðri í Borgartúni og er það starfrækt enþá, ásamt því að útibú Johan Rönning úti á landi selja vörurnar sem að voru í Rí.