Síða 1 af 1

Reynslusaga

Sent: Mán 17. Nóv 2008 23:07
af KermitTheFrog
Vildi bara deila smá reynslusögu með ykkur hérna

Fór að sækja harðan disk úr viðgerð hjá @tt.is áðan og var kominn með hann í hendurnar og hann var í hýsingu og alles, því ég keypti hann þannig, og ég stakk honum í svona "innanávasa" á úlpunni minni.. Það er ekkert kalt úti þannig að ég er ekkert með rennt upp eða neitt þannig.. Svo sé ég hvernig strætó kemur á blússandi siglingu og ég ætla að hlaupa til að ná honum, en viti menn.. Ég er kominn á harðasiglingu þegar flakkarinn flýgur úr úlpuvasanum og lendir á stéttinni.. Ég hugsa bara "andskotinn", vegna þess að ég var búinn að bíða í viku eftir viðgerðinni og þetta var flakkarinn með öllu sjónvarpsefninu mínu.. Hýsingin mölbrotnaði, en viti menn, diskurinn er í fullu fjöri, en ég varð svolítið svekktur yfir því að diskurinn sem ég fór með í viðgerð hefur verið alveg steindauður vegna þess að það var alveg nýr diskur í og ég var með rúm 450 GB af þáttum og tónlist á þessum disk

Þetta var svo btw vitlaus strætó sem ég var að hlaupa á eftir :P

Re: Reynslusaga

Sent: Mán 17. Nóv 2008 23:55
af jonsig
FAIL :)

Re: Reynslusaga

Sent: Þri 18. Nóv 2008 01:21
af Hyper_Pinjata
epic fails is epic :) :lol:

Re: Reynslusaga

Sent: Mið 19. Nóv 2008 13:18
af Gúrú
Vá hvað ég giska á að þessi diskur hrynji eftir svona viku :o 8-[

Mæli neeett með því að bakka þetta upp, ég myndi t.d. verða frekar MJÖG svekktur ef að 380GB safnið mitt hyrfi bara :roll:

Re: Reynslusaga

Sent: Mið 19. Nóv 2008 14:21
af Hyper_Pinjata
ég er nú með yfir 130gb af tónlist,tæp 200gb af þáttum & 40gb af bíómyndum (tæp 90gb af HD bíómyndum)....hvernig heldurðu að mér myndi líða ef diskarnir mínir dæju bara....

that would suck-ka-ka

Re: Reynslusaga

Sent: Mið 19. Nóv 2008 14:28
af ManiO
Hyper_Pinjata skrifaði:ég er nú með yfir 130gb af tónlist,tæp 200gb af þáttum & 40gb af bíómyndum (tæp 90gb af HD bíómyndum)....hvernig heldurðu að mér myndi líða ef diskarnir mínir dæju bara....

that would suck-ka-ka



And we wouldn't give a damn.

Re: Reynslusaga

Sent: Mið 19. Nóv 2008 14:30
af einzi
Hehe .. þetta fékk mig alveg til að brosa :D