Já uss! DV er fjandans sorp! Líka mjög illa skrifuð frétt, vantar orð hér og þar og svo eru stafsetningarvillur
En varðandi þessa "frétt" þá gúglaði ég aðeins og fann upprunalegu fréttina á
Times Online og já, DV er greinilega að búa til sína eigin frétt úr henni
Ég held að þeir séu samt líka að blása þetta aðeins of mikið upp í upprunalegu fréttinni, en ég held að tilgangurinn með þessu sé aðallega að vernda börn gegn blóti og þess háttar á netinu. Þetta væri þá svona svipað og Net Nanny nema í stað þess að reyna að halda óæskilegum vefsíðum frá börnum að þá eru þær bara ritskoðaðar fyrir þau. Mér finnst það alveg ágætis hugmynd því netið er endalaust að stækka og öðru hverju koma nýjar síður eins og Youtube sem koma með nýjar leiðir fyrir fólk til þess að tjá sig í stað þess að skrifa bara og ef þeir sleppa að spá meira í þessu þá endar kannski með því að börn geti ekki prófað netið fyrr en eftir 18 ára aldur vegna þess hve ótraust það er (þá er ég að tala um þegar netið verður orðið að einum risa margmiðlunarheimi þar sem skrifað mál er í minnihluta, meira um myndefni og jafnvel sýndarveruleika).
Áður en ég fann samt réttu fréttina þá rakst ég á aðra frétt á
Times Online sem tengist líka Microsoft og svona einkaleyfisumsókn en þar eru þeir að tala um að Microsoft sé að þróa tækni þar sem yfirmenn geta fylgst með heilsu starfsmanna og séð t.d. hvort þeir eru stressaðir eða ánægðir, með hraðan eða hægan hjartslátt og jafnvel hvort þeir séu að gretta sig eins og þegar þeir eru reiðir eða að einbeita sér
Þeir gætu þá boðið stressuðum starfsmönnum hjálp um leið og þeir byrja að stressast en svo gætu þeir reyndar líka valið í gegnum kerfið hverja ætti að reka eftir því hverjir væru mest unstable
Meira ruglið...