Síða 1 af 1

Átt þú Sony Vaio Fartölvu ? Innköllun

Sent: Sun 07. Sep 2008 11:59
af lukkuláki
Þetta er alveg svakalegt mál:
http://visir.is/article/20080907/VIDSKIPTI07/823360308


Tekið af visir.is

Sony innkallar 500.000 fartölvur um allan heim

Sony hefur innkallað tæplega 500.000 Vaio fartölvur um allan heim.
Þetta kemur í kjölfar fjölda kvartana um að eldur hafi óvænt komið upp í fartölvunum og skaðað eigendur þeirra.
Innköllunin þykir meiriháttar áfall fyrir Sony og féllu hlutir í tölvurisanum um yfir 4% á mörkuðum er málið varð opinbert í vikulokin. Hafa hlutabréf í Sony ekki verið lægri í þrjú ár.
Í frétt um málið í breska blaðinu The Guardian segir heimildarmaður innan Sony að félagið hafi vitað af þessu vandamáli síðan snemma í ágúst og hefði átt að bregðast fyrr við vandanum.

Alls er vitað um 203 tilfelli þar sem þessar fartölvur hafa ofhitnað og eldur kviknað í þeim þannig að eigendur þeirra hlutu brunasár. Af fjöldanum eru 83 tilfelli í Japan.

Sony segir að þeir muni bjóða upp á ókeypis viðgerðir á tölvunum í þeim 48 löndum sem Vaio fartölvur hafa verið til sölu.

Re: Átt þú Sony Vaio Fartölvu ? Innköllun

Sent: Sun 07. Sep 2008 17:03
af Dr3dinn
Þetta er rosaleg!

Re: Átt þú Sony Vaio Fartölvu ? Innköllun

Sent: Þri 09. Sep 2008 17:13
af supergravity
Eru þessar tölvur til sölu hér? VInkona mín verslaði sér svona vél í USA í sumar og er núna að brasa við að komast að því hvort hennar vél sé ein af þessum 500.000. Henni var sagt við kaupin að það væri alþjóðleg ábyrgð á vélinni, en í fréttinni segir að það verði bara boðið upp á "ókeypis viðgerðir á tölvunum í þeim 48 löndum sem Vaio fartölvur hafa verið til sölu".

Einhver ráð fyrir greyið?

p.s. töff tölva samt, batteríið svínvirkar og hún er alveg fislétt

Re: Átt þú Sony Vaio Fartölvu ? Innköllun

Sent: Mán 22. Sep 2008 01:41
af Super
Er þetta innkallað á Íslandi? Ég keypti mína reyndar árið 2005 en hún er ljóta draslið. Ég hef sem betur fer greinilega aldrei hlaðið batteríið í henni... :|

Re: Átt þú Sony Vaio Fartölvu ? Innköllun

Sent: Þri 23. Sep 2008 15:16
af Gúrú
Super skrifaði:Er þetta innkallað á Íslandi? Ég keypti mína reyndar árið 2005 en hún er ljóta draslið. Ég hef sem betur fer greinilega aldrei hlaðið batteríið í henni... :|


Ef þú hefur keypt hana af þjónustuaðila hér á Íslandi og ef að þetta er ein af þessum 500k Vaio tölvum sem hitnar gríðarlega..

Re: Átt þú Sony Vaio Fartölvu ? Innköllun

Sent: Fös 26. Sep 2008 20:57
af Dust
Er hægt að komast að því einhverstaðar hvaða týpur þetta eru? Eða á maður að bíða eftir að einhver brenni sig og fara þá með hana :P