Síða 1 af 1
Hugver - Hættir
Sent: Mið 03. Sep 2008 19:52
af lukkuláki
Ábending:
Jæja þá lagði Hugver upp laupana
það má taka þá út af vaktin.is
Reykjavík 31.8.2008
Hugver hættir.
Verslun Hugvers ehf mun loka frá og með morgundeginum, 1.9.2008.
Verkstæði Hugvers verður opið áfram frá kl 9 til 16 að minnsta kosti út september.
Hugver opnaði verslun í maí 1992 eða fyrir rúmum 16 árum. Undirritaður hefur verið einn eigandi að félaginu nánast frá upphafi. Afdrif Hugvers eru því óhjákvæmilega nokkuð háð persónulegum kringumstæðum mínum. Er þar að leita skýringa á því að verslunin lokar núna. Ég hef reynt að koma rekstrinum til nýrra aðila með það fyrir augum að tryggja viðskiptavinum okkar áframhaldandi þjónustu. Það hefur reynst erfiðara en mig uggði - þó ekki sé alfarið útséð um að það takist. Ef betri tíðindi verða að þessu leyti, og nýr aðili tekur við, mun ég kynna þau.
Það sem verið hefur uppistaðan í vöruframboði okkar síðustu ca 10 ár eru Mitac fartölvur, Genius jarðartæki, skjáir frá AG Neovo og Abit móðurborð.
Ýmsir ágætir aðilar hafa sóst eftir þessum merkjum og er ekki að efa að flest verða þau seld hér áfram. Það mun t.d. liggja fyrir að skjáir frá AG Neovo verða seldir hér áfram af nýjum söluaðila og gömlum vonbiðli.
Ekki verður hjá því komist að lokun Hugvers valdi einhverjum óþæginum og biðst ég velvirðinar á því. Ég mun hins vegar gera það sem ég get til að leysa úr málum sem upp koma.
Eftir allan þennan tíma stend ég í þakkarskuld við fjölmarga viðskiptavini og starfsfólk - viðskiptavini sem hafa sýnt okkur traust og starfólk sem hefur eflt fyrirtækið. Kann ég þessu fólki bestu þakkir.
Fyrir þá sem vilja taka mig á beinið eða fá nánari skýringar verð ég aðgengilegur um sinn í síma 562 0707 og um tölvupóst (valdiαhugver.is ).
Með bestu kveðju,
Valdimar Jónsson, fyrir Hugver ehf.
Re: Hugver - Hættir
Sent: Mið 03. Sep 2008 19:57
af AngryMachine
Leiðinlegt að sjá, hafði ágæta reynslu af þeim hér í den.
Re: Hugver - Hættir
Sent: Mið 03. Sep 2008 19:59
af Allinn
Hvað fóru þeir á hausinn eða hvað?
Re: Hugver - Hættir
Sent: Mið 03. Sep 2008 22:59
af einarornth
Good riddance. Keypti tvær tölvur hjá þeim fyrir mörgum árum og hef aldrei fengið jafn slæma og dónalega þjónustu, fyrr eða síðar.
Re: Hugver - Hættir
Sent: Mið 03. Sep 2008 23:41
af Ashy
Allinn skrifaði:Hvað fóru þeir á hausinn eða hvað?
Neibb.
Re: Hugver - Hættir
Sent: Fim 04. Sep 2008 01:04
af appel
Verslaði hjá honum í gamla daga, ekki jafn mikið af verslunum þá og eru í dag. Var alveg sáttur við viðskipti mín. Óska honum alls hins besta.
Re: Hugver - Hættir
Sent: Fim 04. Sep 2008 11:57
af CendenZ
einarornth skrifaði:Good riddance. Keypti tvær tölvur hjá þeim fyrir mörgum árum og hef aldrei fengið jafn slæma og dónalega þjónustu, fyrr eða síðar.
sammála.
Aldrei hef ég fengið jafn hræðilega þjónustu og hjá Hugveri.
Hinsvegar var það ekki Valdimar sem var með lélega þjónustulund, heldur liðið á verkstæðinu
Re: Hugver - Hættir
Sent: Fim 04. Sep 2008 16:43
af Halli25
er ekki kominn tími á að setja tölvutek á verð vaktina? Eða eru þeir að borga ykkur fyrir að vera ekki á vaktinni?
Re: Hugver - Hættir
Sent: Fim 04. Sep 2008 17:05
af GuðjónR
faraldur skrifaði:er ekki kominn tími á að setja tölvutek á verð vaktina? Eða eru þeir að borga ykkur fyrir að vera ekki á vaktinni?
hehehe...nei nei, held að enginn myndi borga fyrir að vera ekki á vaktinni. En ef einhver vill gera mér tilboð þá eru augu og eyru opin
Annars er ég sammála því að það er löngu kominn tími á tölvutek á vaktina, einnig er kominn tími á að henda út hugver,task,þór og buy.is Reyndar verður listinn frekar tómlegur þannig.
Eina ástæðan fyrir því að tölvutek er ekki komið inn er sú að þeir segjast ekki hafa tíma til að uppfæra vörurnar á sínum vef og þess síður á vef út í bæ (vaktinni)
Og ég hef haft meira en nóg að gera sjálfur í öðru en að uppfæra þær búðir sem ekki hafa getað það sjálfir.
Við fengum á sínum tíma haug af sjálboðaliðum til að uppfæra, en þeir gáfust því miður fljótt upp.
Einhverjir sem bjóða sig fram???
p.s. ef þið hafið einhverjar hugmyndir, hversu langsóttar sem þær kunna að vera...skjótið!!
Eigum við að bæta þessum við á listann? :
http://www.takkar.is
Re: Hugver - Hættir
Sent: Fim 04. Sep 2008 18:00
af beatmaster
GuðjónR skrifaði:Við fengum á sínum tíma haug af sjálboðaliðum til að uppfæra, en þeir gáfust því miður fljótt upp.
Einhverjir sem bjóða sig fram???
Ég get boðið mig fram
Re: Hugver - Hættir
Sent: Fim 04. Sep 2008 20:56
af Gúrú
Er tölvulistinn ekki nú þegar inná?
Eða er það rugl í mér að takkar.is redirecti á tl.is?
Re: Hugver - Hættir
Sent: Fim 04. Sep 2008 22:05
af hagur
Gúrú skrifaði:Er tölvulistinn ekki nú þegar inná?
Eða er það rugl í mér að takkar.is redirecti á tl.is?
Ég tók eftir þessu líka .... er Tölvulistinn búinn að gleypa Takka ?
Re: Hugver - Hættir
Sent: Fim 04. Sep 2008 22:06
af einarornth
hagur skrifaði:Gúrú skrifaði:Er tölvulistinn ekki nú þegar inná?
Eða er það rugl í mér að takkar.is redirecti á tl.is?
Ég tók eftir þessu líka .... er Tölvulistinn búinn að gleypa Takka ?
Mér sýndist allavega búðin hjá þeim á Suðurlandsbraut vera lokuð þegar ég fór í Heimilistæki um daginn.
Re: Hugver - Hættir
Sent: Fim 04. Sep 2008 22:46
af GuðjónR
hagur skrifaði:Gúrú skrifaði:Er tölvulistinn ekki nú þegar inná?
Eða er það rugl í mér að takkar.is redirecti á tl.is?
Ég tók eftir þessu líka .... er Tölvulistinn búinn að gleypa Takka ?
Frekar bara söfnunarárátta hjá þeim sem eiga: sm.is , ef.is, ht.is, tl.is ... og eitthvað fleira...þeir fara að verða nógu stórir til að vekja áhuga hjá Baugi
Re: Hugver - Hættir
Sent: Þri 09. Sep 2008 20:40
af DoofuZ
Gætu tölvubúðirnar ekki bara haft xml skrár sem væru uppfærðar beint úr sölukerfinu eða eitthvað þannig og svo gæti verið bara þá eitthvað sjálfvirkt kerfi hér sem myndi lesa úr þeim og uppfæra reglulega?
Re: Hugver - Hættir
Sent: Þri 09. Sep 2008 21:42
af GuðjónR
DoofuZ skrifaði:Gætu tölvubúðirnar ekki bara haft xml skrár sem væru uppfærðar beint úr sölukerfinu eða eitthvað þannig og svo gæti verið bara þá eitthvað sjálfvirkt kerfi hér sem myndi lesa úr þeim og uppfæra reglulega?
Það væri draumur!!!
Re: Hugver - Hættir
Sent: Þri 09. Sep 2008 23:01
af akarnid
CendenZ skrifaði:einarornth skrifaði:Good riddance. Keypti tvær tölvur hjá þeim fyrir mörgum árum og hef aldrei fengið jafn slæma og dónalega þjónustu, fyrr eða síðar.
sammála.
Aldrei hef ég fengið jafn hræðilega þjónustu og hjá Hugveri.
Hinsvegar var það ekki Valdimar sem var með lélega þjónustulund, heldur liðið á verkstæðinu
Ég verð því miður að taka undir þetta. Keypti vél hjá þeim fyrir mörgum árum og lenti í heljarinnar veseni með hana og kom að þjónustulund í mínus þarna hjá þeim á verkstæðinu. Sem er auðvitað alveg glatað fyrir svona 'mom'n'pop' búð. Ég var allur fyrir það að versla samt áfram við þá hluti sem kröfðust ekki verkstæðisferða.
Það sem mér finnst hafa drepið þá því miður voru vörumerkin. Konan keypti sér Mitac fartölvu 2003 hjá þeim. Annan eins skítajálk hef ég aldrei prófað. Mitac voru bara því miður rusl vörur alveg upp í topp.
Abit hins vegar er legendary. Abit BP6 - fyrsta affordable dual örgjörva móbóið. Good times...
Re: Hugver - Hættir
Sent: Þri 09. Sep 2008 23:04
af akarnid
GuðjónR skrifaði:hagur skrifaði:Gúrú skrifaði:Er tölvulistinn ekki nú þegar inná?
Eða er það rugl í mér að takkar.is redirecti á tl.is?
Ég tók eftir þessu líka .... er Tölvulistinn búinn að gleypa Takka ?
Frekar bara söfnunarárátta hjá þeim sem eiga: sm.is , ef.is, ht.is, tl.is ... og eitthvað fleira...þeir fara að verða nógu stórir til að vekja áhuga hjá Baugi
Ættu nú að vera hæg heimatökin - Takkar voru í eigu Heimilistækja sem eru í eigu Baugs.
Re: Hugver - Hættir
Sent: Mið 10. Sep 2008 00:23
af GuðjónR
akarnid skrifaði: Ættu nú að vera hæg heimatökin - Takkar voru í eigu Heimilistækja sem eru í eigu Baugs.
Á Baugur Heimilistæki?? Ef svo er þá á Baugur líka Tölvulistann....hmmmm
Re: Hugver - Hættir
Sent: Mið 10. Sep 2008 09:38
af mind
[quote="GuðjónR"][quote="akarnid"] Ættu nú að vera hæg heimatökin - Takkar voru í eigu Heimilistækja sem eru í eigu Baugs.[/quote]
Á Baugur Heimilistæki?? Ef svo er þá á Baugur líka Tölvulistann....hmmmm
[/quote]
Nei baugur á ekkert í heimilistækjum, akarnid virðist samt ekki vita það.
Re: Hugver - Hættir
Sent: Mið 10. Sep 2008 11:13
af lukkuláki
takkar.is = tl.is = sm.is = ht.is = allt sömu eigendur.
Hefur samt að ég held, ekki neitt með Baug að gera ?
Re: Hugver - Hættir
Sent: Mið 10. Sep 2008 11:45
af CendenZ
lukkuláki skrifaði:takkar.is = tl.is = sm.is = ht.is = allt sömu eigendur.
Hefur samt að ég held, ekki neitt með Baug að gera ?
Held að Baugur sé einungis að kaupa birgðirnar af fyrirtækjunum sem þeir hafa lánað, en ekki að sölsa undir sig verslanir.