Síða 1 af 2
Google Chrome
Sent: Þri 02. Sep 2008 22:43
af daremo
Hefur einhver prófað hann?
Ég hafði ekki mikla trú á þessu í dag þegar einhver minntist á að Google væri að gefa út browser.. En eftir nokkurra mínútna notkun er hann orðinn minn helsti valkostur.
Tabs efst í staðinn fyrir tóma rúmið sem er yfirleitt þar, status bar aðeins þegar maður þarf á honum að halda, ofur fljótur (miðað við Firefox 2 og IE7, það sem ég notaði áður), allt mjög minimalískt.
Google did it again sýnist mér..
Edit: Gleymdi link.
http://www.google.com/chrome... OG, gleymdi að minnast á að Chrome notar sér process per tab.. Semsagt ef þú ert að skoða einhverja crappy overloaded javascript vefsíðu krassar hún bara tab-inum sem þú ert að skoða hana í. Ekki öllu draslinu.
Re: Google Chrome
Sent: Þri 02. Sep 2008 22:53
af Frikkasoft
Eftir ca 1 klst notkun, þá er Chrom eiginlega orðinn minn fyrsti kostur.
Vantar bara adblock
Re: Google Chrome
Sent: Þri 02. Sep 2008 23:44
af KermitTheFrog
er ekki hægt að fá einhver themes í þetta??
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 10:27
af Demon
Örugglega seinna.
Annars er ég sammála þeim fyrir ofan.
Drullusáttur við þennan browser.
Vantar auðvitað stuðning við þónokkra hluti ennþá þó. En sem beta lofar þetta góðu.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 10:47
af hallihg
Mér lýst mjög vel á hann, og hann er fáránlega fljótur þessi browser!
En ég er of vanur að hafa bookmark sidebar fyrir minn nethring, og svona sidebar er ekki að finna í Chrome sýnist mér, því miður. En Google eru ótrúlegir snillingar.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 11:19
af einzi
Einhverjir hafa verið með vafasemdir um smáa letrið í honum ( sjá
http://yro.slashdot.org/article.pl?sid=08/09/03/0247205 ) en það verður gaman að prófa hann og enn skemmtilegra fyrir vefforritara að fá einn browserinn í viðbót til að láta síðuna sína virka í.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 11:33
af KermitTheFrog
já, þetta lofar góðu og kannski maður prófi þetta þegar þetta er updatað meira.. held mig við firefox þangað til
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 12:49
af klaengur
traustur vafrari ?
endilega prófið að skrifa
about:%
í address bar.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 13:37
af KermitTheFrog
hehe,vá
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 13:56
af hagur
Mér lýst rosalega vel á þennan browser. Hann er mjög léttur og geysilega fljótur að rendera síður.
Fullt af sniðugum fídusum í honum, t.d að hver tab og hvert plugin keyri í sér þræði. Sniðugur líka innbyggði task managerinn, þar sem hægt er að fylgjast með minnisnotkun einstakra tabs og plug-ins.
Varðandi commentið að þetta verði enn einn vafrinn fyrir vefforritara að hafa áhyggjur af, þá segi ég já og nei. Chrome byggir á apple webkit að mér skilst og er því með keimlíka renderingu og Safari. Ef maður veit hvað maður er að gera, og fylgir stöðlum, þá virka hlutirnir yfirleitt rétt í öllum major browserum. Ef það virkar rétt í IE7 og Firefox, þá er mín reynsla sú að það sé einnig rétt í Opera, Safari og nú væntanlega Chrome líka.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 15:00
af einzi
hagur skrifaði:Varðandi commentið að þetta verði enn einn vafrinn fyrir vefforritara að hafa áhyggjur af, þá segi ég já og nei. Chrome byggir á apple webkit að mér skilst og er því með keimlíka renderingu og Safari. Ef maður veit hvað maður er að gera, og fylgir stöðlum, þá virka hlutirnir yfirleitt rétt í öllum major browserum. Ef það virkar rétt í IE7 og Firefox, þá er mín reynsla sú að það sé einnig rétt í Opera, Safari og nú væntanlega Chrome líka.
jebb ..
Ef maðurinn veit hvað maðurinn er að gera, og
ef hann fylgir stöðum
. en jú annars er það rétt hjá þér .. ef maður fær síðurnar til að rendera rétt í ff( the right way) og í ie ( the wrong way ) þá koma þær yfirleitt rétt út í hinum.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 15:08
af Ordos
Er svaka flottur en vantar add-ons kemur ábyggilega seinna
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 15:24
af Gúrú
Er að fýla hann mjög vel, hef enn eftir að finna eitthvað pirrandi fyrir utan þetta bláa þema sem verður væntanlega hægt að breyta, en mér finnst vanta eitthvað sem skilgreinir tabana frá hvor öðrum.
Inspect element og Task Managerinn er bara snilld, svo er Stats for nerds ákveðinn húmor.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 15:25
af hagur
Ekki má gleyma Incognito mode
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 15:25
af Gúrú
Fann eitthvað sem böggar mig rétt í þessu, það er ekki hægt að Mouse3+dragga...
Piirrandii
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 15:31
af beatmaster
Gúrú skrifaði:Fann eitthvað sem böggar mig rétt í þessu, það er ekki hægt að Mouse3+dragga...
Piirrandii
Fyrsta og eina ástæðan sem að lét mig leggja þeesum browser fyrir utan það reyndar að þurfa alltaf að skrifa í adress-barinn eða smella á bookmarks til að fara á síðu, það vantar fellimöguleika ala FF2 og IE og Safari og allir aðrir browserar.
En þetta er enn BETA og verður sjálfsagt fínpússað betur
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 20:32
af Demon
fellimöguleika?
Er ekki alveg að skilja hvað þú átt við?
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 21:11
af dos
Hann krassar alltaf hjá mér ef ég hægrismelli í adressbar, er það svoleiðis hjá fleirum.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 21:13
af Gúrú
dos skrifaði:Hann krassar alltaf hjá mér ef ég hægrismelli í adressbar, er það svoleiðis hjá fleirum.
Ef að með addressbar meinarðu þar sem að "http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=19202" er, þá nei.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 21:51
af dos
Gúrú skrifaði:dos skrifaði:Hann krassar alltaf hjá mér ef ég hægrismelli í adressbar, er það svoleiðis hjá fleirum.
Ef að með addressbar meinarðu þar sem að "http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=19202" er, þá nei.
Já ég var að meina það, en það er í lagi núna eftir restart á tölvunni.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 22:36
af halldorjonz
það er líka svoleiðis hjá mér eins og hjá þér dos, hvað gerðiru til að laga, ótrúlega pirrandi
vantar samt algjörlega "Home" takka, ég er td með tvb sem home, afhverju kemur það ekki i staðin fyrir eitthvað history dót þegar ég geri nýjan tab
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 22:48
af appel
Staðreyndin að ég loggaði mig ekki inn í Chrome til að skrá þennan póst gefur til kynna að ég er doldið óöruggur með privacy issue.
Vil nú geta loggað mig inn í heimabankann minn án þess að Google fái passwordið mitt:
"By submitting, posting or displaying the content you give Google a perpetual, irrevocable, worldwide, royalty-free, and non-exclusive license to reproduce, adapt, modify, translate, publish, publicly perform, publicly display and distribute any content which you submit, post or display on or through, the services. This license is for the sole purpose of enabling Google to display, distribute and promote the services and may be revoked for certain services as defined in the additional terms of those services."
Virðist vera fantagóður browser, en ég ætla að bíða með að nota hann þar til Google lagfærir þessi privacy issue.
Kosturinn við Firefox er að það er ekkert fyrirtæki þar á bakvið sem er að reyna nálgast allar upplýsingar um þig. Ég er hræddur um að þessi Chrome eigi eftir að þróast út í einhverskonar spy'on'you-browser.
Við skulum ekki gleyma því að Google neyddist til að láta kvikmyndafyrirtækin fá upplýsingar um YouTube notkun notenda sinna. Er orðinn suspicous.
Re: Google Chrome
Sent: Mið 03. Sep 2008 23:01
af KermitTheFrog
halldorjonz skrifaði:það er líka svoleiðis hjá mér eins og hjá þér dos, hvað gerðiru til að laga, ótrúlega pirrandi
vantar samt algjörlega "Home" takka, ég er td með tvb sem home, afhverju kemur það ekki i staðin fyrir eitthvað history dót þegar ég geri nýjan tab
ýtir á skrúflykilinn - options - undir "basics" er "show home button on toolbar"
Re: Google Chrome
Sent: Fim 04. Sep 2008 00:13
af Daz
Varðandi EULA málið þá virðist þetta vera "yfirsjón"
http://www.mattcutts.com/blog/google-ch ... agreement/Chrome er gott fyrir heilsuna
Re: Google Chrome
Sent: Fim 04. Sep 2008 00:57
af dos
halldorjonz skrifaði:það er líka svoleiðis hjá mér eins og hjá þér dos, hvað gerðiru til að laga, ótrúlega pirrandi
vantar samt algjörlega "Home" takka, ég er td með tvb sem home, afhverju kemur það ekki i staðin fyrir eitthvað history dót þegar ég geri nýjan tab
Eg restartaði bara tölvunni þá lagaðist þetta