Síða 1 af 1

Marmaris

Sent: Fim 07. Ágú 2008 00:38
af svanur
Hverjir hafa farið til Marmaris, Tyrklandi ? Hvernig var ? :wink:
Spyr vegna þess er líklega að fara

Re: Marmaris

Sent: Fim 07. Ágú 2008 11:27
af Andriante
Hef ekki farið til Marmaris, en hef farið til Istanbúl.. Ég verð að segja að tyrkland er með þeim ömurlegustu löndum sem ég hef farið til.

"CARPET? CARPET?" Óþolandi götusölumenn allstaðar, maturinn vægast sagt hryllingur og menningin bara ekkert til að hrópa húrra yfir.

Marmaris er hinsvegar sólarferðamannastaður þannig að það gæti verið aallt annað :)

Re: Marmaris

Sent: Fim 07. Ágú 2008 14:28
af hsm
Ég hef farið til Analya í Tyrklandi sem er á suðurströndinni og er það besta sólarlandaferð sem ég hef farið í.
Á enganveginn við lýsingunna hér að ofan af Istanbul.
Frábær matur og fáránlegt verðlag þar. Reyndar eru þessir óþolandi sölumenn víða í Evrópu og er Tyrkland endinn undantekning.
Þekki marga sem hafa farið til Marmaris og hef aldrei heyrt annað en góðar sögur af þeim stað.

Re: Marmaris

Sent: Lau 09. Ágú 2008 13:29
af vldimir
Fór til Marmaris í fyrra,
Alltof heitt, ég fór reyndar seinni hluta sumars eða í Ágúst og hitinn fór ekki undir 40°
Sölumennirnir og veitingastaðafólk er líka alltof uppáþrengjandi. Næturlífið þarna er gjörsamlega ruglað.. Farið til Algarve, Benidorm og Mallorca og þetta er á toppnum ásamt Mallorca.

Mæli með ef þú ert að fara djamma þarna að fara á Club Areena(risastór skemmtistaður byggður eins og hringleikahús í Róm) og Crazy Daisy.