Síða 1 af 3

Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 05. Ágú 2008 18:00
af ManiO
Jæja, var tekinn fyrir of hraðan akstur fyrir um einum og hálfum mánuði. Er eðlilegt að vera ekki búinn að fá sent heim né á heimabankann?

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 05. Ágú 2008 18:03
af DaRKSTaR
já þetta er normal þetta helvíti.

þú færð sektina inn um bréfalúguna þegar þú ert alveg staur blánkur og búinn að gefa upp allavon um að fá sekt.

ég hef fengið þetta í sömu viku og ég hef líka þurft að bíða eftir að fá þetta í svo lángann tíma að ég var búinn að gleyma þessu þegar þetta kom

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 05. Ágú 2008 19:00
af Blackened
ég fékk sektina viku eftir að ég skrifaði undir samþykktina hjá lögreglustjóra

gekk alltsaman frekar hratt fyrir sig.. ótrúlegt en satt

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 05. Ágú 2008 20:19
af andribolla
eg hef beðið í ár ;)

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Þri 05. Ágú 2008 23:01
af Skapvondur
Ég hata Blöndósarlögguna, var að keyra norður og var í brekku, lét bílinn renna til að spara bensín en fór óvart aðeins yfir löglegan hraða eða um 110 km/klst. í smá stund bara þessa brekku, giskið hvað ég fékk í sekt, 25.000 kr. **mörg ljót orð** SEEEEEKT!!"$%#&/$(%

afsakið orðabragðið.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fim 07. Ágú 2008 16:36
af Gúrú
Skapvondur skrifaði:Ég hata Blöndósarlögguna, var að keyra norður og var í brekku, lét bílinn renna til að spara bensín en fór óvart aðeins yfir löglegan hraða eða um 110 km/klst. í smá stund bara þessa brekku, giskið hvað ég fékk í sekt, 25.000 kr. **mörg ljót orð** SEEEEEKT!!"$%#&/$(%

afsakið orðabragðið.

Hvað ertu gamall ef mér leyfist að spyrja?

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fim 07. Ágú 2008 16:54
af urban
Skapvondur skrifaði:Ég hata Blöndósarlögguna, var að keyra norður og var í brekku, lét bílinn renna til að spara bensín en fór óvart aðeins yfir löglegan hraða eða um 110 km/klst. í smá stund bara þessa brekku, giskið hvað ég fékk í sekt, 25.000 kr. **mörg ljót orð** SEEEEEKT!!"$%#&/$(%

afsakið orðabragðið.

sparar jú eitthvað bensín á því
en langbest er að gíra niður og láta hann liggja í gírnum, engin hætta á því að fara yfir hraðatakmarkanir og þú eyðir engu bensíni.

og nota bene, þú átt ekki að hata lögguna, hún er að vinna sína vinnu, ef að þú vilt ekki sektina, þá áttu einfaldlega að keyra hægar
það er þér en ekki löggunni að kenna að þú færð sekt

Já til hamingju með þessa ofurfínu aðvörun sem að ég ákvað að gefa þér eftir að ég las þennan blessaða texta aftur.
þú sleppir þessu blessaða orðbragði bara hér eftir, kemur ekki með það og bætir við eftir á afsakið orðbragðið

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fim 07. Ágú 2008 17:09
af Viktor
Skapvondur skrifaði:Ég hata Blöndósarlögguna, var að keyra norður og var í brekku, lét bílinn renna til að spara bensín en fór óvart aðeins yfir löglegan hraða eða um 110 km/klst. í smá stund bara þessa brekku, giskið hvað ég fékk í sekt, 25.000 kr. **mörg ljót orð** SEEEEEKT!!"$%#&/$(%

afsakið orðabragðið.

Spurning að þroskast aðeins ? Löggan er að vinna sína vinnu, bæði þú og löggan vitið af 90km hámarkshraða, afhverju ertu að skæla? 110km/h er ekki löglegt.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fim 07. Ágú 2008 17:48
af Demon
Ég hef beðið í hálft ár eftir sekt.
Var alveg viss um að hún myndi ekki koma.
En neinei hún kom...40þúsund kall....
En já sammála því sem var sagt hérna, bara sleppa því að keyra eins of fífl og maður sleppur við sektir.
Blöndóslöggan tekur samt frekar hart á þessu miðað við aðra, minnir að pabbi hafi verið tekinn á 97km hraða einu sinni.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fim 07. Ágú 2008 23:14
af Gúrú
Demon skrifaði:Ég hef beðið í hálft ár eftir sekt.

Þú ert tekinn á 93 núna?

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fim 07. Ágú 2008 23:18
af Blackened
Gúrú skrifaði:

Neibb.. 96kmh fyrir 10þúsund krónur

getur séð töflu á http://www.us.is undir sektir og viðurlög

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fim 07. Ágú 2008 23:29
af Gúrú
Blackened skrifaði:

Ahh k, minnti að það hafi verið lækkað úr 103 í 93 en það var víst 104 í 96 :oops:

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fös 08. Ágú 2008 09:42
af Xen0litH
Ég er nokkuð viss um að þeir geti ekki stoppað þig nema á 99 km/h, þar sem skekkjumörkin eru 4 km/h á þessum mælum og þ.a.l hraðinn alltaf lækkaður í 96 km/h.

Am I rite?

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fös 08. Ágú 2008 09:58
af sigurbrjann
skekkjumörkin eru aðeins 3

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fös 08. Ágú 2008 15:08
af Blackened
sigurbrjann skrifaði:skekkjumörkin eru aðeins 3

rangt.. í mínu tilfelli.. (var tekinn 25.maí 2008) voru vikmörkin 4

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fös 08. Ágú 2008 15:53
af natti
Blackened skrifaði:
sigurbrjann skrifaði:skekkjumörkin eru aðeins 3

rangt.. í mínu tilfelli.. (var tekinn 25.maí 2008) voru vikmörkin 4

rétt og rangt.
Getur máské verið að skekkjumörkin séu 3 þegar það er verið að mæla undir 100km? Og að skekkjumörkin séu 4 þegar komið er yfir ákveðinn hraða?

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fös 08. Ágú 2008 15:56
af Blackened
natti skrifaði:
Blackened skrifaði:
sigurbrjann skrifaði:skekkjumörkin eru aðeins 3

rangt.. í mínu tilfelli.. (var tekinn 25.maí 2008) voru vikmörkin 4

rétt og rangt.
Getur máské verið að skekkjumörkin séu 3 þegar það er verið að mæla undir 100km? Og að skekkjumörkin séu 4 þegar komið er yfir ákveðinn hraða?

Skarplega athugað reyndar.. þarsem að ég var á 100+ þá er það sennilega 4.. en gæti verið 3 á minni hraða
er ekki alveg nógu vel að mér í þessu en ég gæti trúað því að þetta sé bara einhver % tala

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fös 08. Ágú 2008 16:54
af urban
ég var nú búin að lesa mér einhvern tíman til um þetta.
Skekkjumörk eru semsagt aldrei minni en 3% af mældum hraða ökutækis, og geta verið meiri ef að veður er vont og lögreglubíll er á ferð.'

minnir að þetta hafi verið einhvern vegin svona
en samt sem áður eru þau minni en 3 km/h

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fös 08. Ágú 2008 22:21
af Skapvondur
Demon skrifaði:Ég hef beðið í hálft ár eftir sekt.
Var alveg viss um að hún myndi ekki koma.
En neinei hún kom...40þúsund kall....
En já sammála því sem var sagt hérna, bara sleppa því að keyra eins of fífl og maður sleppur við sektir.
Blöndóslöggan tekur samt frekar hart á þessu miðað við aðra, minnir að pabbi hafi verið tekinn á 97km hraða einu sinni.

Ég var ekkert að keyra eins og fífl, var orðinn frekar þreyttur eftir 7 tíma akstur og var því miður ekki alveg að fylgjast með mælinum hverja einustu sekúndu þegar ég var að fara niður þessa brekku.

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Fös 08. Ágú 2008 23:57
af Gúrú
Skapvondur skrifaði:

Augljóslega þeim að kenna að þú hafir verið að stofna til hættu á vegum landsins...

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Lau 09. Ágú 2008 01:50

Stofna til hættu :lol: það er þetta sem ég þoli ekki :) það er ekkert stórhættulegt að keyra örlítið yfir hraðatakmörkum á völdum vegarköflum hérna á þessu landi..
..þó að mest af þessum vegum séu reyndar handónýtir
mér persónulega finnst kjánalegt að angra ökumenn þessa lands sem að keyra á um og undir 110kmh markinu á þjóðvegum þessa lands á sumrin á nóttunni þegar að það er lítil sem engin umferð..
..enda hefur maður líka oft lent í því að löggan blikkar bara á mann háuljósunum til að benda manni á að hægja ferðina ;) ekki alltaf sem að þeir sekta

Það er staður og stund fyrir allt! ..því miður er ekki til nein aðstaða hérna fyrir norðan tildæmis til að stunda hraðakstur eða þessháttar og þessvegna verður fólk stundum að láta sér þjóðvegina nægja
og síðan kemur einhver "blablabla það á bara ekkert að keyra hratt" en staðreyndin er sú að þetta er alveg jafn mikið sport og hestamennska og þessháttar og það á bara að reisa almennilegar aðstöður fyrir þetta sport hér á landi.. (og þá helst eina hérna fyrir norðan líka! :D ) fólk á sportbíla og reiserhjól sem eru smíðuð með það í huga að keyra hratt.. og það er fátt sem að stoppar fólk í því að fara bara út á þjóðveg og "go wild"

Finnst frekar skrýtið að tildæmis tryggingafélögin séu ekki búin að reisa svona aðstöðu einhverstaðar .. því að þó að þetta kosti xMargar milljónir þá er það ótrúlega fljótt að borga sig ef að það dregur úr hraðakstri á þjóðvegunum
Þó að það fækki ekki nema um 1-2 banaslys sem má rekja til hraðaksturs á ári þá er það samt fljótt að borga sig.. og ekki bara í peningum séð ;)
og nei.. ég er ekki að segja að þetta muni stöðva allan ofsaakstur á vegum úti.. en þetta mun vissulega draga úr honum sama hvað hver segir.. amk myndi ég hætta að keyra hratt útá þjóðvegi sem og annarstaðar ef ég hefði einhverstaðar braut til að keyra hratt á.

En ég er viss um að það er búið að ræða þetta áður..
Eigiði góða helgi strákar ;)

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Lau 09. Ágú 2008 02:13
af Gúrú
Bara ég eða las ég einhversstaðar að það ER kvartmílubraut hérna á Íslandi?

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Lau 09. Ágú 2008 02:22
af KermitTheFrog
er ekki kvartmílubraut rétt hjá álverinu??

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Lau 09. Ágú 2008 02:35
af Blackened
Gúrú skrifaði:Bara ég eða las ég einhversstaðar að það ER kvartmílubraut hérna á Íslandi?

Kvartmílubraut?.. og hvað nákvæmlega er gaman við það nema maður sé á 700hestafla bíl? ég er að tala um alvöru aðstöðu.. þú gerir ekkert nema að setja bílinn þinn 0-150 eða eitthvað á þessari blessuðu braut ALVEG beint..
ef maður nær því þá.. engar beyjur og ekki neitt
það er nákvæmlega ekkert gaman að því ;)

En þið eruð reyndar með akstursbraut þarna fyrir sunnan held ég..
gott ef ég sá ekki helling af bílum merkta http://www.akstursbraut.is síðustu bíladaga

*Edit*
Nei við nánari skoðun sé ég að brautin er víst lokuð af óviðráðanlegum aðstæðum þartil að annað kemur í ljós.. en þetta er vissulega til staðar samt!

Re: Hraðasekt, hve lengi að koma?

Sent: Lau 09. Ágú 2008 03:02
af zedro
OBEY THE LAW