Síða 1 af 1
Ekkert múður, 105 Gb/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 09:20
af CendenZ
http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2008/07 ... tu_farice/Farice hf. sem rekur sæstreng milli Íslands og Bretlands hefur undirritað samning sem metinn er á tvo milljarða króna við fjarskiptafyrirtækið Thus. Í honum felst að flutningsgeta strengsins verður aukin í 100 gígabit á sekúndu, en heildarflutningsgeta til og frá Íslandi er nú fimm gígabit á sekúndu. Starfsemi netþjónabúa er helsti hvatinn að aukningunni, sem og nýjum sæstreng sem verður lagður til Danmerkur.
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 09:55
af urban
2 x 100 meirað segja.
það er að segja 100 í hvora átt, en ekki 100 samtals.
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 10:09
af beatmaster
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 10:26
af dabb
beatmaster skrifaði:
+++
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 11:49
af Zorglub
Alveg hið besta mál
En ég á nú hinsvegar eftir að sjá að við fáum að njóta góðs af þessu
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 12:30
af beatmaster
Það er náttúrulega alveg allt annað mál hvort að við græðum í rauninni eitthvað á þessu, ef að ég þekki far-ice menn rétt þá leiðir þetta líklegast til hækkunar á gjaldskránni
En það er alltaf gott að vera bjartsýnn
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 12:59
af urban
Þetta er nú fyrst og fremst hugsað fyrir netþjónabú, enda hef ég svo sem ekki getað séð að almenning vanti bandvídd ef að strengurinn er í lagi.
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 13:59
af Viktor
urban- skrifaði:Þetta er nú fyrst og fremst hugsað fyrir netþjónabú, enda hef ég svo sem ekki getað séð að almenning vanti bandvídd ef að strengurinn er í lagi.
Samt þá hljótum við að græða á mörgum sviðum ef það verður rekið netþjónabú hér á landi.
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 15:35
af urban
Sallarólegur skrifaði:urban- skrifaði:Þetta er nú fyrst og fremst hugsað fyrir netþjónabú, enda hef ég svo sem ekki getað séð að almenning vanti bandvídd ef að strengurinn er í lagi.
Samt þá hljótum við að græða á mörgum sviðum ef það verður rekið netþjónabú hér á landi.
já þá sé ég fyrst og fremst möguleika á því að Farice lækki sín gjöld þar sem að þá komi þessi blessaði strengur til með að vera notaður, og það verði til þess að ISPar hér á landi geti farið að bjóða uppá meira gagnamagn til útlanda (meira en 80 GB það er að segja), ekki það að ég þurfi þess, tel mig nú dla þó nokkuð mikið en hef ekki verið að fara yfir 50 - 60 GB (reyndar er ég ekki að sækja mér HD efni)
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 16:18
af Demon
105 Gb/sec ætti það þá að vera?
Iss...tölvunördar að gera svona mistök!
Skamm!
Re: Ekkert múður, 105 GB/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 16:58
af CendenZ
Demon skrifaði:105 Gb/sec ætti það þá að vera?
Iss...tölvunördar að gera svona mistök!
Skamm!
æi capsaði alla línuna
Re: Ekkert múður, 105 Gb/SEC
Sent: Þri 29. Júl 2008 23:48
af Birkir
beatmaster, þetta sker í augun, ekki gera þetta aftur.