Síða 1 af 2

The Dark Knight [WARNING possible Spoilers]

Sent: Sun 27. Júl 2008 15:09
af halldorjonz
Hvað finnst ykkur um nýja Batman myndina The Dark Knight? :D

Sjálfum finnst mér hún algjör snilld og örugglega besta mynd sem ég hef séð =D>

Re: The Dark Knight

Sent: Sun 27. Júl 2008 15:23
af techseven
halldorjonz skrifaði:Hvað finnst ykkur um nýja Batman myndina The Dark Knight? :D

Sjálfum finnst mér hún algjör snilld og örugglega besta mynd sem ég hef séð =D>

Hmm... Besta myndin??

Sá hana í gærkvöldi, fannst hún alveg þokkaleg, Heath Ledger var ljósasti punkturinn, Gary Oldman alltaf góður líka.

Re: The Dark Knight

Sent: Sun 27. Júl 2008 16:24
af hallihg
Hafði rosalegar væntingar og hún stóð undir þeim öllum.

Ledger var ótrúlegur, ég fékk bara hroll og gæsahúð í sumum atriðunum hans. En það má ekki gleyma hinum leikurunum sem falla svolítið í skuggann af hypinu í kringum Heath, Christian Bale er einn besti leikari okkar samtíma að mínu mati. Og Christopher Nolan er ótrúlegur leikstjóri.

Ég þrái þriðju myndina.

Re: The Dark Knight

Sent: Sun 27. Júl 2008 16:25
af halldorjonz
hallihg skrifaði:Hafði rosalegar væntingar og hún stóð undir þeim öllum.

Eyddi innihaldi innleggsins þar sem að það innihélt upplýsingar sem margir myndu telja spoiler. -4x0n

Re: The Dark Knight

Sent: Sun 27. Júl 2008 18:36
af hallihg
halldorjonz skrifaði:
hallihg skrifaði:Hafði rosalegar væntingar og hún stóð undir þeim öllum.

Ledger var ótrúlegur, ég fékk bara hroll og gæsahúð í sumum atriðunum hans. En það má ekki gleyma hinum leikurunum sem falla svolítið í skuggann af hypinu í kringum Heath, Christian Bale er einn besti leikari okkar samtíma að mínu mati. Og Christopher Nolan er ótrúlegur leikstjóri.

Ég þrái þriðju myndina.

Hvaða þriðju mynd ertu að tala um? Átti þetta ekki að vera seinasta myndin? Eða kemur kannski önnur mynd um ?

Nú veit ég ekki. Ég átti bara við að ég þrái að þeir geri þriðju myndina. Hefur Nolan sagt að það verði ekki fleiri myndir?

Mér fannst TDK ekki skilja eitthvað sérstaklega eftir opinn enda fyrir þriðju mynd. Þessi ræða hjá Gordon í lokin gefur blendnar tilfinningar hvað það varðar.

Re: The Dark Knight

Sent: Sun 27. Júl 2008 20:32
af CraZy
Mér fannst hún frábær, kannski ekki besta mynd í heimi einsog imdb heldur fram en mjög ofarlega þó :)

Re: The Dark Knight

Sent: Mán 28. Júl 2008 00:43
af Predator
Frábær mynd og klárlega besta mynd 2008 það sem af er. Allir leikararnir frábærir þó svo að Aaron Eckhart og Heath Ledger hafi staðið upp úr að mínu mati.

Re: The Dark Knight

Sent: Mán 28. Júl 2008 16:15
af Skapvondur
Christian Bale einn besti leikari? Hann muldradi eins og asni i thessum buningi! :P Spoiler Eytt -4x0n

Re: The Dark Knight

Sent: Mán 28. Júl 2008 16:43
af halldorjonz
Skapvondur skrifaði:Christian Bale einn besti leikari? Hann muldradi eins og asni i thessum buningi! :P En samt rosa god mynd en ekki su besta, og mer fannst alveg kostulegt thegar Ledger kom a hjukkufotunum ut ur Sjukrahusinu ad pikka a fjarstyringuna!

já vá það atriði var snilld ahhaha

Re: The Dark Knight

Sent: Mán 28. Júl 2008 16:49
af Halli25
Vinsamlega ekki henda inn spoilers fyrir þá 2 sem eru ekki búnir að sjá hana ennþá :)

einhver stjórnandi þurrka út asap [-o<

Re: The Dark Knight

Sent: Mán 28. Júl 2008 17:03
af Viktor
Já, alls ekki posta spoilers :evil:

Re: The Dark Knight

Sent: Mán 28. Júl 2008 18:29
af DoofuZ
Já, ég er sammála ykkur að þessi mynd er ein af betri myndum sem hafa verið gerðar fyrir utan leiðinlega talsmátann hjá Christian Bale þegar hann var í búninginum :P En varðandi spoilers, er ekki bara hægt að setja inn bbcode fyrir spoilers? Svona svipað dæmi og maður sér t.d. á imdb? Annars geta menn líka bara skrifað HERE BE SPOILERS! eða eitthvað álíka. Nú eða þeir sem eiga eftir að sjá myndina geta bara sleppt því að lesa þræði um hana :D

Re: The Dark Knight

Sent: Mán 28. Júl 2008 18:38
af hallihg
faraldur skrifaði:Vinsamlega ekki henda inn spoilers fyrir þá 2 sem eru ekki búnir að sjá hana ennþá :)

einhver stjórnandi þurrka út asap [-o<

Ef þú átt samt eftir sjá þessa stærstu mynd ársins, þá er kannski sniðugt að vera ekki að skoða þráð sem heitir "The Dark Knight" og inniheldur virkar umræður tæpri VIKU eftir forsýningu!!

Re: The Dark Knight

Sent: Mán 28. Júl 2008 18:52
af KermitTheFrog
hún er frábær.. bjóst alls ekki við svona góðri mynd

Re: The Dark Knight

Sent: Mán 28. Júl 2008 23:50
af ManiO
Næsti sem sendir inn spoiler án þess að gefa góða viðvörun eða lýsir textann t.d. fær aðvörun. Halli, hverjum er ekki sama þótt þetta sé mánuði eða ári eftir frumsýningu, þetta telst bara almenn kurteisi að vera ekki að ræða eitthvað sem spillt gæti fyrir öðrum án þess að vara við.

Re: The Dark Knight [Spoilers be here]

Sent: Mið 30. Júl 2008 13:22
af zedro
4x0n skrifaði:Næsti sem sendir inn spoiler án þess að gefa góða viðvörun eða lýsir textann t.d. fær aðvörun. Halli, hverjum er ekki sama þótt þetta sé mánuði eða ári eftir frumsýningu, þetta telst bara almenn kurteisi að vera ekki að ræða eitthvað sem spillt gæti fyrir öðrum án þess að vara við.

Veistu ég verð bara að vera ósammála þér í þessu máli 4x0n. Þú ert inná spjallþræði sem heitir "The Dark Night" og fjallar þarafleiðandi um myndina sjálfa. Ég meina við hverju býst fólk þegar það
er að smella á link um heitustu bíómynd ársins. „Já þetta mun vera umræða um sýningartíma myndarinna, gæði mynarinnar eða eitthvað annað bull sem engurm er sama um“.
Mér er reyndar sama ef að ég væri nýkominn af frumsýningunni og með brennandi umræðu í huga, beint inná netið til að spjalla við þá sem höfðu séð myndina. Ef fólk vill ekki láta eyðileggja myndina
fyrir sér þá fer það ekki inná „Umræður“ um myndina, trailera fyrir myndina eða Makeing of blabla þætti. Við erum ekki barnapíur internetsins fólk á að geta séð um sig sjálft.

Now back to the movie. WARNING SPOILER OF DOOM
Hvernig var fólk að fíla TwoFace ég persónulega fannst andlitið á honum full gróft, fékk smá terminator feeling þegar ég sá hann.
Eruð þið svo ekki að grínast á twists and turns, brást ekki að þegar mar hélt að eitthvað væri búið þá boom ubeyja dauðans :D

Re: The Dark Knight [Spoilers be here]

Sent: Mið 30. Júl 2008 13:39
af hjortur
Zedro skrifaði:Now back to the movie. WARNING SPOILER OF DOOM
Hvernig var fólk að fíla TwoFace ég persónulega fannst andlitið á honum full gróft, fékk smá terminator feeling þegar ég sá hann.
Eruð þið svo ekki að grínast á twists and turns, brást ekki að þegar mar hélt að eitthvað væri búið þá boom ubeyja dauðans :D

Já ég er nokkuð sammála þér, frekar íkt andlit, ég var alltaf að spá hvernig hann gæti blikkað vinstra auganu og haldið því röku
því það vantaði á hann augnlokin.

En já annars frábær mynd þó að gaurin sem sat hliðiná mér hafi verið að lauma alltaf einum og einum silent(but deadly) alla myndina :|

Re: The Dark Knight [Spoilers be here]

Sent: Mið 30. Júl 2008 16:38
af hallihg
Zedro skrifaði:
4x0n skrifaði:Næsti sem sendir inn spoiler án þess að gefa góða viðvörun eða lýsir textann t.d. fær aðvörun. Halli, hverjum er ekki sama þótt þetta sé mánuði eða ári eftir frumsýningu, þetta telst bara almenn kurteisi að vera ekki að ræða eitthvað sem spillt gæti fyrir öðrum án þess að vara við.

Veistu ég verð bara að vera ósammála þér í þessu máli 4x0n. Þú ert inná spjallþræði sem heitir "The Dark Night" og fjallar þarafleiðandi um myndina sjálfa. Ég meina við hverju býst fólk þegar það
er að smella á link um heitustu bíómynd ársins. „Já þetta mun vera umræða um sýningartíma myndarinna, gæði mynarinnar eða eitthvað annað bull sem engurm er sama um“..

Nákvæmlega. Þetta væri bara kjánalegt. Almenn kurteisi ári eftir frumsýningu að ræða ekki eitthvað sem gæti spillt?! Hey okei, sorry en muniði þarna Titanic 1997, Jack deyr í endann! Úps!!

Re: The Dark Knight [Spoilers be here]

Sent: Mið 30. Júl 2008 16:44
af Halli25
hallihg skrifaði:

EF þú ert að skrifa spoiler alla vega LÁTTU spoiler viðvörun, hefurðu aldrei verið að spá í að fara á mynd og skoða umfjöllun um hana áður? Þessi þráður byrjaði einfaldlega á að hæla myndinni með engum spoilers.

Re: The Dark Knight [Spoilers be here]

Sent: Mið 30. Júl 2008 17:15
af hallihg
faraldur skrifaði:EF þú ert að skrifa spoiler alla vega LÁTTU spoiler viðvörun, hefurðu aldrei verið að spá í að fara á mynd og skoða umfjöllun um hana áður? Þessi þráður byrjaði einfaldlega á að hæla myndinni með engum spoilers.

Ráðlegast er fyrir þá sem hafa ekki séð Dark Knight, að smella á ekki á umræðuþráð sem er um og heitir Dark Knight. Einfalt og auðvelt.

Re: The Dark Knight [Spoilers be here]

Sent: Mið 30. Júl 2008 17:23
af Klemmi
hallihg skrifaði:Ráðlegast er fyrir þá sem hafa ekki séð Dark Knight, að smella á ekki á umræðuþráð sem er um og heitir Dark Knight. Einfalt og auðvelt.

Hjartanlega sammála. Það má alveg búast við því að fólk sé að tala um atriði úr myndinni, enda miklu skemmtilegra að minnast á eitthvað úr myndinni sér til stuðnings ef maður er að hæla eða bölva henni.

Re: The Dark Knight [Spoilers be here]

Sent: Mið 30. Júl 2008 17:27
af Halli25
hallihg skrifaði:
faraldur skrifaði:EF þú ert að skrifa spoiler alla vega LÁTTU spoiler viðvörun, hefurðu aldrei verið að spá í að fara á mynd og skoða umfjöllun um hana áður? Þessi þráður byrjaði einfaldlega á að hæla myndinni með engum spoilers.

Ráðlegast er fyrir þá sem hafa ekki séð Dark Knight, að smella á ekki á umræðuþráð sem er um og heitir Dark Knight. Einfalt og auðvelt.

Stelpan með krullaða dökka hárið drap hann... almenn kurteisi almenn kurteis #-o

Re: The Dark Knight [Spoilers be here]

Sent: Þri 05. Ágú 2008 04:11
af Viktor
hallihg skrifaði:
faraldur skrifaði:EF þú ert að skrifa spoiler alla vega LÁTTU spoiler viðvörun, hefurðu aldrei verið að spá í að fara á mynd og skoða umfjöllun um hana áður? Þessi þráður byrjaði einfaldlega á að hæla myndinni með engum spoilers.

Ráðlegast er fyrir þá sem hafa ekki séð Dark Knight, að smella á ekki á umræðuþráð sem er um og heitir Dark Knight. Einfalt og auðvelt.

Ráðlegast er fyrir þá sem ætla að posta spoilers er að hafa rauðan texta til viðvörunar. Einfalt og auðvelt.

Re: The Dark Knight [Spoilers be here]

Sent: Þri 05. Ágú 2008 09:31
af Demon
hallihg skrifaði:
faraldur skrifaði:EF þú ert að skrifa spoiler alla vega LÁTTU spoiler viðvörun, hefurðu aldrei verið að spá í að fara á mynd og skoða umfjöllun um hana áður? Þessi þráður byrjaði einfaldlega á að hæla myndinni með engum spoilers.

Ráðlegast er fyrir þá sem hafa ekki séð Dark Knight, að smella á ekki á umræðuþráð sem er um og heitir Dark Knight. Einfalt og auðvelt.

Nokkuð sammála þessu, enda lét ég vera að skoða þennan þráð þangað til núna.
Verð annars að vera sammála með two-face, ég átti eitthvernveginn erfitt með að trúa því hvernig andlitið á hékk saman þarna megin.
En þó allt skömminni skárra en tommy lee jones í batman forever.

Re: The Dark Knight [WARNING possible Spoilers]

Sent: Þri 19. Ágú 2008 02:44
af Viktor
Batman "gellan" var sick ljót vá. Heath Ledger var frábær. Mjög góð, en heldur löng mynd.