Síða 1 af 1

Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Fös 09. Maí 2008 18:33
af Viktor
Torrent.is verður aftur skráardeilisíða 16.Maí

Snæbjörn segir niðurstöðuna miður.

http://www.visir.is/article/20080509/FR ... /881478212
http://www.torrent.is

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Fös 09. Maí 2008 18:37
af Bessi
Síðan segir Snæbjörn að þetta hafi í för með sér aukinn kostnað fyrir stefnendur (SMÁÍS) og stefnda (Istorrent). En hann minnist auðvitað ekki á að þetta hefur töluvert meiri kostnað í för með sér fyrir stefnendur, enda þurfa þeir nú að greiða stefnda samtals 900.000 kr í málskostnað. Greyin :(

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Fös 09. Maí 2008 18:38
af CraZy
Gott mál :) Vonum bara að Snæbjörn geri ekki eitthvað heimskulegt til að reyna taka niður síðuna aftur.

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Fös 09. Maí 2008 20:22
af Dr3dinn
Frábært að fá loksins eitthvað úr þessu máli.

Myndi maður telja þetta væri fyrirmynd fyrir framtíðina upp á aðrar síður.

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Fös 09. Maí 2008 22:03
af gumol
Dómurinn hefur ekkert fordæmisgildi hvað varðar skrárskiptaþjóna.

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Fös 09. Maí 2008 22:37
af hallihg
Frábærar fréttir.

gumol skrifaði:Dómurinn hefur ekkert fordæmisgildi hvað varðar skrárskiptaþjóna.


Hví hefur þessi dómsúrskurður ekkert fordæmisgildi eins og aðrir dómsúrskurðir?

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Fös 09. Maí 2008 23:47
af Gúrú
hallihg skrifaði:Frábærar fréttir.

gumol skrifaði:Dómurinn hefur ekkert fordæmisgildi hvað varðar skrárskiptaþjóna.


Hví hefur þessi dómsúrskurður ekkert fordæmisgildi eins og aðrir dómsúrskurðir?



Málinu var frávísað.

Hann var ekki sýknaður.

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Fös 09. Maí 2008 23:55
af coldcut
*texti fjarlægður vegna misskilnings á undirskrift Gúrú*

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Lau 10. Maí 2008 16:02
af Gúrú
Haha, en þú hefðir ekki getað ýtt á back takkann er það?

Sé hvergi breytt :/

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Lau 10. Maí 2008 16:58
af hjortur
Frábært að fá istorrent aftur upp, Vikingbay er engan veigin að gera sig.

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Lau 10. Maí 2008 17:02
af hallihg
Vikingbay er einhvern veginn bara ekki nægilegi nógu stable og jafnvel rekin og Istorrent. Ef allt fer að óskum kemur istorrent aftur upp 16. maí. Það verður semi-undarlegt að logga sig inná gamla istorrent accountinn :D

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Lau 10. Maí 2008 17:05
af Gúrú
Á TVB eru stjórnendur og umsjónarmenn sem eru engan veginn að ná að halda utan um þessa síðu.

Öll torrentin duttu út 4x, þar af 2x eftir að búið var að lofa að þetta myndi ALDREI gerast aftur.

Þetta er bara ./fail.

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Lau 10. Maí 2008 17:46
af gumol
hallihg skrifaði:Hví hefur þessi dómsúrskurður ekkert fordæmisgildi eins og aðrir dómsúrskurðir?

Ég hef reyndar ekki lesið dóminn, en miðað við það sem ég hef lesið í fjölmiðlum var málinu vísað frá afþví höfundarréttarsamtökin sem kærðu eru ekki réttu aðilarnir til að kæra. Núna munu bara Páll Óskar, Warner Brothers eða einhverjir aðrir koma með nýja kæru sem þarf að fara gegnum allt ferlið aftur.

Svo er reyndar hægt að deila um fordæmisgildi dóma yfir höfuð...

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Lau 10. Maí 2008 20:27
af hallihg
Ég skil.

Þannig að hver einasti listamaður (Páll Óskar)/útgefandi (WB) sem verið er að "brjóta" á þarf að kæra sjálfur?

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Lau 10. Maí 2008 20:39
af gumol
já, eins og ég skil þetta

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Lau 10. Maí 2008 21:16
af coldcut
Gúrú skrifaði:Haha, en þú hefðir ekki getað ýtt á back takkann er það?

Sé hvergi breytt :/


æj ég ýtti bara á senda og svo þegar ég sá "Someday" neðst í undirskriftinni þinn þá fór ég beint í "Breyta" svo ég mundi ekki líta út eins og kjáni 8-[

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Sun 11. Maí 2008 10:18
af GuðjónR
gumol skrifaði:Ég hef reyndar ekki lesið dóminn, en miðað við það sem ég hef lesið í fjölmiðlum var málinu vísað frá afþví höfundarréttarsamtökin sem kærðu eru ekki réttu aðilarnir til að kæra.

Hver er þá tilgangurinn með höfundarréttarsamtökum yfir höfuð?

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Sun 11. Maí 2008 13:57
af einzi
Ég skildi þetta þannig að smáís hefðu ekki getað sannað neinar af sínum staðhæfingum nema með einhverjum af því bara rökum.

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Sun 11. Maí 2008 14:36
af gumol
GuðjónR skrifaði:Hver er þá tilgangurinn með höfundarréttarsamtökum yfir höfuð?

Ef við tökum td. Smáis (tekið beint úr samþykktum þeirra):
Að vera sameiginlegur vettvangur fyrir útgefendur, dreifingaraðila og framleiðendur myndefnis sem sýnt er á Íslandi.

Að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart löggjafanum, hinu opinbera, neytendum, erlendum samtökum sama eðlis, myndbandaleigum, fjölmiðlum og öðrum, sem beint eða óbeint eru viðskipta- eða lagalega tengdir dreifingu myndefnis hér á landi.

Að vinna að því markmiði að hafa með því eftirlit, að myndefni sem á boðstólum er hér á landi í sjónvarpi, til útleigu eða sölu sé dreift samkvæmt gildandi lögum.

Að stuðla að samræmingu útgáfumála á myndefni til hagsmuna fyrir neytendur.

Að standa saman að réttaraðgerðum gegn hvers konar skerðingum á lagalegum rétti og öðrum hagsmunum félagsmanna hér á landi.

Að vera ráðgefandi aðili fyrir ýmis hagsmuna- og tæknileg málefni sem viðkoma útgáfu myndefnis.


Ekkert af þessu krefst þess að höfundarréttarsamtökin sem slík þurfi að geta sótt mál fyrir dómstólum í eigin nafni fyrir hönd félaga sinna.

Re: Istorrent málinu vísað frá í hæstarétti

Sent: Sun 11. Maí 2008 20:14
af GuðjónR
gumol skrifaði:Ekkert af þessu krefst þess að höfundarréttarsamtökin sem slík þurfi að geta sótt mál fyrir dómstólum í eigin nafni fyrir hönd félaga sinna.

true...
...en ekkert af ofantöldu bannar þeim það heldur.

Einnig er eftirfarandi grein teygjanleg: "Að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart löggjafanum, hinu opinbera, neytendum, erlendum samtökum sama eðlis, myndbandaleigum, fjölmiðlum og öðrum, sem beint eða óbeint eru viðskipta- eða lagalega tengdir dreifingu myndefnis hér á landi."