Síða 1 af 2

Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 17:25
af birta
Í gær var mér gefið það að ég og Solopungur værum búin að gera samning um að ég myndi kaupa einn hlut frá honum, þar sem dagsetning og staður hafði verið gefin þar sem ég átti að sækja hlutinn. En aðeins nokkrum klukkutímum áður en ég átti að sækja hlutinn var hringt í mig og sagt að ég gæti það ekki þar sem hann hefði fengið hærra boð eftir að við vorum búin að samþykkja mitt verð.

Forvitnin mín beinist nú hvort að þetta er réttlátt eða hvort að maður þarf að skrifa undir einhvern samning eins og Solopungur sagði við mig? :?

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 17:41
af Viktor
Þetta er brot á lögum minnir mig að MrSmith hafi sagt hér um svipað mál, CORRECT ME IF I'M WRONG. Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur.

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 18:21
af Windowsman
væntanlega ekki nema að þessi samningur sé skriflegur en þetta er allavega ekki réttir viðskipta hættir.

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 20:03
af beini
Ég er sammála. ef báðir aðilar hafa samþykkt verðið sem hefur verið gefið og búið er að gefa upplýsingar um hvar eigi að sækja hlutinn þá finnst mér að hluturinn er orðinn þinn.

það er að segja að þetta er munnlegt samþykki milli beggja aðila...

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 20:06
af hsm
Samningar þurfa ekki að vera skriflegir til að standast lög.
En aftur á móti getur verið erfitt að sanna slíka samninga nema að maður hafi vitni að slíku eða tölvupóst frá viðkomandi.
Svo eiga menn ekki að samþykja eitthvað nema þeir ætli að standa við það.

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 21:11
af Klemmi
Að sjálfsögðu myndi maður aldrei fara út í það að kæra svona mál svo mér finnst skipta litlu máli hvort þetta stangist á við lög landsins eða ekki.

Hitt er svo annað mál að mér finnst fólk vera voðalega nískt og lélegt ef það leggst svo lágt að virða ekki munnlegt samkomulag sem komið var fyrir einhverjar smá fjárhæðir. Ef um væri að ræða einhverjar stórar upphæðir sem gætu skipt sköpum til langs tíma litið myndi maður kannski skilja það, en þetta er að öllum líkindum smámunir sem um er að ræða hér.

Svo Solopungur, skammastu þín!

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 21:13
af Dazy crazy
Ég set yfirleitt bara hljóðupptökuna í gang í símanum mínum þegar samningar í gegnum síma eru annars vegar. Er það ólöglegt að taka upp aðra manneskju án vitundar hennar?

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 21:16
af coldcut
Dazy crazy skrifaði:Ég set yfirleitt bara hljóðupptökuna í gang í símanum mínum þegar samningar í gegnum síma eru annars vegar. Er það ólöglegt að taka upp aðra manneskju án vitundar hennar?


jebb kolólöglegt! =/ ætti samt ekki að vera það!

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 21:35
af Dazy crazy
Jæja, ok en ef ég spyr hvort manneskjunni sé sama?

Þarf ég þá að hafa sönnun fyrir því?

Og hvernig virkar það, hvernig á ég að taka upp samþykktina þegar ég er ekki búinn að fá samþykki? =P~

Úff þetta er skrítið, semsagt ég get verið kærður fyrir að taka upp samtal við aðra manneskju ef ég er ekki búinn að fá samþykki, ég get verið kærður fyrir að taka upp manneskjuna að samþykkja ef hún samþykkir ekki og ég get verið kærður þó manneskjan hafi samþykkt ef hún neitar svo. :?: 8-[ :catgotmyballs

Er ég alveg í ruglinu?

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 21:43
af ManiO
Dazy crazy skrifaði:Jæja, ok en ef ég spyr hvort manneskjunni sé sama?

Þarf ég þá að hafa sönnun fyrir því?

Og hvernig virkar það, hvernig á ég að taka upp samþykktina þegar ég er ekki búinn að fá samþykki? =P~

Úff þetta er skrítið, semsagt ég get verið kærður fyrir að taka upp samtal við aðra manneskju ef ég er ekki búinn að fá samþykki, ég get verið kærður fyrir að taka upp manneskjuna að samþykkja ef hún samþykkir ekki og ég get verið kærður þó manneskjan hafi samþykkt ef hún neitar svo. :?: 8-[ :catgotmyballs

Er ég alveg í ruglinu?


Spyrð svo í enda samtalsins hvort aðilinn hafi ekki verið meðvitaður um upptökuna og ekki haft neitt á móti henni.

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 21:44
af Dazy crazy
4x0n skrifaði:
Spyrð svo í enda samtalsins hvort aðilinn hafi ekki verið meðvitaður um upptökuna og ekki haft neitt á móti henni.


Og hann skellir á eða segir nei, þá er ég í djúpum nema eyða henni en þá hef ég ekki samninginn.

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 22:00
af Hjöllz
Notar bara það sama og t.d. Síminn gerir. Þeir segja alltaf í byrjun símatala (allavega þegar hringt er í mig) að öll símtöl séu tekin upp.
Ef að sá sem hringir í þig(eða öfugt) skellir á þegar þú tjáir aðilanum þetta eru örugglega ágætis líkur á að hann/hún myndi ekki standa við sín orð um samning hvort eð er.

Þannig að þú tapar örugglega ekkert á því að segjast vera að taka upp símtalið í byrjun þess.

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 22:16
af zedro
@Hjöllz: Word (Flottur avatar btw :sleezyjoe )

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:21
af solopungur
mÁLIÐ VAR ÉG VAR ALDREI BÚINN AÐ LOFA ÞÉR AÐ ÞÚ MUNDIR FÁ HANA OG ÞAÐ VAR NÚ BPOÐIÐ 50% MEIRA!

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:28
af birta
Ég ágiska nú að þegar er búið að samþykkja um verð og hvenær á að sækja, þá er komið samþykki.

Einnig er 12.000 ekki 50% meira en 10.000 eða minnsta kosti get ég ekki reiknað það út.

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:30
af Dazy crazy
Kannski er solopungur lesblindur og snéri tveimur í 20% óvart við. Ekki dæma menn svona út frá útlitinu.

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:33
af birta
Er ekki alveg viss hvort að ég myndi einhvern tímann taka upp samtöl mín í gegnum símann. Vil ennþá reyna að setja traust mitt á góðmennsku fólks. :D

Er ekki viss hvernig ég get verið að dæma frá útliti þegar ég sé hann ekki, en ég dæmi ekki fólk með lesblindu þar sem ég er sjálf lesblind

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:33
af solopungur
hann bauð mér nú 20 þúsund eftir að ég sagði að 12 væri ekki nóg

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:36
af zedro
solopungur skrifaði:mÁLIÐ VAR ÉG VAR ALDREI BÚINN AÐ LOFA ÞÉR AÐ ÞÚ MUNDIR FÁ HANA OG ÞAÐ VAR NÚ BPOÐIÐ 50% MEIRA!

Rólegur kallinn engin ástæða að öskra. En annars:
birta skrifaði:þar sem dagsetning og staður hafði verið gefin þar sem ég átti að sækja hlutinn

Er þetta rétt pungur? Ef þú ert búinn að gefa stað og stund til að sækja grip þá myndi ég nú telja það vera samning.
En það er nú bara ég. Miða við þessi "læti" í svari þínu þá myndi ég giska á að þú hefðir verið búinn að lofa gripnum,
þó svo að þú hafir ekki notað orðin "samningur" eða "loforð" í samskiptum þínum og þykir mér þetta afar siðlaust
leikur hjá þér. En svona er þetta "Its all about the money!"

Nojh var að taka e. þessu:
birta skrifaði:Einnig er 12.000 ekki 50% meira en 10.000 eða minnsta kosti get ég ekki reiknað það út.

Piff synd og skömm að þetta hafi ekki farið fram í "Til sölu/Óskast" annars væri ég mjög svo til að skella þér
i elífðar straff þaðan en jæja þú er öruggur....í bili.

Piff getur fólk hætt að posta á meðan ég er að semja svar:
solopungur skrifaði:hann bauð mér nú 20 þúsund eftir að ég sagði að 12 væri ekki nóg

Enn og aftur siðlaus sölumennska.

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:39
af birta
þú sagðir við mig að þú ætlaðir að selja þetta á 10.00 kall. ég tók því boði og þú varst sáttur. við tókum númerin hjá hvoru öðru og töluðumst. settum tíma og allt.
en svo hringirðu og segist hafa fengið betra boð og var það 12.000 kall og reyndir síðan að fá meira úr mér meðan frændi þinn vildi 12.000 kall. sem í raun hækkaði minnir mig í 15.000 kall meðan við vorum að tala saman í símanum í gær.
en núna er það 20.000 kall víst?????

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:50
af solopungur
þegar þú varst að tala við mig þá sagði ég þér að bíða meðan ég talaði við frænda minn og sagði við hann svo æjj gleymdu því sel henni þetta bara þá bauð hann 20þúsund og ég braut aldrei loforð sagði aldrei við þig að ég mundi lofa geyma þetta fyrir þig sagði heldur aldrei að ég mundi geyma þetta fyrir þig og þetta var klukkan svona 1 sem ég hringdi í þig og í mínum huga þá er 7 tímar nokkuð mikil tími

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:52
af solopungur
þegar þú varst að tala við mig þá sagði ég þér að bíða meðan ég talaði við frænda minn og sagði við hann svo æjj gleymdu því sel henni þetta bara þá bauð hann 20þúsund og ég braut aldrei loforð sagði aldrei við þig að ég mundi lofa geyma þetta fyrir þig sagði heldur aldrei að ég mundi geyma þetta fyrir þig og þetta var klukkan svona 1 sem ég hringdi í þig og í mínum huga þá er 7 tímar nokkuð mikil tími

Re: Brostin loforð

Sent: Lau 03. Maí 2008 23:55
af birta
Var í prófi klukkan 13.00.
þú hringdir í mig klukkan 16:17 til að vera nákvæmt, var að kíkja í símann.
ég átti að sækja tölvuna 20.00.

ég hringdi í þig áður en ég fór í prófið og þá átti tölvan að vera mín en ekki þegar þú hringdir aftur..

hitt símtalið endaði með að þú segir ,, svona eru viðskiptin."

Re: Brostin loforð

Sent: Sun 04. Maí 2008 14:24
af machinehead
birta skrifaði:hitt símtalið endaði með að þú segir ,, svona eru viðskiptin."


Djöfull hljómar þessi gaur hardcore!!!

Re: Brostin loforð

Sent: Sun 04. Maí 2008 15:35
af elv
Minnir að ég hafi einhvern tíman viðrað þá hugmynd að hafa svona feedback þráð(fínt ef einhver kemur með gott íslensk orð fyrir hann)
þar sem menn geta einmitt deilt reynslu að versla við aðra Vaktara.....en þá þyrftu menn að vera jafn duglegar að tala um farsælar sölur og hæla mönnum þegar við á en ekki bara að drulla á menn.......


Hvað finnst ykkur ?