Síða 1 af 3
Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Lau 19. Apr 2008 21:23
af Viktor
Ok ég vill heyra eitthvað frá fólki sem það er orðið pirrað á að sé ekki gert. Ekki endilega í sambandi við tölvur, bara eitthvað í lífinu EKKI KOMA MEÐ EINHVERJA KALDHÆÐNI PLEEEEZ, það er ekki fyndið.
Svo getur umræða skapast um þetta, og nýtt bæst við
Ég ætla að byrja:
Ekki "taka númer" kerfi í ísbúðinni í Vesturbænum
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Lau 19. Apr 2008 21:30
af hsm
Að það sé ekki búið að henda Íslensku krónunni á bálið.
Og taka upp þá Dönsku
Og reka seðlabankastjórana og henda verðtryggingunni og f.l.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Lau 19. Apr 2008 21:59
af Viktor
Að það sé ekki löngu búið að banna útlendingum með óhreina sakaskrá að koma til landsins.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Lau 19. Apr 2008 22:03
af Gúrú
Að stimpilgjöld séu enn við lýði.
Að það sé ekki löngu búið að lækka bensínverð.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Lau 19. Apr 2008 22:18
af Frikkasoft
að það sé ekki löngu búið að ganga í ESB og taka upp evru
að það sé ekki löngu búið að skipta út seðlabankastjóra og borgarstjóra
að það sé ekki löngu búið að veita skólastyrki en ekki námslán
að það sé ekki löngu búið að afnema verðtrygginguna
að það sé ekki löngu búið að hækka fangelsisdóm yfir nauðgurum og öðrum ofbeldismönnum
að það sé ekki löngu búið að breyta skattakerfinu þannig að við þurfum ekki að bíða í 1 ár eftir að fá borgað til baka ofborgaðan skatt frá ríkissjóði (og það án vaxta)
að það sé ekki löngu búið að gera Reykjavík að meiri hjólreiðaborg
ofl.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Lau 19. Apr 2008 23:15
af hallihg
Frikkasoft skrifaði:að það sé ekki löngu búið að ganga í ESB og taka upp evru
heyr heyr
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 01:17
af urban
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 02:30
af gumol
Að það sé ekki löngu búið að afnema tolla og viðskiptahindranir, allstaðar í heiminum.
Að það sé ekki löngu búið að fá amk. einn mann með viti í borgarstjórn
Að það sé ekki löngu búið að lækka fangelsisdóma yfir burðardýrum og öðrum fórnarlömbum fíknefnaheimsins
Að það sé ekki löngu búið að gera almennilegt vegakerfi á Íslandi
Að það sé ekki löngu búið að gera fjölförnustu gatnamót landsins mislæg
Að það sé ekki löngu búið að eyða útlendingahatri
Að það sé ekki löngu búið að hætta trúboði í skólum
Að það sé ekki löngu búið að breyta höfundalögunum
Að það sé ekki löngu búið að afnema margar tegundir af stefgjöldum
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 11:29
af hsm
gumol skrifaði:Að það sé ekki löngu búið að afnema tolla og viðskiptahindranir, allstaðar í heiminum.
Að það sé ekki löngu búið að fá amk. einn mann með viti í borgarstjórn
Að það sé ekki löngu búið að lækka fangelsisdóma yfir 1 burðardýrum og öðrum fórnarlömbum fíknefnaheimsins
Að það sé ekki löngu búið að gera almennilegt vegakerfi á Íslandi
Að það sé ekki löngu búið að gera fjölförnustu gatnamót landsins mislæg
Að það sé ekki löngu búið að eyða 2 útlendingahatri
Að það sé ekki löngu búið að hætta trúboði í skólum
Að það sé ekki löngu búið að breyta höfundalögunum
Að það sé ekki löngu búið að afnema margar tegundir af stefgjöldum
Ok nr 1Burðardýr eiga ekki að fá einhvern sérstakan díl, en það má nota það til að ná upprunanum.
þ.e.a.s. Fórnarlamb
+uppljóstrun
= Vægur dómur og "það á að gera það freistandi"
Nr 2Fórnarlamb+"he ég segi ekki neitt" og reyna að vera svalur = 20 ár og ekki koma inn fyrir 200mil mæstu 20 árin nema sem lík í veiðafæri
"undanþága sem ég gæti sætt mig við
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 12:10
af gumol
Nei nei, burðardýr eiga bara að fá réttlátan dóm
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 12:23
af GuðjónR
Sammála flestu hér að ofan, gaman að sjá hve þenkjandi fólk er.
Þetta með burðardýrin, ég er ekki viss hvort það eigi að lækka dóma.
Samt stingur það svoltið að sjá, t.d. skútumálið drengina fá 4-9 ára fangelsi meðan þeir sem fjármagna og eru á "toppnum" í dæminu sleppa.
Það er bara alltaf spurning hvað er sanngjarnt og hvað ekki.
Það má líka spyrja sig hversu mörg líf hefðu þessi "saklausu burðardýrs fórnarlömb" lagt í rúst ef þeir hefðu komist upp með smyglið?
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 12:28
af hsm
gumol skrifaði:Nei nei, burðardýr eiga bara að fá réttlátan dóm
Maður þarf alltaf að spá í hvað maður er að græða á því.
Og réttlæti er alltaf huglægt ástand.
Þú gætir alltaf sætt þig við að konan fengi ekki nýtt útlit (vegna þess að þú elskar hana eins og hún er)
En ef þú fengi eins og ég "nýann skjá
þessi þá þá gæti málið horfið öðru vísi út".
Og við viljum alltaf ná upprunanum því að þar liggur vandamálið en ekki hjá burðardýrinu.
Svo er spurninginn alltaf, viljum við ná
upprunanum eða
burðardýrinu það er alltaf spurning .
Fyrir mína parta
Upprunanum
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 14:58
af natti
Þó að dómar yfir burðardýrum yrðu lækkaðir, þá myndi það ekki hjálpa neitt til þess að ná uppsprettunni.
Eina afleiðingin væri sú að áhættan fyrir burðardýr væri minni. Sem myndi leiða af sér að "topparnir" ættu auðveldara með að fá fleiri burðardýr.
GuðjónR skrifaði:Samt stingur það svoltið að sjá, t.d. skútumálið drengina fá 4-9 ára fangelsi meðan þeir sem fjármagna[...]
Það er einmitt málið.
Og sama með gaurinn í færeyjum.
Ef að þetta verður til þess að amk einn aðili hættir við að taka þá áhættu að vera burðardýr. Eða hættir við að taka þá áhættu að geyma fíkniefni fyrir einhverja gamla vini. Þá er það nóg.
Með vægari dómum myndi hugsunarhátturinn breytast í "jújú, ég get svosem alveg geymt þetta /flutt þetta, og ef ég næst þá er ég bara burðardýr og slepp vel."
Því það eru ekki alltaf bara forfallnir fíkniefnaneytendur og aðrir sem eru "djúpt sokknir" sem taka það að sér að vera burðardýr. "Venjulegt" fólk sem vantar kannski bara smá pening er líka dregið með inn í þetta.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 16:43
af Dazy crazy
Allavega tveir í fáskrúðsfjarðarmálinu sem höfðu aldrei notað dóp.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 19:13
af Revenant
Hlutir sem pirra mig:
* Schengen samkomulagið: Ákváðum á einu bretti að gefa upp alla landamæravörslu ef viðkomandi er að koma frá evrópu.
* Andstæða á móti frjálsum innflutningi á landbúnaðarvörum: Afhverju á að refsa allri þjóðinni fyrir sérhagsmuni bænda sem eru annað hvort á styrk frá ríkinu?
* Mótmæli vörubílstjóra: Vilja aka myrkrana á milli án þess að stoppa og stofna þannig sjálfum sér og öðrum í hættu.
* Mótmæli 4x4 manna: Sorry en við höfum enga samúð með mönnum sem eru á stórum jeppum og kvarta undan háu bensínverði.
* Íslendingum sem taka ekki mark á háum vöxtum (nb. þá eiga háir vextir að draga úr eyðslu og hvetja til innlána en Íslendingar hafa greinilega ekki lært það, þeir taka bara nýtt lán og fara til spánar)
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 20:11
af djjason
Revenant skrifaði:Hlutir sem pirra mig:
* Schengen samkomulagið: Ákváðum á einu bretti að gefa upp alla landamæravörslu ef viðkomandi er að koma frá evrópu.
word
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 22:07
af gumol
Revenant skrifaði:* Andstæða á móti frjálsum innflutningi á landbúnaðarvörum: Afhverju á að refsa allri þjóðinni fyrir sérhagsmuni bænda sem eru annað hvort á styrk frá ríkinu?
Afþví það er þjóðhagslega hagkvæmt. Ég er alveg sammála því að það á að leggja þetta niður, en þá verður að gera það allstaðar
Við getum líka ekki gert meiri kröfur til Íslenskra bænda en gerðar eru til bænda þeirra landa sem flytja búvörur til landsins.
Revenant skrifaði:* Mótmæli 4x4 manna: Sorry en við höfum enga samúð með mönnum sem eru á stórum jeppum og kvarta undan háu bensínverði.
Afhverju ekki?
Ég er með eitt líka:
Ég hata þá sem halda að þeir geti sagt fólki sem það þekkir ekkert hvort það þurfi á bíl að halda.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 22:10
af Viktor
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Sun 20. Apr 2008 22:39
af Gúrú
Revenant skrifaði:Hlutir sem pirra mig:
* Schengen samkomulagið: Ákváðum á einu bretti að gefa upp alla landamæravörslu ef viðkomandi er að koma frá evrópu.
Word, word, og word.
Finnst þetta fáránlegt, svo koma allir glæpamennirnir hingað, á veikasta hlekkinn, og fremja glæpi hér þangað til að það á að taka þá hér, þá fara þeir annað..
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 00:00
af gumol
Ég held það sé nú meira um að Íslendingar fremji glæpi á útlendingum en útlendingar á Íslendingum
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 03:23
af djjason
gumol skrifaði:Ég held það sé nú meira um að Íslendingar fremji glæpi á útlendingum en útlendingar á Íslendingum
Jamm.
Er það er spurning hvort að við eigum bara ekki að glíma við okkar íslenzku glæpamenn fyrst, sem fremja glæpi gagnvart Íslendingum (það virðist ekkert vera skortur á því) áður en við byrjum að flytja inn glæpamenn.
Ég er auðvitað að orða þetta dramatískt.Fyrsta skrefið að því er auðvitað að hafa landamærin ekki galopin eins og lappirnar á tælenskri gleðikonu. Schengen samkomulagið er gott að því leiti að íslenska lögreglan hefur aðgang að sameiginlegum gangabanka sem hægt er að nota til þess að leita upp vandræðagemsa. En það dugar skammt ef vandræðagemsarnir geta labbað til og frá landinu eins og þeir séu að leiðina í Kringluna.
Forsendurnar fyrir Schengen samkomulaginu, sem notaðar voru til að fá samþykki almennings, voru þær að fólk gæti ferðast án vegabréfs milli landa. En hvaða máli skiptir það.....þó að þetta samkomulag er í gildi þá ferðast allir með vegabréf eins og áður (því þetta er jú auðvitað eina viðurkenda skilríkið sem gefið er út af ríkinu). Þannig að hver er staðan í dag eftir samkomulagið? Gagnvart íslendingum eru hlutirnir eru alveg eins og þeir voru...nema fólk þarf ekki að draga vegabréfið eins oft upp úr veskinu. Í staðinn geta vandræðagemsar komið hingað eftir hentugleika. Ef þeir eru staðnir að því að brjóta lög þá skreppa þeir bara heim, breyta nafninu, og koma aftur. Ef þeir eru síðan á endanum handsamaðir þá þarf að setja þá í "djeilið" og kostar auðvitað peninga. Við eigum fullt í fangi með íslenzka glæpamenn, engin ástæða að Ísland verði með útibú frá fangelsum úr öðrum löndum Evrópu bara svo að einstaklingar geti "in theory" ferðast án vegabréf milli Amsterdam og Keflavik City.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 08:50
af Dazy crazy
Glæpamenn...
Sumir erlendir glæpamenn eru ekki að taka neina "áhættu" með því að flytja inn dóp. Ef það heppnast verða þeir ógeðslega ríkir og ef þeir nást geta þeir farið í fangelsi og unnið fyrir góðum launum (sem myndu teljast góð í þeirra heimalandi).
Þetta þarf að stöðva.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 13:30
af gumol
Og hvað ætlaru að gera þegar búið er að koma upp vegabréfaskoðuninni aftur? Hvernig á landamæravörðurinn að þekkja "glæpamennina" frá hinum?
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 18:04
af Gúrú
gumol skrifaði:Og hvað ætlaru að gera þegar búið er að koma upp vegabréfaskoðuninni aftur? Hvernig á landamæravörðurinn að þekkja "glæpamennina" frá hinum?
Með gagnabanka.
Re: Hlutir sem á að vera löngu búið að breyta
Sent: Mán 21. Apr 2008 18:19
af ManiO
Gúrú skrifaði:gumol skrifaði:Og hvað ætlaru að gera þegar búið er að koma upp vegabréfaskoðuninni aftur? Hvernig á landamæravörðurinn að þekkja "glæpamennina" frá hinum?
Með gagnabanka.
Og telur þú það raunhæft miðað við aðstæður í sumum af þessum löndum þaðan sem þessir glæpamenn koma?