Síða 1 af 1

Búðir á Spáni ?

Sent: Sun 30. Mar 2008 19:08
af Gummi V.
Sælir :)
ég er að fara til torreveja á spáni eftir um 3 vikur :) vitiði nokkuð um einhverjar góðar tölvubúðir þar ? eða þá í alicante og verðið kannski ekkert súper hátt ?

Re: Búðir á Spáni ?

Sent: Sun 30. Mar 2008 19:20
af kiddi
Gangi þér ofsalega vel að finna tölvubúðir sem eiga nýlegar vörur. Ég var á Spáni, nánar tiltekið Benidorm með viðkomu í Alicante, 2004 - og þá voru þeir 5 árum eftir á í tölvutækninni - og verðin voru ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Re: Búðir á Spáni ?

Sent: Sun 30. Mar 2008 21:42
af Gets
Rafeindabúnaður er almennt töluvert dýrari á Spáni.

Ég var á sömu slóðum 2006 og það sem ég sá af tölvubúnaði var ekkert til að hrópa húrra fyrir og það sem var til kostaði töluvert meira en hér heima.
:cry:

Re: Búðir á Spáni ?

Sent: Mán 31. Mar 2008 15:15
af hagur
Tala nú ekki um þegar evran er í ~122 krónum .....