Síða 1 af 1
Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Fös 28. Mar 2008 14:23
af e-r
Er einhver tölvubúð með svona afborgunarkerfi s.s. að ég vel sjálfur búnaðinn í tölvuna og svo borga ég kannski 20.þús á mánuði í 10 mánuði eða eitthvað þvíumlíkt. Vil helst geta valið sjáfur búnaðinn í tölvuna.
Re: Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Fös 28. Mar 2008 14:27
af GuðjónR
e-r skrifaði:Er einhver tölvubúð með svona afborgunarkerfi s.s. að ég vel sjálfur búnaðinn í tölvuna og svo borga ég kannski 20.þús á mánuði í 10 mánuði eða eitthvað þvíumlíkt. Vil helst geta valið sjáfur búnaðinn í tölvuna.
Ætli flestir séu ekki með Visa-rað, og svo eru einhverjir með tölvukaupalán.
Færð örugglega ekki lán út á andlitið á þér.
Re: Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Fös 28. Mar 2008 15:18
af Windowsman
ég held að nánast allar tölvuverslanir geri þér kleyft að velja í tölvuna þína.
En ég segji eins og Guðjón Vísa rað eða tölvukaupalán.
Re: Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Fös 28. Mar 2008 20:50
af e-r
Ég er tæplega með lánatraust þar sem ég er 14 ára þannig að mar yrði að láta pa eða ma taka þetta. Veit einhver hvernig þessi tölvukaupalán ganga fyrir sig(eða hvað sem þetta heitir) og hvort það séu aðrir kostir í stöðunni?
Re: Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Fös 28. Mar 2008 21:40
af GuðjónR
e-r skrifaði:Ég er tæplega með lánatraust þar sem ég er 14 ára þannig að mar yrði að láta pa eða ma taka þetta. Veit einhver hvernig þessi tölvukaupalán ganga fyrir sig(eða hvað sem þetta heitir) og hvort það séu aðrir kostir í stöðunni?
Besti kosturinn er að fá sér sumarvinnu leggja til hliðar og kaupa sér svo í haust!
Re: Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Fös 28. Mar 2008 22:05
af gumol
Þú færð ekki lán þegar þú ert ekki orðinn 18 ára.
Re: Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Fös 28. Mar 2008 22:26
af Gúrú
Mátt ekki stofna til skulda eins og er... svo gleymdu þessu...
Vinna í sumar
Staðgreiða.
Re: Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Fös 28. Mar 2008 22:37
af GuðjónR
Gúrú skrifaði:Mátt ekki stofna til skulda eins og er... svo gleymdu þessu...
Vinna í sumar
Staðgreiða.
Bergmál?
Re: Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Fös 28. Mar 2008 22:40
af Gúrú
GuðjónR skrifaði:Gúrú skrifaði:Mátt ekki stofna til skulda eins og er... svo gleymdu þessu...
Vinna í sumar
Staðgreiða.
Bergmál?
Satt mál.
Re: Tölvubúðir-Afborganir
Sent: Lau 29. Mar 2008 00:37
af e-r
Hehe.... held að þetta endi bara í því að gamli borgi og ég borgi honum svo í einhverjum skömmtum. Ekkert gaman að deila tölvu með bróður sínum. Annars takk fyrir svörin.