Síða 1 af 1

Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengin kynferðisbrot

Sent: Fös 25. Jan 2008 11:36
af GuðjónR
Litháarnir tveir, sem eru 32 og 28 ára, eiga báðir dóma að baki í heimalandi sínu, meðal annars fyrir fjárkúgun og þjófnað og rán.
Og landið er galopið fyrir þeim..."no question asked".
Ég vildi óska að íslendingar myndu sameinast og mótmæla þessu hyski jafn kröftuglega og þeir mótmæltu valdaráninu í Reykjavík í gær.

Sent: Fös 25. Jan 2008 12:31
af CraZy
..göngum bara í íFí
Orðinn nett pirraður á þessu liði

Re: Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengin kynferðisbrot

Sent: Fös 25. Jan 2008 15:45
af gumol
GuðjónR skrifaði:[...]valdaráninu í Reykjavík í gær.

Alveg magnað hvað vinstri fólk er hörundsárt þegar kemur að borgarstjórn. Ef það fær ekki að vera í stjórn er það bara ólýðræðislegt og valdagræðgi í hinum aðilunum. Það er eins og það ætlist til þess að hægri menn víki bara til hliðar og leyfi þeim að gera það sem þeir vilja.

Ef þú heldur að lýðræðið virki þannig að einn flokkur geti bara eignað sér eitt ráð eins og margir eru að halda fram með Reykjavík þá þarftu að fara aftur í skóla.

Re: Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengin kynferðisbrot

Sent: Fös 25. Jan 2008 15:48
af GuðjónR
gumol skrifaði:
GuðjónR skrifaði:[...]valdaráninu í Reykjavík í gær.

Alveg magnað hvað vinstri fólk er hörundsárt þegar kemur að borgarstjórn. Ef það fær ekki að vera í stjórn er það bara ólýðræðislegt og valdagræðgi í hinum aðilunum. Það er eins og það ætlist til þess að hægri menn víki bara til hliðar og leyfi þeim að gera það sem þeir vilja.

Ef þú heldur að lýðræðið virki þannig að einn flokkur geti bara eignað sér eitt ráð eins og margir eru að halda fram með Reykjavík þá þarftu að fara aftur í skóla.

bwhahahaha ertu að segja að ég sé vinstri maður?
Ef þú heldur að valdaránið sem átti sér stað tengist á einhvern hátt lýðræði þá þarftu að segja skilið við pabbapólitíkina og HÆTTA að láta formatta þig í skóla.

Sent: Fös 25. Jan 2008 16:01
af gumol
Já já, lifum bara í heimsku og blekkingum.

Lýðræðið er auðvitað þannig að háværasti minnihlutinn ræður, ég veit ekki hvað ég var að hugsa þegar ég hélt þessu fram áðan.

Re: Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengin kynferðisbrot

Sent: Fös 25. Jan 2008 16:05
af beatmaster
gumol skrifaði:
GuðjónR skrifaði:[...]valdaráninu í Reykjavík í gær.

Alveg magnað hvað vinstri fólk er hörundsárt þegar kemur að borgarstjórn. Ef það fær ekki að vera í stjórn er það bara ólýðræðislegt og valdagræðgi í hinum aðilunum. Það er eins og það ætlist til þess að hægri menn víki bara til hliðar og leyfi þeim að gera það sem þeir vilja.

Ef þú heldur að lýðræðið virki þannig að einn flokkur geti bara eignað sér eitt ráð eins og margir eru að halda fram með Reykjavík þá þarftu að fara aftur í skóla.
Ef að þú hefur ekkert að athuga við hvernig þessi brenglaði F-D meirihluti var myndaður þá er ekki allt í lagi við siðferðisvitundina hjá þér finnst mér

Re: Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengin kynferðisbrot

Sent: Fös 25. Jan 2008 16:14
af gumol
Ef þér finnst eitthvað meira athugavert við þetta en S-V-F-B samrunan finnst mér þú bara vera hörundsár,

Hérna er gáta:
Hvað er siðferðislega rétt þegar Samfylking, F listi, Vinstri grænir og Framsóknarflokkurinn gerir það en siðferðislega rangt þegar Sjálfstæðisflokkur og F listi gera það?

Re: Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengin kynferðisbrot

Sent: Fös 25. Jan 2008 16:20
af Daz
gumol skrifaði:Hérna er gáta:

Hvað er siðferðislega rétt þegar Samfylking, F listi, Vinstri grænir og Framsóknarflokkurinn gerir það en siðferðislega rangt þegar Sjálfstæðisflokkur og F listi gera það?

Fyrra valdaránið var framið í skugga málefnaágreinings milli hinna tveggja ríkjandi flokka. Í seinna skiptið var ekki um slíkt að ræða. Sá aðili sem sat utan stjórnar í fyrra skiptið bauð öðrum þeirra sem var í stjórn bjargarleið frá þeirri stefnu sem komin var og ljóst var að stefndi í óefni. Í seinna skiptið var einum aðila að stjórninni boðnir gull og grænir skógar (eða hvað kallast þegar tæpt 5% fylgi skilar borgarstjórastól OG öllum málefnum á málefnaskrá).

Ég er svosem ekkert sérstaklega mikill "vinstri" eða "hægri" maður, en mér þykir þessi síðasta breyting ótrúlega mikill viðbjóður. Spilling, valdagræðgi eða hreinlega fégræðgi (miklir peningar í húfi að geta skipað meirihluta nefndarsæta og formennska nefnda).

Gleymum svo ekki að uþb. 25% borgarbúa styðja þessa borgarstjórn, sem sýnir að stór hluti sjálfstæðismanna styður hana ekki.

Sent: Fös 25. Jan 2008 16:55
af beatmaster
Ég ætlaði að fara að svara gátunni hjá þér gumol en Daz svaraði nokkurnveginn orðrétt það sem að ég ætlaði að skrifa (Takk Daz :))

:arrow: Það sem að ég skil ekki er afhverju það kemst ekki í heimsfréttirnar að maður nýstiginn út af geðveikrarhæli skuli vera gerður að borgarstjóra í höfuðborg evrópulands til að svala valdagræðgi 7 hálfvita sem að voru búnir að drulla upp á bak í pólitík fyrir rúmum 100 dögum...

Sent: Fös 25. Jan 2008 17:00
af GuðjónR
Akkúrat!.
Við verðum bara að átta okkur á því að Ísland er ekki lýðræðisríki.
Ísland var það kannski í kringum 1944 en það hefur fjarað heldur betur undan þeim hugsunum.

Í síðustu kosningum kaus ég D-listan og aðalástæðan var sú að mér fannst R-listinn búinn að vera "nógu" lengi við völd.
Mér fannst valdarán Dags vindhana & co með siðspilltum Birni þvottabirni Inga ömurlegt.
Og hvernig kjaftaskurinn og lýðskrumarinn Gísli Martini og restin af flokknum stungu Villa bitra í bakið var ennþá ömurlegra að horfa uppá.

Verð samt að segja að gjörgningur F-lista og D-lista með Villa bitra og Ólafi geðhvarfasjúka Magnússyni toppar allt sem ég hef séð áður.
Að geta og hafa geð í sér að setjast í stólana undir þessum formerkjum er bara óskiljanlegt.

Held að Villi bitri og Jónina bitra Ben gætu átt vel saman.
Bæði bitur og hefnigjörn.
Spurning hvernig Ólafur Psycho passar inní það samband.

Sent: Fös 25. Jan 2008 17:27
af beatmaster
Takk takk, það brýnasta sem að hægt er að gera með peninga Reykjavíkurborgar er sem sagt þetta :evil:

Sent: Fös 25. Jan 2008 18:23
af GuðjónR
Það er ekki hægt að bæta leikskólamálin (á tvö börn á leikskólaaldri sem eru búin að bíða í 5 mánuði eftir plássi) en svo er hægt að spreða hundruðum milljóna í svona GLÆSIVILLUR.

Það voru mistök að sleppa Ólafi út af kleppi og ennþá meiri mistök að hleypa honum í stólinn (reyndar er einn stóll sem hann mætti fara í mín vegna).

Sent: Fös 25. Jan 2008 19:13
af Daz
Ég held að menn ættu nú að róa sig aðeins með ummæli um veikindi Ólafs F. Við þurfum nú ekki að láta eins og spjall.barnaland.is hérna...

Annars finnst mér hreinlega þau völd sem Framsóknarflokkurinn og nú Frjálslyndir hafa fengið fyrir sín örfáu prósent hreinn brandari. Sjáið t.d. að í síðustu 2 borgarstjórnum átti Framsókn mann í 50% af öllum nefndum.

Var þetta ekki annars þráður um aukningu ofbeldisglæpa á Íslandi/Reykjavík og tengsl þess við útlendinga? Þurfum við ekki bara að gera eins og fólkið í Vogum og taka okkur saman sem borgarar að berjast gegn þessu, augljóst að yfirvöld vilja ekki auka löggæslu eða eftirlit með innflytjendum :?

Sent: Fös 25. Jan 2008 19:19
af GuðjónR
Daz skrifaði:Var þetta ekki annars þráður um aukningu ofbeldisglæpa á Íslandi/Reykjavík og tengsl þess við útlendinga?

Jú...en gumol ákvað að taka þetta aðeins "offtopic" þar sem hann hefur mikið dálæti af austantjalslýð.
Ætli kærastan hans heiti Svetlana?

Sent: Fös 25. Jan 2008 19:51
af gumol
Hætti fyrri meirihlutinn vegna málefnaágreinings? REI málið var held ég bara eina málið sem flokkana greindi eitthvað alvarlega á um, ekki það að þeir hefðu náð að ræða það mál til enda því Björn Ingi var farinn.

Björn Ingi minnir mig að hafi sagt að hann hafi skipt vegna átaka innan Sjálfstæðisflokksins. Það breytir því auðvitað ekki að hann ákvað að fara í samstarf við 3 aðra flokka sem eru svoleiðis langt frá því að vera jafn samstíga og Sjálfstæðisflokkurinn þegar hann var "sundraðastur".

Stjórnarskiptin núna eru einfaldlega afþví Ólafur F. sér að stefna F lista (sem er hægriflokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn) nær mun betur fram að ganga ef hann er með Sjálfstæðismönnum í stjórn heldur en með 3 miðju og vinstriflokkum.

Ég er alls ekki að segja að þetta sé einhver frábær stjórn. Þvert á móti er ég hudfúll með Sjálfstæðisflokkinn í borginni fyrsta eina og hálfa ár kjörtímabilsins þegar hann var í stjórn með Framsókn, hann var ekki að gera margt gott (þó hann hafi reyndar verið að gera betri hluti en R-listinn). En að kalla aðferðinni sem var beitt við þessi stjórnarskipti öllum illum nöfnun en finnast skiptin fyrir rúmum þrem mánuðum vera gott mál er ekkert nema hræsni.

GuðjónR: Hvernig væri að hætta með þennan hroka og einbeita sér í staðin að málefnalegum svörum?

Viðbót:
Hérna getum við séð dæmi um hvað fráfarandi borgarstjórn var samstíga og lítill ágeiningur meðal þeirra. Þetta er úr fundargerð fundarins í gær.
"Þá er lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. í dag, að umsögn til Húsafriðunarnefndar ríkisins varðandi friðun húsanna, sbr. erindi nefndarinnar frá 9. þ.m.
Umsögnin samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

Loks er lagt fram til kynningar bréf borgarstjóra til menntamálaráðherra vegna málsins, dags. í dag.

Óskar Bergsson óskar bókað: [nýji framsóknarmaðurinn]

Ég óttast að með þessari samþykkt sé borgarráð að setja í uppnám allt deiliskipulag Laugavegar og stjórnsýsla Reykjavíkurborgar verði fyrir álitshnekki. Ég tel að deiliskipulagið útiloki ekki þann möguleika að útlit húsanna taki mið af götumyndinni og því hefði verði heppilegra að halda sig við samþykkt deiliskipulag sem unnið hefur verið samkvæmt öllum lögformlegum leiðum.

Svandís Svavarsdóttir óskar bókað: [Vinstri grænum]

Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði tekur undir framkomna tillögu um kaup borgarinnar á Laugavegi 4 og 6 enda er hún í fullu samræmi og samhljóða tillögu sem undirrituð flutti í borgarráði í ágúst 2006. Um er að ræða verðmæti sem felast í sögu, samhengi, götumynd og umhverfisgæðum sem verða aldrei metin til fjár. Almenn umræða er augljóslega að snúast á sveif með slíkum sjónarmiðum en því ber að fagna.

Dagur B. Eggertsson óskar bókað: [Samfylkingu]

Samþykktin á þessu formi er ófullnægjandi enda hvergi getið um fjármagnsskuldbindingar eða hvaða mörk er eðlilegt að setja í þeim efnum.

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna óska bókað:

Við áréttum að þessi samþykkt felur ekki í sér fordæmi fyrir önnur hús á svæðinu og leggjum áherslu á heildarskoðun gamalla húsa í miðborginni, sérstaklega við Laugaveg.

Það sem er innan hornklofa eru mínar viðbætur

Sent: Fös 25. Jan 2008 20:24
af GuðjónR
gumol skrifaði: en finnast skiptin fyrir rúmum þrem mánuðum vera gott mál er ekkert nema hræsni.

Og hver segir að það sé gott mál?

Sent: Fös 25. Jan 2008 20:35
af gumol
GuðjónR skrifaði:Og hver segir að það sé gott mál?

Ég var ekki að tala um þig þarna. Það eru sumir sem gera það, margir af ungum stuðningsmönnum V S og B lista td.

Kanski réttara að segja "en finnast skiptin fyrir rúmum þremur mánuðum í lagi"

Sent: Fös 25. Jan 2008 21:00
af Revenant
Það sem mér finnst skrítnast er afhverju Ísland er í landamærabandalagi við lönd sem hafa engin raunveruleg landamæri að okkur.

Sent: Fös 25. Jan 2008 21:05
af Daz
Revenant skrifaði:Það sem mér finnst skrítnast er afhverju Ísland er í landamærabandalagi við lönd sem hafa engin raunveruleg landamæri að okkur.

Þannig að við ættum eingöngu að eiga landamærabandalag við okkar næstu nágranna?
Þetta er bara ein af afleiðingum þessa stóra evrópusamnings okkar, sumt er gott og sumt er slæmt.

Sent: Lau 26. Jan 2008 13:30
af ÓmarSmith
Gumol er mjög svo greinilega XD maður eins og pabbi sinn og GuðjónR er það ekki..

End of story.


Get a room for this.

Sent: Sun 27. Jan 2008 03:50
af gumol
Málefnalegu commentin hrúast inn

Sent: Sun 27. Jan 2008 10:32
af GuðjónR
gumol skrifaði:Málefnalegu commentin hrúast inn

lol :P

Sent: Sun 27. Jan 2008 10:47
af Daz
gumol skrifaði:Málefnalegu commentin hrúast inn

Rétt. Bætum hérna einu við. Þú talar um háværann minnihluta, sem mælist jafnvel 75%.
gumol skrifaði:Já já, lifum bara í heimsku og blekkingum.

Eins gott að við erum þá öll að gera það :P

Sent: Sun 27. Jan 2008 19:58
af gumol
Ha? Ég talaði aldrei um háværann minnihluta sem mældist 75%

Sent: Sun 27. Jan 2008 20:51
af elfmund
Daz skrifaði:
gumol skrifaði:Málefnalegu commentin hrúast inn

Rétt. Bætum hérna einu við. Þú talar um háværann minnihluta, sem mælist jafnvel 75%.
gumol skrifaði:Já já, lifum bara í heimsku og blekkingum.

Eins gott að við erum þá öll að gera það :P


hvaða mælingar eru það??

skoðanakannanir á visir.is ?

upphaflega var Sjálfstæðisflokkurinn í stjórn með Framsókn, allir voru sáttir
svo drulla Björn Ingi og Villi Volgi upp á bak og það kemst upp

Björn Ingi sveik svo lit og fór yfir og myndar nýjan meirihluta og stendur uppi sem "siðferðislegur sigurvegari" þegar hann er klárlega viðbjóður og algjör naðra

svo þegar Villi Volgi beitir sömu taktík og Björn Ingi þá fara allir að grenja og kalla hátt : "hvar er siðferðið í pólitík" ?????

er ég klikkaður eða er fólk orðið almennt alveg klikkað?

ég vil ekki meina að það sem er í gangi núna sé í lagi.... langt í frá, en COME THE FUCK ON... þetta er á engan hátt "verra" núna heldur en síðast

borgarstjórnarmál eru í rúst... nú þurfum við bara að slaka á og leyfa þessum meirihluta að ná jafnvægi

og ps. ég þoli ekki hvað þetta spjallborð er uppfullt af rasisma