Síða 1 af 2
Tölvutækni leitar að starfsmanni
Sent: Sun 20. Jan 2008 23:33
af Ripper
Sælir vaktarar!
Okkur hjá Tölvutækni vantar góðan liðsstyrk til okkar í fulla vinnu. Ef þú ert 20 ára eða eldri tölvusnillingur eða þekkir einhvern slíkan endilega skoðaðu þetta þá betur!
Nánari upplýsingar á
http://www.tolvutaekni.is/starfsumsokn.php
Kveðja Pétur,
petur@tolvutaekni.is
Sent: Mán 21. Jan 2008 09:56
af ÓmarSmith
600.000 í Fastkaup.
Reyki þegar mér hentar
Drekk kaffi eins og svelgur
Er á sakaskrá og bíllinn var gerður upptækur
Á ég samt ekki sjéns ?
Sent: Mán 21. Jan 2008 10:03
af Daz
ÓmarSmith skrifaði:600.000 í Fastkaup.
Eftir skatt vona ég!
Sent: Mán 21. Jan 2008 10:13
af Ripper
ÓmarSmith skrifaði:600.000 í Fastkaup.
Reyki þegar mér hentar
Drekk kaffi eins og svelgur
Er á sakaskrá og bíllinn var gerður upptækur
Á ég samt ekki sjéns ?
Það er hægt að líta framhjá þessum smáatriðum og launin skipta ekki máli ef þig vantar vinnu! sennilega öflugasti sölumaður á landinu!
Sent: Mán 21. Jan 2008 11:21
af ÓmarSmith
hehe
Gæti eflaust selt bara fyrirtækið ef ég sæi fram á góða sölu.
En fyrir alla aðra þá mæli ég eindregið með þessu. Hver vill ekki vera að vinna með meisturum á borð við Pésa og Klemmann.
Góð stemmning, alltaf kaffi á kanntinum, Subway í næsta nágrenni, og svo síðast en ekki langsíðast, lang besta tölvu verslunin á klakanum
[ sorry þið hinir, en maður verður að halda með e-m. .þetta er eins og enski boltinn ]
Sent: Þri 22. Jan 2008 18:10
af halldorjonz
ert þú að vinna í eitthverjari tölvuverslun ómarsmith?
eða við hvað vinnuru
Sent: Þri 22. Jan 2008 18:19
af Dazy crazy
*Einhverri*
Sent: Þri 22. Jan 2008 18:47
af Klemmi
Ómar er og hefur alltaf verið módel, en samt sem áður að vinna hjá Símanum inn á milli verkefna.
Sent: Þri 22. Jan 2008 22:44
af GuðjónR
Fæ ég vinnu ? Ég gæti verið sarfsmaður á plani....
Sent: Mið 23. Jan 2008 20:55
af Ripper
GuðjónR skrifaði:Fæ ég vinnu ? Ég gæti verið sarfsmaður á plani....
Sorry Guðjón, en Klemmi er starfsmaður á plani og sér um öll skítverkin sem fylgja því starfi!
En annars vil ég taka það fram að nýr snillingur að nafni Svanur hefur verið ráðinn inn til okkar, þannig að við erum vel mannaðir eins og er!
Sent: Mið 23. Jan 2008 21:40
af Daz
Ripper skrifaði:GuðjónR skrifaði:Fæ ég vinnu ? Ég gæti verið sarfsmaður á plani....
Sorry Guðjón, en Klemmi er starfsmaður á plani og sér um öll skítverkin sem fylgja því starfi!
Hehe, Klemmi einmitt fór með tölvuna mína út á plan þegar ég keypti hana hjá ykkur
Sent: Mið 23. Jan 2008 22:33
af BO55
Smá quote frá síðunni: "Góður í mannlegum samskiptum, reyklaus og hafa bílpróf."
Bílpróf? *hóst*
Sent: Mið 23. Jan 2008 22:38
af GuðjónR
Ripper skrifaði:GuðjónR skrifaði:Fæ ég vinnu ? Ég gæti verið sarfsmaður á plani....
Sorry Guðjón, en Klemmi er starfsmaður á plani og sér um öll skítverkin sem fylgja því starfi!
En annars vil ég taka það fram að nýr snillingur að nafni Svanur hefur verið ráðinn inn til okkar, þannig að við erum vel mannaðir eins og er!
hehehehehe góður!!! (alltaf sárt að láta hafna sér)
Vil bara nota tækifærið og óska ykkur góðs gengis með nýja starfsmanninn í "þjálfun".
Fékkstu hann í gegnum vaktina? eða pikkaðir þú hann upp á næsta bar?
Sent: Mið 23. Jan 2008 22:59
af Klemmi
BO55 skrifaði:Góður í mannlegum samskiptum
Ástæðan fyrir því að við höfðum ekki samband við þig af fyrra bragði
Sent: Mið 23. Jan 2008 23:33
af GuðjónR
En ripper/klemmi...úr einu í annað...ertu að hætta að selja laptop?
Mér sýnist svo á síðunni þinni að það séu bara tvæ eftir
...annaðhvort ertu að selja svona grimmt....bókstaflega undan þér
eða hætta með laptops...
Sent: Fim 24. Jan 2008 13:20
af CraZy
Ég held að Ómar hefði gert góða hluti hjá ykkur,
það er ekki hægt að segja nei við svona gaur
Sent: Fim 24. Jan 2008 15:35
af elv
Það liggur við að maður sparki konunni og snúist
Sent: Fim 24. Jan 2008 15:48
af einzi
Verandi nörd eins og ég er, þá finnst mér Ómar í StarTrek búninginum meira sexy. grrr
Sent: Fim 24. Jan 2008 15:49
af GuðjónR
Miðað við nautnarsvipinn þá ætla ég rétt að vona að það hafi verið KVK sem tók þessa mynd af honum.
Sent: Fim 24. Jan 2008 16:34
af Viktor
Ómar, hvar er tanið?
Sent: Fim 24. Jan 2008 17:31
af TechHead
Sent: Fim 24. Jan 2008 18:24
af GuðjónR
bwahahahahaha alltaf batnar það!
ÓmarSmith kominn til að frelsa oss frá öllu íllu!
Sent: Fim 24. Jan 2008 18:46
af Zorba
H
Sent: Fim 24. Jan 2008 18:47
af Kristján Gerhard
Ómar er nú svolítið líkur breska fótboltaflóninu Davíð Beckham.
Sent: Fim 24. Jan 2008 19:18
af GuðjónR
Kristján Gerhard skrifaði:Ómar er nú svolítið líkur breska fótboltaflóninu Davíð Beckham.
Ómar er miklu flottari...