Síða 1 af 2

Skaupið '07

Sent: Mán 31. Des 2007 23:24
af Viktor
Hvað fannst ykkur um skaupið? Ég verð nú að segja að það olli vonbrigðum, það var ekki alslæmt en djöfull var þetta "Lost" með útlendingana leiðinlegt. Jón Gnarr og Þorsteinn standa alltaf fyrir sínu.

Sent: Mán 31. Des 2007 23:26
af SolidFeather
Fóstbræðra crewið hélt þessu uppi.

slapt

Sent: Mán 31. Des 2007 23:26
af tomas52
sammála en það sem maður fattaði var skondið

Sent: Mán 31. Des 2007 23:29
af depill
Já sammála því sem er verið að segja hér, basicly þetta Lost dæmi var alveg 0% fyndið. Samt í því samhengi fannst mér Kalla Bjarna refrenceið soldið fyndið.

En í heildina fannst mér þetta bara mjög gott og töluvert betra en í fyrra, en djöfull ætla ég aldrei að versla við REMAX, hvaða hálfvitar borga 3 milljónir fyrir þetta og splitta upp skaupinu.

Sent: Mán 31. Des 2007 23:29
af GuðjónR
Negrinn á þinginu fékk mig til að brosa...

Sent: Þri 01. Jan 2008 00:35
af Viktor
GuðjónR skrifaði:Negrinn á þinginu fékk mig til að brosa...

HAHAHA það var snilld. Eins og ég segi þetta var ekki alslæmt en rosalega voru samt léleg atriði þarna á köflum.

Svo skiptist landið í tvo hópa, þá sem finnst skaupið kosta of mikið, og þá sem eru á móti dýrum auglýsingum á milli skaupsins.

Sent: Þri 01. Jan 2008 02:10
af vldimir
3/10.

Árni Johnsen og þarna þingmaðurinn sem var alltaf að detta inn og út var eina sem hélt þessu skaupi uppi.

Allt "production" þeas myndataka og almenn gerð skaupsins var til fyrirmyndar og á Ragnar Bragason skilið hrós fyrir það - handritið og húmorinn var einfaldlega ekki nógu mikill og það sem var verst við þetta skaup var að það var ekki nógu beinskeitt.

Þetta á að vera móðgandi og sjokkerandi á sinn hátt og var það bara því miður ekki.

Sent: Þri 01. Jan 2008 02:25
af depill
Ohh common, mér fannst Geir Ólafss atriðið algjört gull.

Og ég hef bara þannig húmor að mér fannst Hitlers atriðið MJÖG fyndið, en já held klárlega að Geir Ólafs hafi staðið uppúr, sérstaklega miðað við hvað viðtal við hann og Erp situr ofarlega í hausnum á manni, þessi gæi er aðeins of misheppnaður

Sent: Þri 01. Jan 2008 04:59
af tomas52
depill.is skrifaði:En í heildina fannst mér þetta bara mjög gott og töluvert betra en í fyrra, en djöfull ætla ég aldrei að versla við REMAX, hvaða hálfvitar borga 3 milljónir fyrir þetta og splitta upp skaupinu.


kostaði auglýsinginn ekki 11 millur?

Sent: Þri 01. Jan 2008 05:14
af halldorjonz
tomas52 skrifaði:
depill.is skrifaði:En í heildina fannst mér þetta bara mjög gott og töluvert betra en í fyrra, en djöfull ætla ég aldrei að versla við REMAX, hvaða hálfvitar borga 3 milljónir fyrir þetta og splitta upp skaupinu.


kostaði auglýsinginn ekki 11 millur?


nei 3

Sent: Þri 01. Jan 2008 05:53
af Arnarr
nei lámarkið var 3 mill fyrir auglýsinguna, en þeir borgðuð mun meira!

Sent: Þri 01. Jan 2008 08:06
af depill
Arnarr skrifaði:nei lámarkið var 3 mill fyrir auglýsinguna, en þeir borgðuð mun meira!


Nú með einhver sources á því, einhvern megin finnst mér líklegt að þeir hafi bara borgað 3 milljónir fyrir þetta, þar sem það var enginn samkeppni um þetta pláss. Þú borgar varla meira bara til að borga meira.

Spurning samt hvað kostaði að framleiða svo auglýsinguna.

Sent: Þri 01. Jan 2008 19:41
af biggi1
"það vill hvortið er einginn hlusta á þig, þú ert bara mella" :lol:

fyndnast þegar jón gnarr reif tuskudúkkuna í tætlur

"ég er bara að vernda geðheilsu krakkana mína hahahahaha!"

Sent: Mið 02. Jan 2008 11:05
af einzi
3/10 - fannst það frekar slakt, nokkrum sinnum sem ég ætlaði að hætta að horfa en þá poppaði árni upp og þá hélt maður að eitthvað skemmtilegt færi nú að gerast. Einnig fannst mér svertinginn á alþingi nokkuð góður en hitlersdjókið fannst mér svartasti punkturinn, og þar á undan þessi hræðilega REMAX auglýsing.

en hins vegar fannst mér KB auglýsingin algjört met, "oh thats your name. I thought you had something stuck in your throat" tíhí

Sent: Mið 02. Jan 2008 11:46
af beatmaster
Mér er skapi næst að blogga bara um þetta álit ykkar á skaupinu :P

Mín persónulega skoðun er sú að ef að fólk fílaði þetta skaup ekki, þá einfaldlega nær það ekki að skilja kaldhæðni/háðsádeilu :!:

Sent: Mið 02. Jan 2008 13:18
af einzi
beatmaster skrifaði:Mér er skapi næst að blogga bara um þetta álit ykkar á skaupinu :P

Mín persónulega skoðun er sú að ef að fólk fílaði þetta skaup ekki, þá einfaldlega nær það ekki að skilja kaldhæðni/háðsádeilu :!:


Hvernig átti ég að vita að þetta væri kaldhæðni... það vantaði :arrow:

Sent: Mið 02. Jan 2008 13:25
af beatmaster
einzi skrifaði:Hvernig átti ég að vita að þetta væri kaldhæðni... það vantaði :arrow:
Mynd

Sent: Mið 02. Jan 2008 18:18
af gumol
Tvímælalaust eitt besta skaup í mörg ár.

Hvort það var gott eða ekki er kanski önnur spurning, en það var amk. betra en flest önnur frá síðustu árum.

Sent: Mið 02. Jan 2008 18:42
af hagur
Mér fannst þetta bara fínt skaup. Nokkur atriði sem mér fannst helvíti góð og hitta beint í mark, t.d maðurinn sem talaði baugsmál, landssamband bloggara, samband íslenskra auðmanna (eða hvað sem það kallaðist), Björn Ingi og Villi í "Tekinn" o.fl. ofl.

Þetta Lost atriði fannst mér sniðugt í byrjun en það var alltof langt og veigamikið. Get alveg ímyndað mér alla þá sem ekki fylgdust með Lost og skildu ekki upp né niður í þessu, því ekki var þetta atriði beint fyndið.

Sent: Mið 02. Jan 2008 19:02
af Viktor
beatmaster skrifaði:Mín persónulega skoðun er sú að ef að fólk fílaði þetta skaup ekki, þá einfaldlega nær það ekki að skilja kaldhæðni/háðsádeilu :!:


Nei. Fólk sem fýlaði þetta ekki þolir ekki langdregin og leiðinleg atriði með ömurlegum leikurum í einhverju "Lost" þema sem enginn horfir á.

Sent: Mið 02. Jan 2008 19:39
af GuðjónR
Viktor skrifaði:Nei. Fólk sem fýlaði þetta ekki þolir ekki langdregin og leiðinleg atriði með ömurlegum leikurum í einhverju "Lost" þema sem enginn horfir á.
Akkúrat! hver fílar þetta LOST rugl!

Sent: Mið 02. Jan 2008 21:06
af CraZy
GuðjónR skrifaði:
Viktor skrifaði:Nei. Fólk sem fýlaði þetta ekki þolir ekki langdregin og leiðinleg atriði með ömurlegum leikurum í einhverju "Lost" þema sem enginn horfir á.
Akkúrat! hver fílar þetta LOST rugl!

hey! Lost er best ;)

Sent: Mið 02. Jan 2008 21:08
af GuðjónR
CraZy skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Viktor skrifaði:Nei. Fólk sem fýlaði þetta ekki þolir ekki langdregin og leiðinleg atriði með ömurlegum leikurum í einhverju "Lost" þema sem enginn horfir á.
Akkúrat! hver fílar þetta LOST rugl!

hey! Lost er best ;)

ojjj...horfði á 2/3 af seríu eitt...þá var þetta í tómu tjóni nennti ekki meir.

Sent: Mið 02. Jan 2008 23:29
af CraZy
GuðjónR skrifaði:
CraZy skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Viktor skrifaði:Nei. Fólk sem fýlaði þetta ekki þolir ekki langdregin og leiðinleg atriði með ömurlegum leikurum í einhverju "Lost" þema sem enginn horfir á.
Akkúrat! hver fílar þetta LOST rugl!

hey! Lost er best ;)

ojjj...horfði á 2/3 af seríu eitt...þá var þetta í tómu tjóni nennti ekki meir.

pff.. kláraðiru ekki einusinni season 1? þú ert að missa af öllu, season 2 og 3 eru magnaðar.
Get ekki beðið eftir 4 :D

Sent: Mið 02. Jan 2008 23:36
af Gets
Mér fannst skaupið ágætt og hló að flestu :lol: en fannst ekki gott að “þema” skaupsins skyldi vera þetta lost dæmi en það olli því þó að ég fékk góða pásu á hlátrinum á meðan það var sýnt :(