Síða 1 af 1

„w00t“ valið orð ársins

Sent: Fim 13. Des 2007 10:09
af gunnargolf
Netleikjaáhugamenn munu vísast fagna því mjög að bandaríska orðabókin Merriam-Webster hefur valið „w00t“ orð ársins. Í netheimum er þetta orð notað til að tjá gleði eða hrósa sigri, og bar það afgerandi sigurorð af öðrum orðum í vali á því orði sem helst var einkennandi fyrir 2007. Valið fór fram á netinu.

Framkvæmdastjóri Merriam-Webster, John Morse, sagði „w00t“ vel til fundið því að það sameinaði duttlunga og nýja tækni.

„Það sýnir vel þá áhugaverðu hluti sem eru að gerast í tungumálinu. Þetta er orð sem hefur orðið til einvörðungu vegna þess að samskipti eru orðin rafræn,“ sagði Morse.

Orðið „woot“ kom reyndar fyrir í þeirri frægu kvikmynd Pretty Woman, sem gerð var 1990, í atriði þegar Júlía Roberts hrópar það til að hvetja pólóleikara, hástéttarvinum sínum til mikillar furðu.

En meðal netverja er orðið stafsett með tveim núllum í staðinn fyrir tvö o, en algengt er að á netinu séu tölustafir notaðir í stað bókstafa sem þeir líkjast, eins og til dæmis þegar 3 kemur í staðinn fyrir E.


http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/200 ... rd_arsins/

Þetta er magnað, ég vissi ekki einu sinni að orð ársins væri valið, hvað þá að það þyrfti ekki einu sinni að vera alvöru orð.

Hver er skoðun ykkar, er vel valið? Hvað finnst ykkur að ætti að vera orð ársins?

Sent: Fim 13. Des 2007 10:31
af ManiO
Óþarfi að hafa tvo þræði um þetta. Hér er fyrri þráðurinn ef menn vilja ræða þetta frekar http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=16295 .

Þræði læst.