Síða 1 af 3

TheVikingBay.org

Sent: Lau 01. Des 2007 17:23
af halldorjonsson
Nýr íslenskur torrenvefur, með yfir 3þúsund skráða á einum degi.

http://www.TheVikingBay.org

Skemmtið ykkur, það þarf samt kennitölu til að nýskrá sig!

Re: TheVikingBay.org

Sent: Lau 01. Des 2007 18:32
af Haddi
halldorjonsson skrifaði:Nýr íslenskur torrenvefur, með yfir 3þúsund skráða á einum degi.

http://www.TheVikingBay.org

Skemmtið ykkur, það þarf samt kennitölu til að nýskrá sig!


Sem er böggandi..

Re: TheVikingBay.org

Sent: Lau 01. Des 2007 19:45
af natti
Haddi skrifaði:
halldorjonsson skrifaði:Nýr íslenskur torrenvefur, með yfir 3þúsund skráða á einum degi.

http://www.TheVikingBay.org

Skemmtið ykkur, það þarf samt kennitölu til að nýskrá sig!


Sem er böggandi..



<samsæriskenning>SMÁÍS & co að safna kennitölum til að geta farið í fjöldan allan af málsóknum...</samsæriskenning>

Annars eru kennitölur fáránlega ofnotað fyrirbæri.

Sent: Lau 01. Des 2007 19:48
af urban
það sem að ég bara fatta ekki er afhverju í fjandanum þarf kennitölu til að skrá sig á p2p síðu

p2p á íslandi er aldeilis búið að breytast á undanförnum árum

t.d. þá var nafnleysi ("órekjanleysi") alltaf stór hluti af því hérna áður fyrr, já og peningar er eitthvað sem að þekktist bara ekki tengt p2p

Sent: Lau 01. Des 2007 21:12
af Xyron
ekki mjög erfitt að bulla bara einhverja kennitölu

skil ekki hver tilgangurinn er að safna kennitölum, annar en að staðfesta aldur fyrir 18+ flokkinn

Re: TheVikingBay.org

Sent: Lau 01. Des 2007 21:25
af hallihg
natti skrifaði:
Haddi skrifaði:
halldorjonsson skrifaði:Nýr íslenskur torrenvefur, með yfir 3þúsund skráða á einum degi.

http://www.TheVikingBay.org

Skemmtið ykkur, það þarf samt kennitölu til að nýskrá sig!


Sem er böggandi..



<samsæriskenning>SMÁÍS & co að safna kennitölum til að geta farið í fjöldan allan af málsóknum...</samsæriskenning>

Annars eru kennitölur fáránlega ofnotað fyrirbæri.


Kjánalegasta samsæriskenning sem ég hef heyrt. IP-tölur er það sem þeir þurfa í þessum málsóknum (og nota t.d. í dc málinu), og þær rekja þeir. Þessar kennitölur skipta engu máli. Annars býst ég við að þú sjálfir takir þessari kenningu ekki alvarlega, enda veit hver heilvita maður að SmáÍs væru sjálfir að eyðileggja fyrir sér þá málsókn sem þeir væru mögulega að undirbúa með því að búa til heila torrentsíðu og nota sem tálbeitu..

Sent: Lau 01. Des 2007 21:46
af Bessi
Það er nú ekki eins og kaninn hafi ekki reynt að búa til skrárskiptanet til að nota sem tálbeitu (MediaDefender og þeirra Miivi.com) og það verður varla sagt að Smáís séu minni vitleysingar en kaninn. En ég er nú samt sammála því að þetta er ólíklegt :)

Sent: Lau 01. Des 2007 22:11
af natti
hallihg skrifaði:Annars býst ég við að þú sjálfir takir þessari kenningu ekki alvarlega

haha, nei, ég setti þetta nú meira fram í gamni, sá svo að GuðjónR hafði gert það sama á öðrum þráð.

Ég nota ekki torrent og hef aldrei gert. En finnst samt kjánalegt að vera að biðja um kt á svona löguðu.

Sent: Sun 02. Des 2007 00:43
af Fumbler
Stór efast að smáís standi þarna á baki.
Þegar ég fletti upp whois um þennan vef í gær 30.nóv, þá var skráður einhver Björgvin með bjoggi(at)bjoggi.org með heimilisfang í Noregi. (Aftur á móti er heimilisfangið hanns bjögga skráð á íslandi í whois uppflettingunni á bjoggi.org, svo vísar bjoggi.org á bjoggi.net)

En núna er búið að breyta öllum whois uppflettingum á TheVikingBay.org og bjoggi.net en ekki á bjoggi.org.
Þannig að þarna er Bjöggi að fela slóðina sína eitthvað.

whois á TheVikingBay.org
whois á bjoggi.net
whois á bjoggi.org

Mynd

Sent: Sun 02. Des 2007 01:22
af GuðjónR
Töff mynd :P

Sent: Sun 02. Des 2007 01:23
af Selurinn
Lol, krakkinn marr!

Og Pedobear! :D

Sent: Sun 02. Des 2007 01:55
af Xyron
Nice mynd..

Sent: Sun 02. Des 2007 02:20
af CraZy
haha go níðbjörn

Sent: Sun 02. Des 2007 06:14
af urban
Selurinn skrifaði:Lol, krakkinn marr!

Og Pedobear! :D



ég vissi einmitt ekki hvort að ég ætti að hlæja meira af krakkanum eða pedo :)

Sent: Sun 02. Des 2007 10:48
af GuðjónR
hahaha tók hvorki eftir krakkanum né birninum...
Busted...

Re: TheVikingBay.org

Sent: Sun 02. Des 2007 11:50
af DaRKSTaR
halldorjonsson skrifaði:Nýr íslenskur torrenvefur, með yfir 3þúsund skráða á einum degi.

http://www.TheVikingBay.org

Skemmtið ykkur, það þarf samt kennitölu til að nýskrá sig!


skondið, þetta er hostað á íslandi :)

giraffi.net.

átti þetta ekki að vera hostað úti?.. allavega tók það mig ekki lángann tíma til að sjá hverjir hosti þetta og að finna hver er skráður fyrir síðunni, sími, nafn, heimilisfáng. ca 30 sec.

kannski þessvegna sem hann vill fá kennitölur.. svo hann geti bent á notendurnar ef hann er gripinn.

Sent: Sun 02. Des 2007 13:38
af halldorjonsson
hvernig fannstu það samt út, ég fæ alltaf bara 0 info þegar ég leita :?

Sent: Sun 02. Des 2007 13:45
af GuðjónR
halldorjonsson skrifaði:hvernig fannstu það samt út, ég fæ alltaf bara 0 info þegar ég leita :?

Það er auðvelt...
Start>Run> skrifar "cmd" ...> skrifar...> tracert thevikingbay.org

wollahhh >>

Sent: Sun 02. Des 2007 13:58
af CraZy
GuðjónR skrifaði:
halldorjonsson skrifaði:hvernig fannstu það samt út, ég fæ alltaf bara 0 info þegar ég leita :?

Það er auðvelt...
Start>Run> skrifar "cmd" ...> skrifar...> tracert thevikingbay.org

wollahhh >>


hvernig er það er giraffi.net hóstað í bandaríkjunum eða? Þegar ég geri who-is fæ ég

IP Location - United States - Softlayer Technologies Inc
sem er hosting fyrirtæki

Sent: Sun 02. Des 2007 14:36
af ErectuZ
Ég geri ráð fyrir því sjálfur að kennitöludæmið á vikingbay sé aðallega til að hindra það er útlendingar fari að skrá sig þar fyrst þessi síða er ekki invite-only.

Sent: Sun 02. Des 2007 14:37
af Viktor
Það er skítalykt af þessu.

Sent: Sun 02. Des 2007 15:01
af appel
Ég hef ekkert séð sem gefur til kynna að þetta sé úlfur í sauðgæru (smáís). Það er ekki rökrétt að svo sé.

Ástæðan fyrir að þeir segja að TPB eigi TVB er sú að einn aðili í stjórn TPB er skráður fyrir TVB léninu, hinsvegar er TPB ekki tengt TVB að öðru leyti.

Looks "legit" :)

Sent: Sun 02. Des 2007 23:44
af shiznit
ErectuZ skrifaði:Ég geri ráð fyrir því sjálfur að kennitöludæmið á vikingbay sé aðallega til að hindra það er útlendingar fari að skrá sig þar fyrst þessi síða er ekki invite-only.

Er ekki einhver ip tölu filter notað til að skilja útlendingana útundan ?

Sent: Mán 03. Des 2007 00:36
af ErectuZ
shiznit skrifaði:
ErectuZ skrifaði:Ég geri ráð fyrir því sjálfur að kennitöludæmið á vikingbay sé aðallega til að hindra það er útlendingar fari að skrá sig þar fyrst þessi síða er ekki invite-only.

Er ekki einhver ip tölu filter notað til að skilja útlendingana útundan ?


Það er alltaf hægt að komast framhjá IP-tölu filterum (proxyar staðsettir á Íslandi sem dæmi), en þar sem kennitala í íslensku formi er sér fyrirbæri hér á landi ætti það að vera algjörlega skothelt. Þetta virkar hins vegar ekki á Íslendinga sem eru staðsettir úti, en ef IP-tölu filter er líka settur inn á síðuna þá, eins og ég segi, ætti síðan að vera nokkuð skotheld.

Sent: Mán 03. Des 2007 01:24
af Birkir
Ég efast stórlega um að einhverjum dytti í hug að setja upp proxy hér á landi til þess að komast inn á þennan tracker, margir mun betri þarna úti. :roll: