Síða 1 af 1

Staðsetning Tölvuturns

Sent: Fös 30. Nóv 2007 15:54
af Landon
Ég á tölvuborð sem er með svona einskonar hólfi fyrir kassan sem er bara með opið að framanverðu og með opi fyrir snúrur að aftan. Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri nokkuð hættulegt með hitan í tölvukassanum að gera :roll:
Ég held að ég þurfi að saga(taka) í burtu eina hliðar hliðina og bakhliðina í burtu af tölvuborðinu :P .
Það 8cm frá kassa og upp, 2x2cm á hliðunum :cry: .

Re: Staðsetning Tölvuturns

Sent: Fös 30. Nóv 2007 16:24
af GuðjónR
Landon skrifaði:Ég á tölvuborð sem er með svona einskonar hólfi fyrir kassan sem er bara með opið að framanverðu og með opi fyrir snúrur að aftan. Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri nokkuð hættulegt með hitan í tölvukassanum að gera :roll:
Ég held að ég þurfi að saga(taka) í burtu eina hliðar hliðina og bakhliðina í burtu af tölvuborðinu :P .
Það 8cm frá kassa og upp, 2x2cm á hliðunum :cry: .

Já það getur verið varasamt að setja turna inn í hólf og skápa.
Ég myndi saga bakhliðina úr, allaveganna part af henni.

Sent: Fös 30. Nóv 2007 20:41
af Andriante
Ekki sniðugt að minni reynslu

Sent: Fös 30. Nóv 2007 21:14
af Haddi
Var með bakhlið á tölvuhólfinu undir skrifborðinu mínu.. Hitinn var yfirleitt svona um 38°-40° (kassahiti, sbr SpeedFan). Svo tók ég hliðina af og hitinn er nú slatta lægri eða um 30°-35° (ef marka má SpeedFan).

Einnig fékk ég með viftustýringu og get því stýrt hitanum í tölvunni eins og ég vil. Þannig að ég myndi, í þínum sporum, taka bakhliðina úr.

Sent: Fös 30. Nóv 2007 21:52
af Prags9
Ég er með tölvuna i svona lokaðri hillu dæmi, en ég læt endann snúa út, Tek ekki sénsinn.

Sent: Fös 30. Nóv 2007 22:36
af Fumbler
Prags9 skrifaði:Ég er með tölvuna i svona lokaðri hillu dæmi, en ég læt endann snúa út, Tek ekki sénsinn.
Ha? læturu endan þar sem allar snúrurnar eru snúa út að þér,
Hvernig eða hvar seturu þá cd / dvd diska í tölvuna? það getur ekki verið þægilegt.