Síða 1 af 1
Sko internet
Sent: Sun 25. Nóv 2007 02:42
af Demon
Hafiði séð auglýsinguna um Sko internet?
Þeir eru að auglýsa 8Mb tengingu á um 5000 þúsund kall eins og flestir internetþjónustuaðilar í dag...merkilega er hinsvegar að maðurinn segir hinsvegar "átta megabæta tengingu...".
Spurning hvort maður geti hankað þá uppá þetta, ég meina má ljúga í auglýsingum?
Ég væri alveg til í 8 megabæta tengingu...hvað væri það 64 Mbit
Sent: Sun 25. Nóv 2007 02:53
af gumol
Síminn var með svipaðar auglýsingar fyrir nokkrum mánuðum, efast um að þú getur grætt neitt á þessu.
Spurning líka hvort þú viljir versla við internetþjónustu sem veit ekki muninn á bita og bæti? Svona eins og að versla við verktaka sem veit ekki muninn á mílu og meter.
Sent: Sun 25. Nóv 2007 11:39
af elv
Er Sko ekki Vodafone?
Sent: Sun 25. Nóv 2007 11:41
af GuðjónR
Ég hélt að Hive væri Vodafone...
Sent: Sun 25. Nóv 2007 13:36
af beatmaster
Ég hélt að það væri búið að leggja niður Póst & Síma
Sent: Sun 25. Nóv 2007 14:22
af GuðjónR
beatmaster skrifaði:Ég hélt að það væri búið að leggja niður Póst & Síma
Ekki leggja niður, splitta upp. = Landsíminn & Íslandspóstur
Sent: Sun 25. Nóv 2007 14:58
af Demon
gumol skrifaði:Síminn var með svipaðar auglýsingar fyrir nokkrum mánuðum, efast um að þú getur grætt neitt á þessu.
Spurning líka hvort þú viljir versla við internetþjónustu sem veit ekki muninn á bita og bæti? Svona eins og að versla við verktaka sem veit ekki muninn á mílu og meter.
Nei þetta var nú meira í djóki en alvöru.
Sko fyrirtækið hefur aldrei verið aðlaðandi fyrir mig...bara nafnið á fyrirtækinu er gelgjulegt t.d.
Sent: Sun 25. Nóv 2007 15:05
af Pandemic
Sko er í eigu Vodafone.
Sent: Sun 25. Nóv 2007 15:13
af cue
HIVE er í eigu WBS..??
Sent: Sun 25. Nóv 2007 19:45
af END
Hefur einhver hérna reynslu af netþjónustunni þeirra?