Síða 1 af 1
Ballmer vs Linux
Sent: Fös 12. Okt 2007 11:25
af einzi
Ég var að sjá að sæti sköllótti dvergurinn hann Steve Ballmer var eitthvað að tala um að linux samfélagið skuldaði MS eitthvað tengt Intellectual Property og kernel.
Er einhver sem er inn í málinu sem getur útskýrt fyrir mér hvað málið snýst út á?
http://linux.slashdot.org/linux/07/10/09/1221223.shtml?tid=155
Sent: Fös 12. Okt 2007 13:18
af Dagur
Þetta er bara hræðsluáróður frá honum. Hann segir að linux sé að brjóta x marga höfundarétti (228 sagði hann einhverntímann) en hvorki hann eða Microsoft hafa nokkurn tímann komið með dæmi um það.
Sent: Sun 14. Okt 2007 21:09
af Stebet
Þó svo að ég sé nú Microsoft "stuðningsmaður" þá þoli ég ekki Ballmer. Microsoft þurfa að losa sig við þennan vitleysing sem fyrst. Maðurinn talar bara útúr rassgatinu á sér.
Sent: Mán 15. Okt 2007 10:27
af einzi
talandi rassgat .. það er málið ... makes a lot of noice and it all stinks .. ballmer in a nutshell
Sent: Mán 15. Okt 2007 14:29
af DoRi-
mer skillst ad tad se buid ad finna 1 patent violation
Veit samt ekki meira um tad
Sent: Mán 15. Okt 2007 15:26
af einzi
Var að skoða aðeins hvaða patents Microsoft hefði og þau eru komin í 7488. En svona miðað við þetta þá gæti ég sótt um patent á hvernig maður borðar núðlur
http://www.uspto.gov