Síða 1 af 1
Hive Max Xtra
Sent: Þri 02. Okt 2007 20:40
af cue
Veit einhver hvernig þetta er hægt?
Þ.e að bjóða fólki að hringja ókeypis í GSM síma fyrir 3450kr á mánuði.
Ég hringi fyrir meira en 5000kr bara í GSM síma!
Re: Hive Max Xtra
Sent: Þri 02. Okt 2007 21:29
af GuðjónR
cue skrifaði:Veit einhver hvernig þetta er hægt?
Þ.e að bjóða fólki að hringja ókeypis í GSM síma fyrir 3450kr á mánuði.
Ég hringi fyrir meira en 5000kr bara í GSM síma!
Það er ekki ókeypis ef það kostar 3450 kr.
Sent: Þri 02. Okt 2007 23:31
af cue
Jú, það er víst rétt.
En spurningin stendur.
Hvernig geta þeir grætt á þessu?
Sent: Þri 02. Okt 2007 23:33
af Birkir
SMS-in kosta enn sitt, símafyrirtækin eru örugglega að moka inn þar og ef viðskiptavinum fjölgar, þá fjölgar þeim eflaust líka.
Svo hringja ekki allir jafn mikið og þú.
Sent: Mið 03. Okt 2007 00:28
af Blackened
Birkir skrifaði:SMS-in kosta enn sitt, símafyrirtækin eru örugglega að moka inn þar og ef viðskiptavinum fjölgar, þá fjölgar þeim eflaust líka.
Svo hringja ekki allir jafn mikið og þú.
Er þetta ekki úr heimasíma í GSM? svo að SMSin kosta nú bara ekki neitt
Sent: Mið 03. Okt 2007 14:03
af corflame
Ég skyldi auglýsinguna þannig að þetta væri bara úr fastlínu í alla síma og þá eingöngu innanlands.
Endilega leiðréttið mig ef þetta er rangt.
Sent: Mið 03. Okt 2007 16:07
af einzi
Ef þið skoðið skilmálana fyrir þessu þá er dæmið svona:
* Heimasími Max Xtra er einungis fáanlegur með Hive Max internettengingu á ADSL dreifisvæði Hive. ( 6.390.- p mánuð )
*Með þjónustu er átt við talmiðlun um IP burðarlag. Viðskiptavinur tengist þjónustu í gegnum sérstakan endanotendabúnað sem Hive útvegar viðskiptavinum sínum ræða.
Þannig að .. heildarpakkinn er sumsé Hive Max ( 6390 ) + Heimasími Max Xtra ( 3450 )
9.840,-
Sent: Mið 03. Okt 2007 16:39
af emmi
Gildir bara þegar hringt er úr heimasíma í GSM síma.
Sent: Mið 03. Okt 2007 16:52
af einzi
nei nei .. Málið er að þetta er líklegast einhver ip sími + þú þarft að vera með ákveðna adsl þjónustu hjá þeim til að fá þetta.
* Ótakmörkuð símtöl í alla GSM og heimasíma á Íslandi
Sent: Mið 03. Okt 2007 20:42
af GuðjónR
einzi skrifaði:nei nei .. Málið er að þetta er líklegast einhver ip sími + þú þarft að vera með ákveðna adsl þjónustu hjá þeim til að fá þetta.
* Ótakmörkuð símtöl í alla GSM og heimasíma á Íslandi
Það boðar ekki gott þegar HIVE auglýsir að eitthvað sé "ótakmarkað"...
Sent: Fim 04. Okt 2007 10:32
af einzi
Þess vegna eru þessi ákvæði í skilmálunum:
* Ef notkunarmynstur gefur til að ætla að um misnotkun eða rangskráningu sé að ræða áskilur Hive sér rétt til að synja viðskiptavini um þjónustu.
* Með samþykki viðskiptavinar á skilmálum þessum, er fjarskiptafyrirtæki heimilt að vinna úr gögnum m.a. vegna notkunarmynsturs viðskiptavina í því skyni að tryggja almennar skuldbindingar og þjónustu Hive gagnvart viðskiptavinum.
Sent: Fim 04. Okt 2007 11:12
af Halli25
er með þetta og ef þú ert með síma og net færðu síman ódýrari en ella... var samt að fá bréf innum lúguna þar sem þeir voru að tilkynna verðhækkun
kannski maður renni í að skipta um síma og netfélag complete núna
Sent: Fim 04. Okt 2007 17:21
af GuðjónR
einzi skrifaði:Þess vegna eru þessi ákvæði í skilmálunum:
* Ef notkunarmynstur gefur til að ætla að um misnotkun eða....
Hvað er misntokun? Ef þú talar of mikið? Verður þá sett "cap" á símalínuna eins og þeir hika ekki við að gera á internetið...
Trúir fólk virkilega ennþá á jólasveininn???
Sent: Fim 04. Okt 2007 18:42
af einzi
Indeed .. hvað er misnotkun á þjónustu sem á að vera ótakmörkuð? Og hvað ætli felist inn í því að "safna upplýsingum um notkunarmynstur"?
Mér finnst persónulega vera of mörg spurningamerki við þetta til að nokkur maður fari að nota þessa þjónustu. Og allt er þetta háð internettengingu sem maður hefur heyrt að sé ekkert allt of stöðug til að byrja með.
Sent: Fös 05. Okt 2007 08:36
af ÓmarSmith
Hive .. omg.
Talandi um að aðrir séu að einoka og FLÆKJA símareikningana. Svo notar þeir gamalt fólk í aughlýsingar sínar sem þykist ekki skilja einfaldustu reikninga sem Símafyrirtæki bíður upp á. ( Er að vitna í Símann )
Hvað með þessa nýju þjónustu ? Hún er ekkert nema Smátt Letur !! Þarft að vera með e-a Rándýra Nettengingu sem nánast engin hefur not fyrir nema sjúklega ofvirkt barn á e-u heimilli sem er með Download syndrome á háu stigi. OG þetta er ekki ókeypis þegar þú þarft að borga þeim 10.000 á mánuði til að geta hringt á 0kr í aðra gsm úr heimasímanum þínum
Ætli gamalt fólk VIRKILEGA skilji hana.. HA HA HA HA
Hive fá alveg gott prik hjá mér fyrir að auka samkeppni og hrinda af stað breytingum í ADSL á Íslandi en þeir flækja sjálfa sig bara alltaf í eigin vitleysu og mér finnst alltaf eins og fólk sjái í gegnum þá. Frelsa aðra VV þegar þeir sjálfir eru að skuldbinda fólk í lengri tíma. Og fleira svona kjána...eitthvað.
Og það væri gaman að sjá Hive nenna að þjónusta gamla fólkið eins og Síminn er búinn að gera síðan 1906.
Síminn über alles bara
Sent: Fös 05. Okt 2007 11:20
af einzi
nota bene .... þetta er skype á hive sterum
Sent: Fös 05. Okt 2007 11:49
af GuðjónR
ÓmarSmith skrifaði:Síminn über alles bara
Heil!
Sammála síðasta ræðumanni.
Sent: Fös 05. Okt 2007 12:02
af einzi
true .. þegar maður skoðar þetta þá er síminn über alles.
Sent: Fös 05. Okt 2007 12:42
af cue
Misnotkun getur einfaldlega verið eitthvað sem þeir sjá ekki fyrir, þ.e galli í gerfinu eða að einhver fari að hringja út auglysingar eða einfaldlega símaat.
Notkunarmynstur er hlutur sem allir safna um viðskiptavini sína, þið kannist kannski við að hafa skoðað svoleiðis í DK...
Ég held að þetta hafi verið orðað mjög vel hérna áður
"Trúir fólk virkilega ennþá á jólasveininn???"
Þ.e þetta er svo gott tilboð að það getur ekki verið satt og þá er best að finna allt að þessu. Þetta var svona líka þegar þeir komu með ótakmarkað utanlands downlod. Ef þeir hefu ekki gert það er ALLVEG öruggt að síminn og Vodafone hefðu ekki gert það og við værum enn að borga fyrir utanlands downlod.
Ég öfunda ykkur að geta tekið þetta til að prufa, ég á ekki kost á því. Ég er útá landi og get bara tekið ruglið frá símanum og vodafone.