Síða 1 af 1

Innflutningsgjöld

Sent: Mið 12. Sep 2007 17:08
af andr1g
From: Me
Sent: 11. september 2007 09:11
To: Upplýsingar
Subject: Fyrirspurn af vef tollstjórans í Reykjavík: Verslað á netinu

Fyrirspurn:
Sæl/l.

Ég hafði hugsað mér að versla mér sjónvarpsflakkara og var að hugsa hvort það væri tollur á tækinu, undir hvaða flokk fellur þetta tæki?

Hérna er tækið
http://www.tvixbox.com/product_details. ... duct_id=17

Svar

Sæll.
Þetta tæki ber 7,5% toll, 25% vörugjald og 24,5% vask. Þetta gerir,
gróft reiknað 67% í gjöld.
Kv. x

...

Er þetta útí hött eða útí hött?

Sent: Mið 12. Sep 2007 17:52
af gnarr
það hefði nú verið sniðugt fyrir þig að láta manninn vita að það er ekki sjónvarps móttakari í þessu. Prófaðu að senda honum þetta aftur og benda honum á það.

Sent: Fim 13. Sep 2007 09:46
af andr1g
Sendi honum mail til baka og fékk þetta svar.

Sæll.
Já það er enginn "tuner" í þessu en í eðli sínu er tækið upptöku- og afspilunartæki.
Þau tæki bera sömu gjöld.
Kv. x

Sent: Fim 13. Sep 2007 10:49
af Daz
Ætli þessi gjöld eigi þá ekki að falla á skjákort með sjónvarpsútgangi (já eða bara einhverjum útgangi, öllum merkjum má nú umbreyta) og harða diska?

Ætli þú gætir komist framhjá gjöldunum ef þú flytur þetta box inn harðdisklaust, þar sem þá er þetta augljóslega ekki upptökutæki?

Ertu búinn að benda þessum tollaðila á þau sjónvarpsflakkarbox sem eru nú þegar á markaðinum og spyrja hvaða gjöld falla á þau?