Síða 1 af 1

Lítið um að vera...

Sent: Sun 05. Ágú 2007 23:43
af GuðjónR
Voðalega er lítið um að vera hérna um helgina...
Er ég einn af fáum sem fylgi ekki sturlaðri hjörðinni út í móa á fyllerí?
Hvað eru þið annars að gera??

Sent: Sun 05. Ágú 2007 23:56
af Arkidas
Fer til Danmerkur í viku á morgun, er að gera ýmis verkefni en er einnig að huga að nýrri vél. Ekki gætir þú gefið mér einhverjar ráðleggingar, þar það er ekki víst að ég komist í tölvu úti.

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=15175 :)

Sent: Mán 06. Ágú 2007 12:00
af djjason
Ég er nú bara að sinna minni vinnu....engin verzlunarmannahelgi hér.

Sent: Mán 06. Ágú 2007 12:20
af CraZy
Ég er bara hérna heima á AK djeminn..
Reyndar óvenjulítið í gangi hérna þökk sé tjald banna draslinu.

Sent: Mán 06. Ágú 2007 12:40
af tommiáddna
að vinna að uppbyggingu Wikibooks (is.wikibooks.org)

Sent: Mán 06. Ágú 2007 19:15
af DoRi-
ég lét orkudrykki renna um æðar mínar :)

engin lögga í Grindavíkinni *jeij*

Sent: Þri 07. Ágú 2007 09:52
af Mazi!
Ég skrapp nú bara til englands! og búinn að eyða alltof mikklum pening.. :(

Sent: Þri 07. Ágú 2007 14:42
af Ic4ruz
Er að fara til danmerkur i kvöld frá Egilsstaðaflugvelli :D

Sent: Þri 07. Ágú 2007 16:00
af Xyron
fór til eyja að deyja

Sent: Þri 07. Ágú 2007 18:51
af Frikkasoft
Xyron skrifaði:fór til eyja að deyja

haha, mest fyndið

Sent: Þri 07. Ágú 2007 19:20
af biggi1
heim'er gott að djamm'og djúsa, lazyboy stólnum á! hei!

ekkert fokklíngs diskótek hér :8)

hélt 2 partí.. annað þeirra endaði uppá akranesi :)
tryllt fjör.

Sent: Þri 07. Ágú 2007 19:37
af Birkir
Hér var allt dautt um helgina, þannig að einhvern veginn efast ég um að partýið hafi verið of gott.. :8)

Sjálfur kíkti ég á Akureyri, ágætis djamm þar, heldur fámennt samt.

Sent: Þri 07. Ágú 2007 19:42
af CraZy
Birkir skrifaði:Hér var allt dautt um helgina, þannig að einhvern veginn efast ég um að partýið hafi verið of gott.. :8)

Sjálfur kíkti ég á Akureyri, ágætis djamm þar, heldur fámennt samt.

Já þetta var frekar dautt samt allveg fínt
Þú hefðir átt að láta vita, alltaf gaman að hitta fólk af netinu..haha