Björgunaraðgerðir
Sent: Fös 06. Júl 2007 17:14
Muna að athuga hvort afrit eru í lagi áður en farið er í stóraðgerðir
Vinkona mín kom með 2 ára fartölvuna sína um daginn og bað mig að strauja hana. Hún var búinn að vera leiðinleg, alltaf að frjósa og nokkrir búnir að fikta í henni til að finna hvað væri að en ekkert gekk.
Þar sem að nánast ekkert var í tölvunni nema 2 GB af myndum og 2GB af tónlist ákvað ég bara að strauja hana (fljótlegt) án þess að leita að bilun eða vírus og gá hvort hún yrði ekki betri. Hún hafði sem sagt lítið verið notuð nema undir myndir og tónlist og á netinu og var búinn að vera leiðinleg í nokkra mánuði.
Ég byrjaði á að skrifa gögnin, myndirnar og tónlistina á sinnhvorn DVD diskinn með Nero. Allt virtist eðlilegt í skrifferlinu og kom melding um að skrifun hefði tekist fullkomlega eins og vanalega þegar Nero er búinn að skrifa.
Og þá gerði ég þá mestu vitleysu sem ég hef á æfinni gert ( og eru þær þó nokkrar ) Það er að segja ég athugaði ekki hvort afritin væru á diskunum.
Nú nú ég straujaði tölvuna eins og ég hef gert 100 sinnum áður. Formattaði og setti upp stýrikerfið og allt gekk vel. Fulluppfærði stýrikerfið og setti upp póstinn, vírusvörn og þau fáu forrit sem voru á vélinni fyrir. Og þá kom að því að setja afritin á sinn stað aftur og Það var ekkert á diskunum. Eitthvað hefur farið útskeiðis í skrifferlinu því að ég fór með þá í 3 tölvur og engin fann gögn á þeim. Brasaði eitthvað meira með þá en engin gögn voru á þeim enda þegar maður skoðaði skrifhliðina á þeim var hún allveg "hrein".
Ég svitnaði talsvert enda 2 gig af persónulegum myndum og ekki til önnur afrit af nema um helmingnum af þeim.
Las mér til og náði mér svo í forrit sem heitir Get data back NTFS.
Tók svo harða diskinn úr fartölvunni og setti hann sem aukadisk í aðra tölvu og lét svo forritið malla en það tók um 5 tíma að fara yfir diskinn og nagaði ég á mér neglurnar allann tímann
Að lokum fann ég nánast allar myndirnar aftur og kom þeim yfir í hina tölvuna. Tónlistina var hins vegar að miklu leiti farinn en það var í góðu lagi því þetta voru allt diskar sem hún á sjálf og því bara smá vinna að setja það inn aftur.
En allt er gott sem endar vel. Nánast allar myndirnar komnar á sinn stað í fartölvunni og tónlistin líka og vélin vinnur eins og ný en var alltaf að frjósa áður.
Einnig er komið afrit sem er í lagi á aðra DVD diska og ég og eigandi fartölvunar bara nokkuð ánægð.
Hún með "nýju" tölvuna sína sem ekki hefur frosið síðan og ég með að geta bætt fyrir þau mistök að athuga ekki með hvort öll afrit væru í lagi en aukavinnan við að endurheimta gögnin og koma þeim aftur á sinn stað kostuðu mig nokkura tíma vinnu, stress og 70 dollara sem forritið kostaði
En ég lærði sannanlega nokkuð á þessu og vildi bara deila þessu með ykkur því að taka afrit og vera klár á því að þau eru í lagi er aldrei nógu aft brýnt fyrir fólki og á ekki að koma fyrir okkur nördana að klikka á svona grundvallaratriðum