Síða 1 af 2

Hrikalegt ástand

Sent: Sun 24. Jún 2007 10:54
af GuðjónR
Hvað er að gerast á þessu skeri okkar? Á hverjum degi fær maður hrikalegar fréttir í fjölmiðlum.
Einhver að hálfdrepa sig á mótorhjólum, ef ekki hjólum þá að keyra á hús og stórslasa sig og aðra.
Og eins og það sé ekki nóg þá eru menn í óðaönn að stinga aðra og brjóta hausa.
Er ekki óvenju mikið í gangi þessa dagana?

Sent: Sun 24. Jún 2007 12:53
af Mazi!
Hrikalegt þetta slys þarna við hamborgara búlluna!

Sent: Sun 24. Jún 2007 13:18
af GuðjónR
Já skelfilegt!

Sent: Mán 25. Jún 2007 00:17
af kristjanm
Það þarf að gera stórátak í hraðakstursmálum og svo þyngja refsingar á íslandi, sérstaklega fyrir brot eins og nauðganir, líkamsárásir og manndrápstilraunir.

Finnst að það ætti að hækka bílprófsaldurinn upp í átján ár og banna öllum einstaklingum undir 20 ára aldri að nota bíl sem er meira en 120 hestöfl. Svo hækka hraðasektirnar meira og lengja sviftingarnar.

Og svo auðvitað að auka eftirlit lögreglu, þeir eru engan veginn að standa sig. Það er mjög sjaldan sem ég sé lögreglumenn vera að mæla.

Sent: Mán 25. Jún 2007 00:35
af ManiO
Hvernig væri líka að innleiða ökukennslu hérlendis?

En varðandi hraðakstur, þá hefur aukið eftirlit og harðari refsingar lítið að segja. Betra væri að koma upp aðstöðu þar sem að þeir sem að vilja geta keyrt án nokkurra hafta, væri ekki ósniðut að koma upp svipuðu dæmi og Nürburgring.

Eitt annað, hvernig ætti því að vera framfylgt að þeir sem að eru undir ákveðnum aldri megi ekki keyra bíl sem er yfir 120 hestöfl? 120 hö er heldur ekki mikið, sérstaklega þegar verið er að tala um bíla sem eru yfir 2 tonn.

Sent: Mán 25. Jún 2007 00:41
af DoRi-
kristjanm skrifaði:Finnst að það ætti að hækka bílprófsaldurinn upp í átján ár og banna öllum einstaklingum undir 20 ára aldri að nota bíl sem er meira en 120 hestöfl.


sammála með bílprófsaldurinn

en það er svolítið fáránlega(að mínu mati) að banna þeim sem eru undir tvítugu að keyra bíl sem hefur meira en 120 hestöfl, td, fyrir þá unglinga sem hafa ekki efni á að kaupa bíl strax og þeir fá bílpróf og vilja þá fá bíl foreldra sinna lánaðann og þá meiga þeir ekki fá bílinn lánaðann því hann er of öflugur... mér finnst það alveg útí hött

Sent: Mán 25. Jún 2007 01:16
af Blackened
DoRi- skrifaði:
kristjanm skrifaði:Finnst að það ætti að hækka bílprófsaldurinn upp í átján ár og banna öllum einstaklingum undir 20 ára aldri að nota bíl sem er meira en 120 hestöfl.


sammála með bílprófsaldurinn

en það er svolítið fáránlega(að mínu mati) að banna þeim sem eru undir tvítugu að keyra bíl sem hefur meira en 120 hestöfl, td, fyrir þá unglinga sem hafa ekki efni á að kaupa bíl strax og þeir fá bílpróf og vilja þá fá bíl foreldra sinna lánaðann og þá meiga þeir ekki fá bílinn lánaðann því hann er of öflugur... mér finnst það alveg útí hött


Plús það að 100hestöfl eru alveg nóg til að koma þér amk langleiðina í 200kmh

og ég er á því að hærri sektir og svoleiðis virki bara ekki neitt.. sektirnar eru búnar að hækka hvað.. 2svar sinnum að minnsta kosti á einu ári..
en hraðaksturinn minnkar ekkert í hlutfalli..
mér finnst líka að það eigi að tekjutengja sektirnar.. því að 30þúsund er kannski hellingur fyrir einstætt foreldri eða skólafólk sem er tekin á 101kmh..
en það eru bara smápeningar fyrir hálaunafólk sem fær uppundir hálfa milljón á mánuði

Það þarf bara að koma upp aðstöðu fyrir ökumenn til að sleppa sér í og keyra hratt undir eftirliti á afmörkuðum brautum
fólki finnst gaman að keyra hratt.. og það ER í mörgum tilfellum að fara að keyra hratt.. en þá er bara spurning HVAR.. jú.. það er eiginlega ekkert í boði nema þjóðvegir landsins

ég er meðfallinn meiri fræðslu og afmörkuðum svæðum til iðkunar hraðaksturs..

En ég er mótfallinn hækkun sekta og því að bílar verði gerðir upptækir því að þá eru bara meiri líkur á því tel ég að ökumenn sem eru mældir á rúmlega 200kílómetra hraða
(og eiga þá yfir sér himinháar sektir og að bíllinn verði tekinn) taki þá bara sénsinn og reyni að stinga lögguna af.. og þá eru þeir ekkert að fara að hægja á sér
þó að það komi umferð á móti og taka þá alltof marga óþarfa sénsa sem að getur endað með dauða bæði síns og annara

Annars er ég reyndar alveg sammála með því að það þarf að þyngja refsingar yfir öllu nánast á íslandi og dæma fólk í fangelsi..

En þá þarf líka að byggja ný fangelsi afþví að það er EKEKRT pláss í þeim sem eru til núna..
Drullast bara til að reisa eitt stóóórt fangelsi einhverstaðar úti á landi þannig að við getum farið að dæma glæpamenn í fangelsi..
ótrúlegt hvað fólk kemst uppmeð.. fólk er ítrekað ýmist sýknað eða dæmt skilorðsbundið fyrir kynferðisglæpi tildæmis.. sem er alveg fáránlegt[/b]

Sent: Mán 25. Jún 2007 02:19
af appel
Öll skiptin sem ég hef séð mótorhjóla í umferðinni í sumar þá svoleiðis rjúka þau á yfir 100. Held það yrði eitthvað gert ef allir bílarnir í umferðinni væru að rjúka yfir 100 innanbæjar.

Sent: Mán 25. Jún 2007 06:07
af Tesli
Setja bara miklu meiri pening í lögregluna þannig að þeir geti verið með gríðarlega öflugt og sýnilegt umferðareftirlit og málið er dautt...

Sent: Mán 25. Jún 2007 11:27
af Dagur
Mér finnst óvitlaust að gefa lögreglunni leyfi til að taka bílinn (tímabundið) af fólki sem brýtur gróft af sér í umferðinni. Það virðist ekki vera nóg að taka ökuskírteinið

Sent: Mán 25. Jún 2007 12:36
af DoRi-
setja bara snúningstakmarkara á alla bíla
og banna öllum þeim sef hafa spilað bílaleiki að keyra
og neyða alla til þess að stoppa eftir 15 mínútna keyslu til að hvílast, í að minnsta kosti 5 mínútur

og síðast en ekki síst ætti að banna eftirfarandi í bílum: sígarettur, mat, háværa , freka eða vælandi krakka, fartölvur, síma,útvörp og sjónvörp


:lol:

Sent: Mán 25. Jún 2007 15:13
af appel
Frekar að þú fáir svona rafstuð ef þú keyrir ákveðið hratt. Þannig að þú neyðist til að keyra hægar.

Sent: Mán 25. Jún 2007 16:18
af urban
appel skrifaði:Frekar að þú fáir svona rafstuð ef þú keyrir ákveðið hratt. Þannig að þú neyðist til að keyra hægar.


hmmm vá þá væru allir masókistar á seinna hundraðinu

Sent: Mán 25. Jún 2007 21:48
af Taxi
urban- skrifaði:
appel skrifaði:Frekar að þú fáir svona rafstuð ef þú keyrir ákveðið hratt. Þannig að þú neyðist til að keyra hægar.


hmmm vá þá væru allir masókistar á seinna hundraðinu

Sammála,þá mundum við sjá Guðmund í Byrginu á 200 km hraða upp og niður Ártúnsbrekkuna alla daga. :lol:

En grínlaust,þá hafa hærri sektir ekki fækkað þeim sem keyra of hratt.

Ökuleyfisaldur ætti að vera 18 ár.

Hestaflafjöldinn á að fara eftir aldri,eins og er á mótorhjólaprófum.

Tekjutenging sekta er nauðsynleg,eiga þeir ríku að geta keyrt of hratt. :?:

Akstursbraut til æfinga,kennslu og keppni myndi færa hraðakstur að langmestu leyti inná lokað öruggt svæði þar sem reglur gilda og fækka alvarlegum slysum mikið.

Að gera ökutæki upptæk,mun bara fjölga flóttatilraunum.
Ef menn reyna að stinga af til að forðast sekt og ökuleyfissviptingu núna, bætið þá í jöfnuna verðmæti ökutækis og flóttatilraunum mun fjölga. :roll:

Sent: Mán 25. Jún 2007 23:07
af SolidFeather
Hestaflafjöldinn á að fara eftir aldri,eins og er á mótorhjólaprófum.


Vona að það verði aldrei, 2 bílar á heimilinu og þeir eru báðir 250+ :x

Sent: Mán 25. Jún 2007 23:30
af goldfinger
Þoli ekki þegar maður er bara að keyra einhverstaðar á kannski 90 ca og svo kemur mótorhjól á næstu akrein með þvílíkum látum, prjónandi á 130+

Það eru einfaldlega ekki vegir á Íslandi fyrir hraðakstur. Það á bara að fjölga hraðamyndavélum og hækka bílprófsaldurinn.

Sent: Þri 26. Jún 2007 01:03
af ManiO
goldfinger skrifaði:Það eru einfaldlega ekki vegir á Íslandi fyrir hraðakstur. Það á bara að fjölga hraðamyndavélum og hækka bílprófsaldurinn.


Mætti ég forvitnast hvernig vegur telst "hraðaksturs hæfur?" 5+ akreinar, beinn í 20+ km o.s.frv.?

Sent: Þri 26. Jún 2007 04:30
af CraZy
4x0n skrifaði:
goldfinger skrifaði:Það eru einfaldlega ekki vegir á Íslandi fyrir hraðakstur. Það á bara að fjölga hraðamyndavélum og hækka bílprófsaldurinn.


Mætti ég forvitnast hvernig vegur telst "hraðaksturs hæfur?" 5+ akreinar, beinn í 20+ km o.s.frv.?

Tja já.
Autobahnarnir (eða hvernig sem það er skrifað..) í þýskalandi virðast alveg virka allavega

Sent: Þri 26. Jún 2007 11:50
af urban
CraZy skrifaði:
4x0n skrifaði:
goldfinger skrifaði:Það eru einfaldlega ekki vegir á Íslandi fyrir hraðakstur. Það á bara að fjölga hraðamyndavélum og hækka bílprófsaldurinn.


Mætti ég forvitnast hvernig vegur telst "hraðaksturs hæfur?" 5+ akreinar, beinn í 20+ km o.s.frv.?

Tja já.
Autobahnarnir (eða hvernig sem það er skrifað..) í þýskalandi virðast alveg virka allavega


autobahn í þýskalandi (semsagt með leyfilegan hámarkshraða töluvert hærri en vanalega(jafnvel óendanlegan) eru ekkert endilega 5 akreinar

en munurinn er einna helst sá að þeir eru sléttir með alminnilegt malbik/slitlag og hæðir og begjur eru langar og aflíðandi og einnig reynt að hafa þá sem beinast, ekki einsog hérna heima þar sem að það virðist vera að sá sem að var á ýtunni að merkja fyrri vegum hafi verið blindhauga fullur

Sent: Þri 26. Jún 2007 12:32
af DoRi-
mér skilt líka að það séu geðsjúklega háar sektir við,, öllu í Þýskalandi

Sent: Þri 26. Jún 2007 15:07
af Steewen
Þjóðverjar eru líka með tekjutengdar sektir.

Sent: Mið 27. Jún 2007 11:57
af wICE_man
Steewen skrifaði:Þjóðverjar eru líka með tekjutengdar sektir.


Sem er snilld sem Sjálfstæðisflokkurinn á örugglega aldrei eftir að taka upp :(

Sent: Mið 27. Jún 2007 13:18
af Stebet
Kappakstursbraut á ekki eftir að breyta nokkrum sköpuðum hlut. 18 ára vitleysingar sem þurfa að botna imprezuna sína innanbæjar til þess að ganga í augun á 10. bekkjarstelpunum eiga ekki eftir að nenna að fara þangað, svo einfalt er það. Þeir munu halda áfram að reykspóla á einhverju bílaplani, fara í spyrnu á miklubrautinni og keyra á 180 utanbæjar. Það er nefnilega ekki kúl að fara á einhverja kappastursbraut þar sem enginn horfir á þá og öfundar þá af neondruslunum þeirra.

Málið er bara að Íslenska umferðarmenningu þarf bara að laga frá grunni því þegar kemur að almennri tillitssemi og virðingu fyrir öðrum ökumönnum standa íslendingar öðrum þjóðum langt að baki.

Íslendingar vita t.d. varla hvað það er að gefa séns í umferðinni. Núna rétt áðan var ég t.d. að koma út af bílaplaninu á grensásvegi og þurfti að komast á beygjuakreinina til að beygja upp í ármúla. Fékk næstum því tvisvar bíl í hliðina á mér afþví þeir ætluðu sko alls ekki að gefa séns þó að umferðin væri stopp á rauðu ljósi. Hef rekið mig á að leigubílstjórar eru einstaklega slæmir hvað þetta varðar. Það er eins og þeim finnist mörgum hverjum þeir bara eiga göturnar.

Íslendingar með tjaldvagna eru líka margir afar slæmir. Hef oftar en ekki lent í því að fá Land Cruiser með tjaldvagn framúr mér á a.m.k 120 kílómetra hraða með tilheyrandi grjótkasti.

Sent: Mið 27. Jún 2007 13:38
af Stutturdreki
Guns don't kill people..


Sama má segja um hraðakstur.. það er bjáninn á bakvið stýrið.

Held það skipti engu máli hversu góðir vegir verða eða hvort það verði sett upp einhver spyrnubraut. Væri nær að setja ökumenn í sálfræði og greindarpróf.. og kannski láta þá vinna í sjálfboðavinnu á gjörgæslu LSH eða upp á Grensásdeild.

Sent: Mið 27. Jún 2007 14:42
af djjason
Stebet skrifaði:Kappakstursbraut á ekki eftir að breyta nokkrum sköpuðum hlut. 18 ára vitleysingar sem þurfa að botna imprezuna sína innanbæjar til þess að ganga í augun á 10. bekkjarstelpunum eiga ekki eftir að nenna að fara þangað, svo einfalt er það. Þeir munu halda áfram að reykspóla á einhverju bílaplani, fara í spyrnu á miklubrautinni og keyra á 180 utanbæjar. Það er nefnilega ekki kúl að fara á einhverja kappastursbraut þar sem enginn horfir á þá og öfundar þá af neondruslunum þeirra.

Málið er bara að Íslenska umferðarmenningu þarf bara að laga frá grunni því þegar kemur að almennri tillitssemi og virðingu fyrir öðrum ökumönnum standa íslendingar öðrum þjóðum langt að baki.

Íslendingar vita t.d. varla hvað það er að gefa séns í umferðinni. Núna rétt áðan var ég t.d. að koma út af bílaplaninu á grensásvegi og þurfti að komast á beygjuakreinina til að beygja upp í ármúla. Fékk næstum því tvisvar bíl í hliðina á mér afþví þeir ætluðu sko alls ekki að gefa séns þó að umferðin væri stopp á rauðu ljósi. Hef rekið mig á að leigubílstjórar eru einstaklega slæmir hvað þetta varðar. Það er eins og þeim finnist mörgum hverjum þeir bara eiga göturnar.

Íslendingar með tjaldvagna eru líka margir afar slæmir. Hef oftar en ekki lent í því að fá Land Cruiser með tjaldvagn framúr mér á a.m.k 120 kílómetra hraða með tilheyrandi grjótkasti.


Ég er algjörlega sammála Stebet hvað þetta varðar. Það að setja upp sérstaka braut fyrir fólk sem vill keyra hratt eða eitthvað annað mun eingögnu þjóna þeim sem "vilja keyra hratt en geta setið á sér og gera það ekki inni í miðri borg". Það er að segja þeim akstursáhugamönnum sem eru skynsamir. Þeir sem eru í þessum djöflagangi inn í miðri Reykjavík eru þeir sem finnst það vera sport. Keyra á 160 eftir Sæbrautinni, zikk-zakkandi meðal annara grunlausra borgara. Það þarf að taka kerfið í gegn frá grunni.

Það sem ég vildi einnig sjá sem ný viðurlög er það sem ég sé hérna í Massachusetts, þó svo að vissulega er mikið hægt að gangrýna ýmislegt í USA er tengist lögum og reglu þá eru nokkrar reglur í Massachusetts sem mér finnst góðar. Hér eru viðurlög við umferðarlagabroti háð aldri og aðstæðum.

Til dæmis. Ef einstaklingur er tekin undir áhrifum áfengis og er undir 21 (sem er áfengisaldurinn) þá missir hann sjálfkrafa ökuskírteinið þangað til hann nær áfengisaldri, sem getur verið blóðugt þegar viðkomandi er kanski bara 17 eða 18 ára gamall. Einnig er tekið mjög hart á vítaverðum gáleysisakstri ungmenna sem eru nýkomin með bílpróf (en svona mál hafa komið upp á undanförnu á Íslandi) og eru þá viðurlögin meiri en bara létt sekt. Ekki það að það sé eitthvað betra þegar eldri einstaklingar stundi gáleysisakstur en þeir eru alltaf sviptir ökuleyfi einnig á staðnum og skikkaðir aftur í ökuskólann.

Að lokum vil ég segja að ég er einnig algjörlega sammála Stebet hvað "sénsa" varðar í umferðinni. Eftir að hafa keyrt í Bandaríkjunum nú í fjögur ár...þá er algjör viðbjóður að keyra á götum Reykjavíkur. Hér í fyrsta lagi gefur fólk sénsa alveg hægri vinstri....því það heldur bara umferðinni hægt og rólega gangandi. Svo er það einnig að fólk leggur ekki af stað yfir gatnamót nema það er algjörlega klárt á því að það muni komast alla leið yfir. Þannig mun það ekki hefta för þeirra bíla (sem ganga þvert á þína aksturslínu) þegar þeir fá grænt ljós. Á Íslandi virðist fólk halda að það græði MEGA mikið á því að keyra af stað yfir gatnamót bara því það er með grænt ljós og má það...þó svo að það sé ekki séns að það komist alla leiðina yfir. Það skapar bara pirring hjá þeim sem eru blockaðir inni og það síðasta sem við viljum er að hafa ökumenn á götunum í pirruðu skapi, það getur verið ávísun á vandræði. Reyndar er það bundið í lög í Massachusetts að það er ólöglegt að hindra för annara bíla (á gatnamótum) með því að stoppa þar og þú mátt ekki halda af stað nema þú getir "pull through" að fullu, rétt eins og það er ólöglegt að "blocka" umferð gangandi vegfarenda á ljósum. Lögreglan má stöðva og sekta fólk sem er stopp á miðjum gatnamótum.

En þetta eru nú bara mín tvö cent :)