Síða 1 af 1
Netfangalisti Vaktin.is ruslpóstur.
Sent: Sun 17. Jún 2007 18:00
af ManofWar
Hvernig er það er semsagt búið að stela netfangalista vaktarinnar, ég er allavegana að fá ruslpóst í þeirra nafni. Hverjir aðrir eru að fá ruslpóst? Er engin dulkóðun í gangi í gagnagrunninum hjá þeim? Man eftir að svæðið datt út fyrir nokkru, byrjaði reyndar að fá ruslpóstinn eftir það.
Sent: Sun 17. Jún 2007 18:12
af Haddi
ok það var mér að kenna að svæðið datt út en það ætti ekki að hafa komið af stað neinum ruslpóstum. Hins vegar eru svaka margir erlendir að heimsækja síðuna mína og senda mér póst á netfanginu sem stóð á síðunni og ég hef bara sett síðuna mína í prófílinn minn hér.
En endilega notið "ekki sýna netfang" takkann
... og nei, netföng eru ekki dulkóðuð. Bara lykilorð!
Sent: Sun 17. Jún 2007 18:40
af ManofWar
Ég er að nota "ekki sýna netfang" takkann á, þeir hafa sennilega farmað þetta einthverstaðar, kanski úr smáauglýsingunum, allavegana topikið á ruslpóstinum ber þess merki.
Sent: Sun 17. Jún 2007 21:06
af GuðjónR
EF netfang birtist á netinu þá eru líkur á ruslpósti...þannig er það bara.
Ekkert sem við getum gert í því. Fólk hefur möguleika á því við skráningu að fela netfangið.