Síða 1 af 2

Sumarvinna :)

Sent: Mið 06. Jún 2007 12:18
af HemmiR
Jæja þá ætla ég að spyrja hvar er fólk að vinna og hvað eru þið að fá borgað ef þið viljið gefa það upp? :D
Sjálfur er ég að vinna hjá bænum s.s á Húsavik að slá gras og raka og er að fá 720kr á timann samkvæmt lágmarks launa taxta held ég hef ekki enðá fengið útborgað :D

Sent: Mið 06. Jún 2007 12:35
af ManiO
Er að vinna í skrifstofu hjá eftirlitinu uppá Kárahnjúkum og er að fá vel yfir 250þús á mánuði, útborgað.

En ekki gleyma að margir hér eru ekki í skóla og eru því í fullri vinnu :wink:

Sent: Mið 06. Jún 2007 13:16
af Stutturdreki
Nákvæmlega.. en það má náttúrulega að túlka það þannig að þessi þráður sé fyrir þá sem eru aðeins í sumarvinnu og við hinir ættum ekkert að vera að svekkja þá með föstu laununum okkar.

Sent: Mið 06. Jún 2007 13:19
af ManiO
Ég er reyndar sumarstarfsmaður. Er í háskólanum í eðlisfræði á veturna.

Sent: Mið 06. Jún 2007 14:11
af GuðjónR
4x0n skrifaði:Ég er reyndar sumarstarfsmaður. Er í háskólanum í eðlisfræði á veturna.

Eðlisfræði? þú ert ekki að ráðast á vegginn þarf sem hann er lægstur.

Sent: Mið 06. Jún 2007 14:42
af kristjanm
Ég er að vinna hjá gámaþjónustunni í ruslinu á akranesi, og svo sendill á dominos um helgar.

Sent: Mið 06. Jún 2007 15:21
af ÓmarSmith
Þar lá hundurinn grafinn .. Hann er skagamaður og í rusli ;)

Útskýrir Neikvæðnina..hehe

:8)

Sent: Mið 06. Jún 2007 15:49
af kristjanm
Ég er reyndar ekki skagamaður heldur keyri ég til akraness á morgnanna.

Svo er ég ekki neikvæður, bara raunsær og hreinskilinn :)

Ég er líka jákvæður þegar það á við.

Sent: Mið 06. Jún 2007 16:07
af ÓmarSmith
hehe, batnandi mönnum er best að lifa.

" Á Spán´er gott að djamm og djúsa ..."

Sent: Mið 06. Jún 2007 17:50
af viddi
vinn hjá samskip með í kringum 250 þús og uppúr eftir skatta

Sent: Mið 06. Jún 2007 18:18
af urban
hmm
vinn á Fiskmarkaði
launing mættu alveg vera betri, það sem að bjargar þeim er mikil vinna, en tímakaupið mætti vera meira

síðasti mánuður var að gera eitthvað tæplega 300 kall í peningum

Sent: Mið 06. Jún 2007 18:50
af hallihg
Í hlutastarfi með skólanum á veturna vinn ég sem sölumaður í BT grafarvogi, fæ 75 kúlur þar á mánuði.

Er leiðbeinandi í vinnuskólanum í sumar í fullu starfi, veit satt að segjast ekki hvað ég fæ þar á mánuði en það er ekki jafn vel borgað.

Sent: Mið 06. Jún 2007 19:40
af Ic4ruz
Ég er að finna hjá Sólskogum(Gróðurhús) á Egilsstöðum með cirka 550 kall á timan og ég vinn 8 tima á dag.

fæ svona cirka 4.250 fyrir daginn.

Sent: Mið 06. Jún 2007 19:49
af tms
4x0n skrifaði:Er að vinna í skrifstofu hjá eftirlitinu uppá Kárahnjúkum og er að fá vel yfir 250þús á mánuði, útborgað.

En ekki gleyma að margir hér eru ekki í skóla og eru því í fullri vinnu :wink:

Við erum nágrannar! Reyndu við kellinguna í mötuneytinu með stóru brjóstin. \:D/

Sent: Mið 06. Jún 2007 22:06
af Predator
Vinn við bifreiðasmíðar með 850kr á tíman :)

Sent: Mið 06. Jún 2007 23:56
af CraZy
Kirkjugörðunum aftur bara..
man ekki allveg hvað tíma kaupið er en það er allveg ágætt svosem minnir mig
Það er eitthvað við dána fólkið sem er svo róandi
mmm dead people..

Sent: Fim 07. Jún 2007 09:56
af Veit Ekki
Er að vinna sem prófarkalesari hjá Morgunblaðinu.

Sent: Fim 07. Jún 2007 10:09
af Stutturdreki
Veit Ekki skrifaði:Er að vinna sem prófarkalesari hjá Morgunblaðinu.
Oh boy.. heyrru.. ég er hérna með langan lista frá konunni minni sem er MRingur með íslenskufetish á háustigi :) Orðinn þreyttur á að hlusta á hana skammast yfir stafsetningar og málfræðivillum í blöðunum.. má hún ekki bara hringja beint í þig?

Sent: Fim 07. Jún 2007 11:08
af Pict1on
eldhúsinu á kaffi parís..


gott tímakaup en leiðinlegur vinnu tími 2 til 22 =/

Sent: Fim 07. Jún 2007 12:06
af urban
CraZy skrifaði:Kirkjugörðunum aftur bara..
man ekki allveg hvað tíma kaupið er en það er allveg ágætt svosem minnir mig
Það er eitthvað við dána fólkið sem er svo róandi
mmm dead people..

upplífgandi starf er það ekki ?


Veit Ekki skrifaði:Er að vinna sem prófarkalesari hjá Morgunblaðinu.


er þetta fullt starf hjá þér?
ef svo er þá mættiru standa þig betur, ef ekki þá sækja um fullt starf, já og helst bæta við nokkrum og láta yfirfara mbl.is mun oftar og betur, maður gerir ekki annað en að rekast á villur þar sem að ég vill meina að ættu ekki að vera á svoleiðis miðli

Sent: Fim 07. Jún 2007 12:56
af DoRi-
Vinn á tölvuverkstæði í Grindavík
978kr. á tímann, frá 10 til 18

gaman gaman

(ennþá skemmtilegra þegar það er ekkert að gera:) )

Sent: Fim 07. Jún 2007 16:49
af CraZy
urban- skrifaði:
CraZy skrifaði:Kirkjugörðunum aftur bara..
man ekki allveg hvað tíma kaupið er en það er allveg ágætt svosem minnir mig
Það er eitthvað við dána fólkið sem er svo róandi
mmm dead people..

upplífgandi starf er það ekki ?

mm það er fínt, nema þegar maður er kannski eitthvað að brasa í barna reitunum..helv. dótið og leikfangabílarnir eru alltaf fyrir vélunum :arrow:

Sent: Fim 07. Jún 2007 18:09
af Dári
Vinn hja Mr. X vid ad gera grafik fyrir Resident Evil: Extinction nuna i sumar. naesta verkefni er svo Lust Caution

Sent: Fim 07. Jún 2007 19:14
af GuðjónR
Eintómar B myndir hjá þér Dári :)

Sent: Fös 08. Jún 2007 20:58
af Veit Ekki
urban- skrifaði:
Veit Ekki skrifaði:Er að vinna sem prófarkalesari hjá Morgunblaðinu.


er þetta fullt starf hjá þér?
ef svo er þá mættiru standa þig betur, ef ekki þá sækja um fullt starf, já og helst bæta við nokkrum og láta yfirfara mbl.is mun oftar og betur, maður gerir ekki annað en að rekast á villur þar sem að ég vill meina að ættu ekki að vera á svoleiðis miðli


Þetta er fullt starf hjá mér en ég fer nú ekki yfir allt blaðið og ekkert á netinu. Ég get bara séð til þess að það sem ég geri sé rétt. :P En kannski að maður biðji um aðgang að mbl.is, til að geta leiðrétt þar.

Stutturdreki skrifaði:
Veit Ekki skrifaði:Er að vinna sem prófarkalesari hjá Morgunblaðinu.
Oh boy.. heyrru.. ég er hérna með langan lista frá konunni minni sem er MRingur með íslenskufetish á háustigi :) Orðinn þreyttur á að hlusta á hana skammast yfir stafsetningar og málfræðivillum í blöðunum.. má hún ekki bara hringja beint í þig?


Hehe, þessir MR-ingar. :wink:

Annars les ég nú bara lítinn hluta af blaðinu, aðallega auglýsingar. Held að ég afþakki þetta símtal, ég er ekki það valdamikill hjá Mogganum. :P