Síða 1 af 1

Kisildalur.is tekur breytingum

Sent: Mán 28. Maí 2007 17:02
af BlackMan890
Sælir verið þið.

Ég heiti Jónatan og er nýi vefstjóri kisildalur.is.

Það er mér mikil ánægja að segja að kísildalur.is muni taka nokkrum breytingum á næstunni. Allar uppástungur sem ég hef fengið er ég nú að vinna í og ef þú hefur einhverjar aðrar uppástungur þá endilega láta vita :).

Ég er núna að vinna í "Mitt svæði" en þar muntu geta breytt stillingum, skoða gamlar pantanir og fleira :wink:.


Kveðja:
Jónatan Nilsson


P.S.
Ég vil afsaka villur og annað slíkt sem hefur komið upp þegar fólk hefur verið að skoða vefsíðuna síðastliðna daga. Eitthvað líkt og villuskilaboðum eða allt hvítt og þannig slíkt. Í flestum tilfellum kemur vefsíðan aftur upp eftir örskamma stund :D.

Sent: Mán 28. Maí 2007 17:15
af kristjanm
Mjög flott framtak, en af hverju seturðu þetta í "Allt varðandi vaktin.is"?

Sent: Mán 28. Maí 2007 17:17
af BlackMan890
Allt varðandi vaktin.is
Tilkynningar, ábendingar og fyrirspurnir.

Sent: Mán 28. Maí 2007 17:35
af DoRi-
BlackMan890 skrifaði:Allt varðandi vaktin.is
Tilkynningar, ábendingar og fyrirspurnir.

tilkynngingar sem varða Vaktina sérstaklega

Sent: Mán 28. Maí 2007 18:05
af Pandemic
Fært

Sent: Mán 28. Maí 2007 22:40
af emmi
Af því að Vaktin er sponseruð af Kísildal. :lol:

Sent: Þri 29. Maí 2007 05:46
af BlackMan890
Vildi bara láta ykkur vita að það er komið "Mitt svæði" á Kísildalur.is.
Þið getið núna breytt stillingum og skoðað gamlar pantanir sem þið hafið búið til.

Mér þætti það gaman ef einhver myndi commenta á þetta.


Kveðja:
Jónatan Nilsson


P.S.
Ég ætti kannski að fara að sofa ;)
P.P.S.
Það er mjög líklegt að eldgamlar pantanir sjáist ekki. Wiceman hefur verið svo góður að eyða gömlum pöntunum úr gagnasafninu :roll:

Sent: Fim 31. Maí 2007 20:40
af Harvest
Haha... ég hélt að síðan gæti varla skánað...

Besta síða sem ég hef séð (með svona tölvudót) svo handhægt...

Allavega EKKI setja þetta þannig að maður þurfi að smella á jaðartæki til að ská allt sem er í þeim flokki.

Annað. Það væri gaman að fá svona að þegar maður smellir á vöru að þá kemur neðst hvað viðskiptavinurinn sem verslaði síðast keipti einnig.

Held að þetta sé svona á http://www.att.is

Sent: Fim 31. Maí 2007 22:08
af tms
Jónatan, ekki gera síðuna í Direct X!

Sent: Fös 01. Jún 2007 06:38
af gnarr
hahaha :D

Sent: Fös 01. Jún 2007 08:17
af ManiO
tms skrifaði:Jónatan, ekki gera síðuna í Direct X!


OpenGL 4tw! :o

Sent: Fös 01. Jún 2007 09:26
af corflame
DirectX ?

Er allt í einu hægt að gera vefsíður sem accessa skjákortið í gegnum DirectX millilag? :P

Sent: Fös 01. Jún 2007 23:39
af gnarr
þetta var forritunarkeppnis brandari... :8)

Sent: Fim 14. Jún 2007 02:39
af BlackMan890
hahahaha

Ok allavega þá ætla ég að beintengja sölukerfið við vefsíðuna á næstunni.
Þannig að ef þú kaupir eitthvað í búðinni að þá komi það fram í vefsíðunni.

Mér þætti gaman að fá comments á hvernig það ætti að virka. Hugmynd mín var að láta sölukerfið leita í gagnagrunninum að kennitölunni og bæta pöntuninni á þann notenda. Er það góð leið?


P.S.
Ég hef verið að pæla að gera vefsíðuna mína í 3D með directx :wink: To hell with comptability

Sent: Fim 14. Jún 2007 04:14
af Pict1on
ég mæli með því að þú hafir hana svona eins og rpg leik þannig að þú þurfir að labba í gegnum búðina til að versla á netinu !!

en svona for real..
kennitölu kerfið soundar vél.. meina maður gleimir ekki kennitöluni sinni svo auðveldlega, væri þetta ekki bara basic database fráskilin sölukerfinu sjálfu (for safety reasons).
Sem væri hægt að flytja á milli upplýsingar varðandi kaup notenda ?

Sent: Fim 14. Jún 2007 09:34
af urban
Það vantar enþá alveg 1 fítus inná þessa annars stórkostlegu síðu

úr því að code kerfið er í "körfunni" (t.d. http://www.kisildalur.is/?code=EGEPDCDSRDO2 ) þá finnst mér alveg vanta að það sé hægt að bæta í körfuna hlutum sem að eru uppseldir

þá getur maður t.d. geymt linkinn yfir hugsanleg kaup, já eða sýnt einvherjum þetta og fengið gagnrýni á það án þess að þurfa að taka körfuna og síðan hugsanlega einhverja linka í viðbót ef að varan er uppseld

eiginlega galli að þetta sé ekki hægt vegna þessa stórkostlega fítus að geta vistað körfuna sem code, ef að það væri ekki hægt þá færi þetta ekkert í taugarnar á mér

Sent: Fim 14. Jún 2007 10:04
af gnarr
þetta er einmit á newegg.com, kallast "Auto-notify".

Sent: Fim 21. Jún 2007 23:41
af BlackMan890
Ég vil bara biðjast afsökunar á þessum skilaboðum sem hafa verið að myndast á vefsíðunni okkar.

Verið er að finna lausn á málunum hvað varðar þetta mál.


En hvað varðar "Auto-Notify" þá verður sá kostur á vefsíðunni okkar og er það ekki spurning.

Sent: Þri 26. Jún 2007 16:34
af BlackMan890
Nú er loksins hægt að kaupa vöru þó hún sé uppseld. Einnig verður boðinn uppá þann möguleika að sjá hvort vara sé væntanlegt og þá hversu margir dagar þangað til að við fáum vöruna.