Síða 1 af 1
Fyrir SQL áhugamenn: Lokapróf í GSF203
Sent: Mán 30. Apr 2007 16:12
af gnarr
Sælir.
Þetta er próf sem ég var í í morgun.
Ég gleymdi reyndar að senda sjálfum mér svörin mín úr prófinu, en ég skal skella þeim hérna inn á miðvikudag.
Þið sem hafið áhuga á þessu getið leikið ykkur að svara þessu og sett svörin ykkar hingað inn. Ég skal svo fara yfir þau og segja ykkur hvað er rétt og vitlaust og hvað mætti bæta.
Gagnagrunnurinn fyrir prófið:
http://notendur.mi.is/gnarr/misc/lokaprof_gsf203_vor2007.sql
Prófið sjálft:
http://notendur.mi.is/gnarr/misc/lokaprof_gsf203_vor2007.pdf
Ps. Þetta er fyrir MS-SQL
Sent: Mán 30. Apr 2007 21:36
af Stutturdreki
Má ég?
Annars þoldi ég aldrei skrifleg tölvunarfræði próf og myndi örugglega svindla.. (
með því að prófa SQLið áður en ég svaraði það er..)
Sent: Þri 01. Maí 2007 00:25
af gnarr
þetta var verklegt próf. Endilega spreyttu þig
Þetta er drullu skemmtilegt próf. Sérstaklega dæmi 4 og 8.
Sent: Þri 01. Maí 2007 15:30
af Stutturdreki
Okey.. eyddi kannski klst. í þetta og svindlaði það lítið að ég nennti ekki einu sinni að sann prófa svörin
Setti svörin í texta skjal og breytti endingunni úr .txt í .zip.. svona til að skemma ekki fyrir ef einhver annar skyldi reyna við þetta.
Sent: Fös 04. Maí 2007 11:49
af Stutturdreki
Jæja fyrst það á ekki að gefa manni einkun þá þarf maður bara að fara yfir þetta sjálfur..
Svör 4, 6 og 7 voru röng hjá mér.. fyrir utan að ég kann greinilega ekki að skrifa einkun með tveim n-um
Í 7 gerði ég reyndar = en ekki < þannig að ég fann bara einkunir sem voru jafnar inntakinu. Og 4 hefði ég líka gert rétt í verklegu.. þurfti að nota having . Cursorin var líka smá vitlaus.. gleymdi að declara breytum og svo var syntaxinn smá öfugur.
Það sem mér sýnist vera rétt svör eru í viðhenginu.. renama .zip í .txt ..
Sent: Fös 04. Maí 2007 15:16
af gnarr
afsakið.. ég gleymdi að fara í tölvuna útí skóla til að sækja þettá á miðvikudag. Var að koma úr prófi núna og ákvað að skella þessu inn.
Hérna er svarblaðið mitt
http://notendur.mi.is/gnarr/misc/lokaprof_gsf203_vor2007_svarblad.sql
ég held að það eina sem þú klikkaðir á seinni tilrauninni er rowcount í spurningu 8.
Sent: Fös 04. Maí 2007 16:08
af Stutturdreki
Ah.. las þetta vitlaust
Sent: Lau 05. Maí 2007 22:54
af mrpacman
Ertu með Sigga sem kennara?
Sent: Sun 06. Maí 2007 02:09
af gnarr
jebb. Besta kennara sem hefur stigið fæti á þessa jörðu.
Sent: Sun 06. Maí 2007 20:50
af Harvest
Hvað eruði að læra? Hvar? og hver er Siggi?
Sent: Sun 06. Maí 2007 23:14
af gnarr
Ég er á tölvubraut í Iðnskólanum í Reykjavík, með forritun + gagnasafnsfræði sem sérsvið. Siggi er Sigurður R. Ragnarsson, gagnasafnsfræði kennari í Iðnskólanum og jafnframt einn besti kennari á íslandi
Sent: Sun 06. Maí 2007 23:20
af Harvest
gnarr skrifaði:Ég er á tölvubraut í Iðnskólanum í Reykjavík, með forritun + gagnasafnsfræði sem sérsvið. Siggi er Sigurður R. Ragnarsson, gagnasafnsfræði kennari í Iðnskólanum og jafnframt einn besti kennari á íslandi
Heh... ég er nefnilega í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti á tölvubraut með gagnasafsfræði og forritun sem sérsvið og Siggi/Fjalar = Sigurður Fjarlar Jónsson er einn besti kennari á Íslandi og hann kennir gangnasafnsfræði og forritun
Þessvegna hélt ég kannski að þú værir í mínum skóla
Sent: Mán 07. Maí 2007 00:32
af mrpacman
gnarr skrifaði:Siggi er Sigurður R. Ragnarsson, gagnasafnsfræði kennari í Iðnskólanum og jafnframt einn besti kennari á íslandi
Sammála, man þegar eitt verkefnið var að finna hvað R-ið í nafninu hans stæði fyrir
Núna mun ég vera sí-pælandi hver af sveittu nördunum er gnarr
Sent: Mán 07. Maí 2007 13:10
af gnarr
Haha
jább, það var skemmtilegur tími! Mannstu hvað R-ið stóð fyrir?
við vorum allavega búnir að confirma það nokkuð oft að það stóð ekki fyrir "Raúl".. haha
Var það ekki Randver eða Regin eða eitthvað álíka?
ég er litli guttinn hægramegin: