Síða 1 af 1
48DVD, diskar sem endast ekki 48 tíma
Sent: Lau 21. Apr 2007 11:20
af ICM
Ég hef lent í því oftar en einusinni að sofna útfrá þessum 48DVD myndum og ætla að horfa á þær næsta kvöld, sólahring seinna en þá er diskurinn orðin ólæsilegur og ekki hægt að horfa á myndirnar
Er þetta ásættanlegt? Ég hélt þeir ættu að endast í tvo sólahringa.
Sent: Lau 21. Apr 2007 11:36
af Veit Ekki
Ég keypti mér einu sinni svona disk og hann entist í margar vikur. Annars frekar lélegt ef hann virkar ekki í a.m.k. 48 tíma.
Ég lenti í því að fá ónýtan disk frá þeim. Ég hringdi í fyrirtækið og þeir komu með nýjan disk heim til mín, samdægurs. Miðað við þessa þjónustu sem ég fékk, þá held ég að þeir myndu glaðir skipta þessum diskum út fyrir þig.
Sent: Lau 21. Apr 2007 13:03
af Pandemic
Kannski les drifið þitt diskinn bara á ógnarhraða
og miðflóttaraflið eykst á efnin sem eyðileggja diskinn.
Sent: Lau 21. Apr 2007 21:28
af Ic4ruz
Ég keypti mér svona disk á Esso(N1) fyrir um 1 mánuð og hann virkar þegar maður setur hann i DVD drifið ennþá!
Sent: Lau 21. Apr 2007 22:31
af Fumbler
Ég hef einu sinni prófað að kaupa svona disk. Fyrir utan að myndgæðin eru eins og á video spólu og hljóðið ekki það besta. Þá ég byrjað á því að setja hann í tölvuna og tók afrit af myndinni.
Diskurinn virkaði í uþb. 14 daga, En ég gerði 2 lítil göt á diskinn þar sem efnið er í miðjunni.
Sent: Sun 22. Apr 2007 03:26
af ICM
Ég hef oft keypt svona myndir og stundum endast þær í marga daga... Það sem er óþolandi við DVD spilara er að þeir halda áfram að spila diskana ef maður sofnar útfrá þeim þótt myndin sé búin, ef geislin er stöðugt á disknum þá er kanski ekki skrítið að diskurinn eyðist svona fljótt.''
Götin sem eru á diskunum hafa eitthvað með það að gera að þegar súrefni hleypst að þeim fer það að éta upp diskin.
48DVD - Gallaður diskur
Sent: Fim 27. Sep 2007 09:01
af 48DVD
Góðan daginn,
ég rakst á þessa umræðu sem hér hefur átt sér stað og vildi koma til ykkar nokkrum staðreindum þar sem ég hef usjón með framleiðslu og dreyfingu á 48DVD á íslandi.
Eins og nafnið bendir til þá á 48DVD diskur að endast í 48 klst. nánar tiltekið í 48-58 klst. ef dikur eyðir efninu útaf sér innan þess tímaramma þá er virkni hans rétt. Ef hann eyðir efninu af diskinum of snemma eða of seint þá má telja að um gallaðan disk sé að ræða, en það er ekki hægt að útiloka það að af færibandinu komi einn og einn gallaður diskur þar sem um fjöldaframleiðslu er að ræða en gríðarlega lítið hefur verið um galla í 48DVD.
Ef einhver hér hefur lent í því að fá gallaðann disk í hendurnar þá er um að gera að fara annaðhvort með hann á þann smásölustað sem hann var keypur, koma með hann til okkar á Kletthálsinn eða senda okkur hann og fá annað eintak í hendurnar, tiltörulega einfalt er að sjá það hvort um gallaðann disk er að ræða eða hvort virknin er eðlileg og höfum við ráð til þess að finna það út.
ég vona að ég hafi komið hér gagnlegum upplýsingum á framfæri til ykkar sem þetta lesa.
Bestu kveðjur.
Gísli Kristjánsson
Rekstrarstjóri Intus ehf.
Sent: Fim 27. Sep 2007 10:01
af GuðjónR
Jahérna...það virðast allir lesa þetta spjall!
Takk fyrir góð svör Gísli.
Sent: Fim 27. Sep 2007 11:12
af TechHead
- Vaktin.Is -
Þar sem svörin leynast
Sent: Þri 02. Okt 2007 19:29
af Stuffz
Pandemic skrifaði:Kannski les drifið þitt diskinn bara á ógnarhraða
og miðflóttaraflið eykst á efnin sem eyðileggja diskinn.
my though exactly lol