Síða 1 af 2
Hjálp! STÆ 303 verkefni
Sent: Fös 20. Apr 2007 22:39
af GuðjónR
Mig vantar aðstoð við að leysa
þessi dæmi.
Ég veit að það er fullt af stærðfræði séníum hérna, ath. útreikningar þurfa að fylgja með.
Svörum má pósta hingað, eða í pm, nú eða á
gudjonr@vaktin.is
Með fyrirfram þökk.
Sent: Lau 21. Apr 2007 00:03
af ManiO
Sá þetta svo seint að ég nenni ekki að gera allt núna, en svarið við fyrsta:
1) strikin sem umlykja vigurinn gefa í skyn lengd vigurs en það sem er hægra meginn er vigur.
Skelli kannski svo inn einhverju meir á morgun.
Sent: Lau 21. Apr 2007 00:12
af Revenant
Hérna er tillaga að úrlausn:
3.
Þvervigur a (â) er [ 5 4 ]. Hallatala â er h = 4/5. Af því leiðir að vigurinn sem um ræðir er [ 5x 4x ]. Lengd þess vigurs er rótin af 369 þ.e.
rót ( (4x)^2 + (5x)^2 ) = 3rót41 <=> rót( 41x^2) = 3rót41 <=> rót(x^2) = 3 <=> x= 3.
Vigurinn sem um ræðir sem er hornréttur á a er: [ 15 12 ]
6.
<A = 90° , <C = 90°
<ABD = 60° svo að <BDA er 180-90-60 = 30°.
Skv. reglu um rétthyrndan þríhyrning er |BA| = cos(<BDA) * |AD| <=> |BA| = 14 * cos(30) = 7*rótin af 3 (14 * rótin af 3 deilt með 2) = 12,12.
|BD| er því rótin af 14^2 +(7 rótin af 3)^2 = 14,42
<CBD er því asin(|CD| / |BD|) => asin(10/14,42) = 43,9°
<CDB er því 180-90-43,9 = 46,1°
7.
a) cos(x) = -4/5 <=> acos(-4/5) = x <=> x = 143,13°(ekki lausn) eða x = (360-143,13) = 216,86°
b) sin(x) = 1/3 <=> asin(1/3) = x <=> x = 19,47° eða x = (180 - 19,47) = 160,52°
8.
a) cos(X) = 0.4326 <=> acos(0.4329) = x <=> x = 64,36° eða x = (360-64,36) = 295,64° (eða -64,36°)
b) sin(x) = -0,4326 <=> asin(-0,4326) = x <=> x = -25,63° eða x = (180 - -25,63) = 205,63°
c) tan(x) = -1,4326 <=> atan(-1,4326) = x <=> x = -55,08° eða x = (180 + -55,08) = 124,91°
d) sin(x) = 0 <=> sin(0) = x <=> x= 0° eða x= 180°
e) cos(x) = -1,4326 <=> acos(-1,4326) = 0 <=> x = NaN því að útkoman úr cos(x) er fyrir utan einingahringinn (þar sem útkoman er -1 <= x <= 1 )
Sent: Lau 21. Apr 2007 00:32
af Tjobbi
Stærfræði er nú meiri steypan
Sent: Lau 21. Apr 2007 01:40
af CraZy
Ég hef alltaf hatað vigra
Sent: Lau 21. Apr 2007 09:00
af GuðjónR
Takk strákar, góð byrjun
4x0n...ég held að rökin þín séu rétt...
Revenant....djöfl....varstu snöggur að reikna þetta
Svo er bara að finna sér tíma um helgina og klára restina
Sent: Lau 21. Apr 2007 09:58
af Revenant
GuðjónR skrifaði:Takk strákar, góð byrjun
4x0n...ég held að rökin þín séu rétt...
Revenant....djöfl....varstu snöggur að reikna þetta
Svo er bara að finna sér tíma um helgina og klára restina
Hehe það var lítið, fínt að rifja þetta upp fyrir munnlega stúdentsprófið. Annars gleymdi ég að í 8. lið þarf að bæta við "+ n380° , n er stak í Z" við cos og sin en " + n180°, n er stak í Z" við tan.
Sent: Lau 21. Apr 2007 12:52
af Viktor
WTF
Sent: Lau 21. Apr 2007 16:02
af beatmaster
Takk, ég var búinn að gleyma af hverju ég þoldi ekki stærðfræði...
Sent: Lau 21. Apr 2007 16:06
af Mazi!
Viktor skrifaði:WTF
X2!
Sent: Lau 21. Apr 2007 16:08
af Alcatraz
Stærðfræði er bara eins og tungumál. Allt í lagi ef þú kannt þetta, algjört helvíti ef þú kannt þetta ekki.
Sent: Lau 21. Apr 2007 16:22
af CraZy
Mazi! skrifaði:Viktor skrifaði:WTF
X2!
Þetta kemur drengir..bíðið bara
Sent: Lau 21. Apr 2007 17:00
af ManiO
Alcatraz skrifaði:Stærðfræði er bara eins og tungumál. Allt í lagi ef þú kannt þetta, algjört helvíti ef þú kannt þetta ekki.
Fyrir utan það að það eru ekki neinar undantekningar í stærðfræði, annað en flest tungumál.
Sent: Lau 21. Apr 2007 17:33
af Alcatraz
Ég vill hafa hlutina einfalda
Sent: Lau 21. Apr 2007 20:32
af CendenZ
stærðfræði er 20 % skilningur, 10 % greind og 80 % æfing.
Sent: Sun 22. Apr 2007 03:51
af gnarr
CendenZ skrifaði:stærðfræði er 20 % skilningur, 10 % greind og 80 % æfing.
LOL! Eitthvað af þessu að klikka hjá þér?
Sent: Sun 22. Apr 2007 04:26
af urban
ok nú renndi ég aðeins yfir þessi verkefni og einnig yfir svörin sem að komu.
getiði sagt mér eitt
hvenar í ósköpunum komiði til með að nota þetta ?
Sent: Sun 22. Apr 2007 04:34
af ManiO
urban, ég er að nota þetta grimmt í náminu mínu.
Sent: Sun 22. Apr 2007 12:42
af Pandemic
Ég er nú bara í 203 en eitt sem mér finnst alveg gríðarlega asnalegt er að kennarar í mínum skóla "versló" hafa ekki leyfi til að kenna einfaldari stærðfræði og svona ákveðin trick sem hægt er að nota til að leysa ákveðin dæmi, síðan þegar ég kíki í einkatíma þá eru bara helmingi auðveldari leiðir til að gera hlutina.
Þessir kennarar verða að losna við það úr hausnum á sér að þeir séu bókin.
Sent: Sun 22. Apr 2007 14:27
af gnarr
urban- skrifaði:getiði sagt mér eitt
hvenar í ósköpunum komiði til með að nota þetta ?
Tildæmis þegar við erum að forrita tölvuleiki, í vísinda útreikning og í verkfræði.
Hægt að finna milljón og einn hlut til að nota þetta í.
Sent: Sun 22. Apr 2007 21:51
af GuðjónR
Koma svo strákar, leysa restina
Sent: Sun 22. Apr 2007 22:51
af Revenant
Meint lausn (ég er samt ekki alveg klár á 4. dæminu, held að þetta sé það sem verið er að spurja um).
2.
Vigur v = [ 4 -2 ] ( 4* [ 1 0 ] - 2* [ 0 1 ] )
Þvervigur v er því [ -(-2) 4 ] = [ 2 4 ].
4.
Vigurinn BC er [ (-4-3) (-7-5) ] = [ -7 -12 ]. Lengd |BC| er því rótin af (-7^2 + -14^2) = rótin af 245.
Vigur AC er [ (-4-x) (-7-y) ] = -1/4 [ -7 -12 ] <=> [ (-4-x) (-7-y) ] = [ 7/4 3 ] <=> x = -23/4 og y= -4
5.
a) Miðpunktur striks með endapunkta B=(6,1) og C=(2,-5) er M = ((6+2)/2 , (1-5)/2) => M=(4,-2)
b) Lengd miðlínunnar er |AM(lítið a)| = rótin af ((4--1)^2 + (-2-3)^2) = rótin af 50
c) Hallatala BC á að vera sú sama og AD. Hallatala BC er því (-5-1) / (2-6) = -6/-4 = 6/4. (ath ég stytti ekki)
Hallatala AD er sú sama => (3-y) / (-1-x) = 6/4 (vegna þess að mótlægar hliðar eru jafn langar).
Úr því fæst: y = -3 og x = -5
Sent: Sun 22. Apr 2007 23:03
af CraZy
GuðjónR skrifaði:Koma svo strákar, leysa restina
Áttu ekki að gera þetta sjálfur
Sent: Þri 24. Apr 2007 13:21
af Harvest
CendenZ skrifaði:stærðfræði er 20 % skilningur, 10 % greind og 80 % æfing.
Svooo rétt!
Sent: Þri 24. Apr 2007 13:22
af Harvest
Alcatraz skrifaði:Ég vill hafa hlutina einfalda
Af hverju skrifarðu þá ekki "vill" með 1x "l" ?