Síða 1 af 1
Hugver aftur í vatnstjóni?
Sent: Mið 18. Apr 2007 22:53
af gnarr
Ég var að koma af laugarveginum. Hálf gatan er á kafi í heitu vatni (var svo heitt sumstaðar að það var ekki hægt að setja hendina ofaní nema í örstuttann tíma) vegna sprunginnar heitavatnspípu, sem virðist einmit vera beint undir Hugver, allavega beint fyrir framan. :S
Ég veit einmit að Hugver lenti í vatnstjóni um áramótin.. ótrúleg óheppni sem að virðist elta þá ef búðin er aftur full af vatni.
Sent: Mið 18. Apr 2007 23:20
af gnarr
http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1265454
Innlent | mbl.is | 18.4.2007 | 22:06Sjóðandi heitt vatn fossar niður Laugaveg; einn fluttur á sjúkrahús með brunasár Sjóðandi heitt vatn fossar nú niður Vitastíg og Laugaveg í miðborg Reykjavíkur eftir að heitavatnsæð gaf sig nú rétt fyrir kl. 22, n.t.t. við Vitastíg 12. Að sögn lögreglu eru menn á leiðinn á staðinn og er verið að undirbúa lokun á Laugavegi. Vegfarendur gerðu lögreglu og slökkviliði viðvart. Einn maður hefur verið fluttur á slysadeild með minniháttar brunasár. Starfsmenn á vegum Orkuveitu Reykjavíkur vinna nú að því að stöðva vatnslekann.
Re: Hugver aftur í vatnstjóni?
Sent: Mið 18. Apr 2007 23:57
af ManiO
gnarr skrifaði:Hálfur gatan er á kafi
Þú fyrirgefur en ég gat einfaldlega ekki staðist að "quote"-a þetta.
Sent: Fim 19. Apr 2007 00:24
af gnarr
ég skrifaði fyrst "hálfur laugavegurinn" en ákvað að breyta því í gatan.. :p hehe
annars er það orðið ljóst. Hugver er í deep shit!
http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1265459
Innlent | mbl.is | 18.4.2007 | 22:55
Búið að skrúfa fyrir lekann
Búið er að skrúfa fyrir heitavatnsæð sem gaf sig rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu flæddi inn í kjallara verslunar við Vitastíg 12 er nú verið að bera þaðan út vörur.
Hugver ehf
Vitastíg 12
101 Rvk.
S: 562 0707
fax: 562 0706
Opið kl. 9-18 virka daga og 11-14 laugardaga
*edit*
Vó! tók eftir því að klukkan í þessarri frétt er bara kjaftæði! Ég skoðaði mbl.is mjög vel klukkan 23:20, eins og þið sjáið á póstinum mínum síðan áðan, og þá var þessi frétt sem "kom inn" klukkan 22:55 ekki inni. Hvaða bull er í gangi þarna?
Sent: Fim 19. Apr 2007 00:49
af Revenant
Sent: Fim 19. Apr 2007 00:50
af goldfinger
Djöfull vorkennir maður eigundunum, lenda í vatnstjóni 2x, þetta var eins og í gufubaði þarna inn í Hugver. En síðast þegar þeir lentu í vatnstjóni var þá líka hitavatnsleiðsla sem sprakk?
Sent: Fim 19. Apr 2007 09:56
af GuðjónR
Furðulegt ástand í bænum í gær, fyrst stórbruni svo þessi vatnsleki.
Allt er þegar þrennt er...hvað verður næst??
Varðandi Hugver þá er auðvitað ömurlegt að lenda í svona, en þeir ættu að fá skemmdirnar bættar að fullu.
Sent: Fim 19. Apr 2007 10:21
af Taxi
goldfinger skrifaði:Djöfull vorkennir maður eigundunum, lenda í vatnstjóni 2x, þetta var eins og í gufubaði þarna inn í Hugver. En síðast þegar þeir lentu í vatnstjóni var þá líka hitavatnsleiðsla sem sprakk?
Já,það sprakk hitavatnsrör inná lagernum þeirra þá.
Öllu nema nokkrum tölvukössum var hent þá.
Á milli þesara tjóna kom leki að þakinu í Hugver.
Ég held bara að það sé best fyrir Hugver að fara að flytja í annað húsnæði,
áður en tryggingarnar þeirra hækka verulega.
Sent: Fim 19. Apr 2007 10:38
af GuðjónR
Kannski er þetta bara málið í dag, hafa einn stóran kúnna sem kaupir upp lagerinn með vissu millibili.
Sent: Fim 19. Apr 2007 13:09
af daremo
GuðjónR skrifaði:Furðulegt ástand í bænum í gær, fyrst stórbruni svo þessi vatnsleki.
Ætli þetta sé tengt sumardeginum fyrsta?
Heitt vatn. Heitur eldur.. Heitt sumar í vændum?
Sent: Fim 19. Apr 2007 13:42
af GuðjónR
daremo skrifaði:Ætli þetta sé tengt sumardeginum fyrsta?
Heitt vatn. Heitur eldur.. Heitt sumar í vændum?
Það væri óskandi, ég fékk nóg af vatnsveðri í fyrra
Sent: Fim 19. Apr 2007 17:09
af gumol
Sent: Fim 19. Apr 2007 17:22
af Mazi!
gumol skrifaði:
Haha snilld, gerðir þú þetta ?
Sent: Fim 19. Apr 2007 18:53
af gumol
Nei, sá þetta á b2.is
Það voru líka SMS að ganga milli fólks í gær um hvað væri að gerast á Pravda. Hljómsveitin Sviðin Jörð að spila, burnparty, heitasti staðurinn í bænum o.s.frv. Sérstaklega tekið frama að staðurinn væri ekki reyklaus.
Sent: Fös 20. Apr 2007 01:02
af biggi1
gumol skrifaði:Nei, sá þetta á b2.is
Það voru líka SMS að ganga milli fólks í gær um hvað væri að gerast á Pravda. Hljómsveitin Sviðin Jörð að spila, burnparty, heitasti staðurinn í bænum o.s.frv. Sérstaklega tekið frama að staðurinn væri ekki reyklaus.
ég fékk svipað nema það var Dj. Firefighter..
Sent: Fös 20. Apr 2007 14:45
af Birkir
Látið ekki svona, Pravda er bara burn out..