Síða 1 af 1

Líklegt að DirectX 10 kom út fyrir XP

Sent: Fim 15. Mar 2007 15:56
af Fumbler
Hérna er smá frétt um þetta.Linkur
Dx10 var aðal sölu punkturinn á vista fyrir gamers, afhverju er microsoft að hugsa um að gefa út hugsanlega lite útgáfu af Dx10 fyrir Xp, jú vegna þess að það er enginn leikja framleiðandi sem vill fara út í það sjálfsmorð að framleiða leik sem er bara hægt að keyra á Vista.

Sent: Fim 15. Mar 2007 18:17
af Stebet
No can do og MS menn hafa farið út í ástæðurnar margoft. DirectX 10 er svo miklu meira en bara smá software update. Ef DirectX 10 yrði fært á XP þýðir það að það þarf að búa til alla skjádrivera fyrir XP upp á nýtt vegna þess að DirectX 10 krefst allskonar fítusa frá drivernum svo sem "context switching" og "virtual memory" fyrir skjáminnið.

Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að leikir supporti bæði DirectX 9 og 10 (sjáðu bara Crysis) þannig að þó að leikur supporti DirectX 10 þurfa þeir ekki að vera Vista Only vegna þess að þeir keyra þá bara á DirectX 9 á XP með einfaldari shaderum.

Sent: Fim 15. Mar 2007 20:05
af ÓmarSmith
og það er ekkert töff ;)

vilt ekkki spila Crysis nema með alla þessa nýju geðveiku fídusa í botni. annað er bara silly...thihi