Síða 1 af 1
Windows Vista RC2
Sent: Fim 09. Nóv 2006 00:48
af gumol
Hvernig er ykkur að líka við Vista RC2? Ég held þetta eigi eftir að verða geðveikt.
Fullt af nýjum fítusum, allt sem tengist myndum og videoum er orðið öðruvísi og grafíkin mjög flott (þótt þetta sé bara RC)
Sent: Fim 09. Nóv 2006 01:40
af Stebet
Ég ætti að vera kominn með RTMinn í hendurnar á föstudaginn eða um helgina. Skal láta ykkur vita þá
Nú þarf maður bara að spá í uppfærslu til að fullkomna þetta allt saman, 3Ghz P4 og Geforce 6800 GT er farið að líta illa út núna þegar DX10 kortin eru komin.
En annars að topicinu, ég er búinn að keyra Vista beturnar hérna heima frá því í vor (var beta tester í tech betunni). Þá fyrst fóru að koma build sem voru nógu stabíl og með eitthvað af driverum svo ég gæti keyrt það dagsdaglega og ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég vil ekki fara aftur í XP núna. Það er of mikið af nýjum og þægilegum hlutum sem ég vil ekki missa.
Stefnir allt í að þetta verði fyrsta Windowsið sem ég kaupi eitt og sér
Sent: Fim 09. Nóv 2006 02:50
af dos
Hvenær getur maður farið að versla sér eintak? Og hvað ætli Enterprise útgáfan eigi eftir að kosta?
Annars er þetta Aero dæmi helvíti flott, Og virkar allt smooth, minnsta kosti svona ný uppsett.
Sent: Fim 09. Nóv 2006 09:37
af ManiO
dos skrifaði:Hvenær getur maður farið að versla sér eintak? Og hvað ætli Enterprise útgáfan eigi eftir að kosta?
Annars er þetta Aero dæmi helvíti flott, Og virkar allt smooth, minnsta kosti svona ný uppsett.
Er Það ekki Ultimate útgáfan sem maður á að fá sér?
Sent: Fim 09. Nóv 2006 10:08
af Stebet
Júbb.. Ultimate er stærsta útgáfan og inniheldur allt. Ég myndi giska á að hún kosti dágóðann pening líka.
Vista kemur í verslanir 30. jan held ég.
Sent: Fim 09. Nóv 2006 10:12
af ManiO
Stebet skrifaði:Júbb.. Ultimate er stærsta útgáfan og inniheldur allt. Ég myndi giska á að hún kosti dágóðann pening líka.
Vista kemur í verslanir 30. jan held ég.
Samkvæmt mbl.is alla vega.
Sent: Fim 09. Nóv 2006 10:59
af Stebet
Meiri details um helstu útgáfurnar.
Sent: Fim 09. Nóv 2006 12:35
af dos
4x0n skrifaði:dos skrifaði:Hvenær getur maður farið að versla sér eintak? Og hvað ætli Enterprise útgáfan eigi eftir að kosta?
Annars er þetta Aero dæmi helvíti flott, Og virkar allt smooth, minnsta kosti svona ný uppsett.
Er Það ekki Ultimate útgáfan sem maður á að fá sér?
Jú auðvitað er það Ultimate, ruglaðist aðeins á Win 2003
Sent: Fim 09. Nóv 2006 15:02
af gumol
Home Basic uppfærsla kostar $99,95 (6.809 kr.) og $199 (13.556 kr.) nýr.
Home Premium uppfærsla kostar $159 (10.831 kr.) en $239 (16.280 kr.) nýr.
Home Premium er með HDTV stuðning*, DVD-mynddiska forrit, auka leiki, fartölvu-hugbúnaður (mobile computing), töflutölvu-hugbúnað, Media Center og fullri útgáfu af Aero þemanu.
Ultimate uppfærsla á að kosta $259 (17.643 kr.) og full útgáfa $399 (27.180 kr.) Efast um að maður kaupi þessa útgáfu, alltof dýr. Hún inniheldur hinsvegar allt.
Öll verðin eru án VSK, eitthvað segir mér samt að þetta eigi eftir að kosta meira en 24,5% meira á Íslandi en út. Það kemur bara í ljós.
* Held það sé háð vissum skilyrðum, eitthvað ömurlegt DRM kjaftæði.
Sent: Fim 09. Nóv 2006 15:27
af ManiO
gumol skrifaði:Home Basic uppfærsla kostar $99,95 (6.809 kr.) og $199 (13.556 kr.) nýr.
Home Premium uppfærsla kostar $159 (10.831 kr.) en $239 (16.280 kr.) nýr.
Home Premium er með HDTV stuðning*, DVD-mynddiska forrit, auka leiki, fartölvu-hugbúnaður (mobile computing), töflutölvu-hugbúnað, Media Center og fullri útgáfu af Aero þemanu.
Ultimate uppfærsla á að kosta $259 (17.643 kr.) og full útgáfa $399 (27.180 kr.) Efast um að maður kaupi þessa útgáfu, alltof dýr. Hún inniheldur hinsvegar allt.
Öll verðin eru án VSK, eitthvað segir mér samt að þetta eigi eftir að kosta meira en 24,5% meira á Íslandi en út. Það kemur bara í ljós.
* Held það sé háð vissum skilyrðum, eitthvað ömurlegt DRM kjaftæði.
Maður kaupir þetta í gegnum háskólann.
Sent: Fim 09. Nóv 2006 18:45
af DoRi-
ég mun ekki kaupa vista fyrr en ég er kominn með dx10 kort, og ekki er stutt í það