Síða 1 af 1
lyklaborð eða takkaborð
Sent: Lau 08. Apr 2006 12:32
af Skoop
nú vitum við allir að það eru engir lyklar á lyklaborðum , en samt virðist það orð vera meira notað en takkaborð af einhverjum ástæðum sennilega útaf beinni þýðingu úr enskunni og ætla ég því að gera hér lauslega könnun til að svala forvitni minni.
Sent: Lau 08. Apr 2006 12:36
af CraZy
lyklaborð, vissi ekki einusinni að fólk sagði "takkaborð"
Sent: Lau 08. Apr 2006 12:39
af Skoop
CraZy skrifaði:lyklaborð, vissi ekki einusinni að fólk sagði "takkaborð"
en þetta eru takkar ekki lyklar þannig að takkaborð finnst mér vera mun réttara
Sent: Lau 08. Apr 2006 12:41
af CraZy
jújú ætli það ekki en það hljómar bara svo asnalega
Sent: Lau 08. Apr 2006 17:04
af Snorrmund
ÉG nota alltaf lyklaborð.. finnst einfaldlega heimskulegt að nota takkaborð nota samt alltaf takkaborð ef ég er að tala um t.d. vasareikna en lyklaborð á við um tölvur..
Sent: Lau 08. Apr 2006 19:05
af Blackened
Bíddu.. Takkaborð? frá hvaða plánetu er það?
Keyboard > Lyklaborð.. þetta liggur ljóst fyrir..
...Eða það finnst mér allavega
Sent: Sun 09. Apr 2006 00:21
af gnarr
hefuru aldrei heyrt um að "slá á enter lykilinn"?
Sent: Sun 09. Apr 2006 00:36
af Dagur
þetta er ekki borð heldur
Sent: Sun 09. Apr 2006 00:47
af Rusty
Notaði alltaf takkaborð þegar ég var yngri, en þar sem maður heyrði alltaf lyklaborð frá fjölgandi manneskjum, þá fór maður að nota það.
Sent: Þri 11. Apr 2006 14:27
af Gúrú
Skoop skrifaði:CraZy skrifaði:lyklaborð, vissi ekki einusinni að fólk sagði "takkaborð"
en þetta eru takkar ekki lyklar þannig að takkaborð finnst mér vera mun réttara
Það eru Lyklar á lyklaborði, ekki eins og lyklar sem við notum á lása, orðið er Lyklar á íslensku, Svo má nefna að orðið gildur getur þýtt sver eða feitur, og líka að vera "Gildur meðlimur".....Og lög geta þýtt eins og lög sem einhver syngur eða Lög eins og Útivistarlög....
Sent: Mið 12. Apr 2006 19:47
af Birkir
And your point being?
En já, orðið mun vera lyklaborð, einfaldlega því það er rétt en ekki hitt.