Síða 1 af 1

slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Þri 17. Feb 2026 09:27
af Vaski
Núna er komin nýr samfélagsmiðill sem er bara fyrir íslendinga, hann heitir slapp.

Hvernig líst vökturum á þetta?

Ég er aðeins efins að ég muni nota samfélagsmiðil sem er bara með íslensku efni, en á móti má náttúrulega segja að ég komi inná vaktina daglega þannig að kannski er ég í ruglinu með þessa skoðun mína :)


sjá frétt;
https://www.visir.is/g/20262844291d/nyr ... islendinga

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Þri 17. Feb 2026 09:38
af Pandemic
Allt gamalt er nýtt. Er þetta nýja Blendin?

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Þri 17. Feb 2026 10:04
af Njall_L
Mér þykir framtakið bæði gott og áhugavert.

Hinsvegar þykir mér mjög varhugavert að skrá mig inn með rafrænum skilríkum og þannig tengja mína persónu með órjúfanlegum hætti við samfélagsmiðil. Miðað við að í Appstore komi fram "Engar auglýsingar: Við trúum á hreina upplifun. Það eru engar auglýsingar á Slapp", þá geri ég ráð fyrir að varan hjá þeim sé að safna notendaupplýsingum til að selja áfram eða nýta með öðrum hætti.

Fram að því að það kemur betur fram hver varan er eða hvert buisness módelið er þá sé ég ekki fyrir mér að skrá mig.

Það er þó fínt að taka fram að ef varan er söfnun á persónupplýsingum (eins og Facebook og aðrir meginstraumsmiðlar) þá set ég mig ekkert á móti því, vil bara að það sé mjög opið og uppi á borðum áður en ég skrái mig.

Sjá lýsingu í AppStore
SLAPP-AppStore.png
SLAPP-AppStore.png (74.99 KiB) Skoðað 1708 sinnum

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Þri 17. Feb 2026 10:48
af Klemmi
Mig langar bara að allir fari aftur á Hugi.is, hápunktur samfélagsmiðla.
Þurfa þeir ekki bara að skella í instant message ofan á hann og allir sáttir?

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Þri 17. Feb 2026 14:23
af falcon1
Þetta er einfalt, ég mun aldrei nota miðil þar sem ég verð að nota rafræn skilríki til að fá aðgang.

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Þri 17. Feb 2026 15:23
af rapport
Ég skil pælinguna en treysti ekki útfærlsunni

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Þri 17. Feb 2026 17:27
af ABss
Mögulega flott dæmi, vert að skoða þetta.

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Þri 17. Feb 2026 17:35
af Dúlli
Uff nei takk, maður eyðir nægilega miklum tíma á öðrum miðlum og hvað þá að bæta einu í viðbót.

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Mið 18. Feb 2026 20:59
af gRIMwORLD
Samkvæmt persónuverndarstefnunni þeirra þá safna þeir öllum upplýsingum og samtölum, þar á meðal einkaskilaboðum og gætu deilt þeim með hýsingaraðilum til að vinna fyrir þá (bundnir trúnaði)

Þetta er kannski ekki orðað nákvæmlega svona en í lagalegum skilningi þá er ekkert sem hindrar slíkt miðað við stefnuna þeirra.

Þannig að nei takk :)

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Fim 19. Feb 2026 03:33
af DJOli
gRIMwORLD skrifaði:Samkvæmt persónuverndarstefnunni þeirra þá safna þeir öllum upplýsingum og samtölum, þar á meðal einkaskilaboðum og gætu deilt þeim með hýsingaraðilum til að vinna fyrir þá (bundnir trúnaði)

Þetta er kannski ekki orðað nákvæmlega svona en í lagalegum skilningi þá er ekkert sem hindrar slíkt miðað við stefnuna þeirra.

Þannig að nei takk :)


Ef þetta stemmir er síðan á skjön við GDPR og verður því ekki lengi í loftinu.

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Fim 19. Feb 2026 07:48
af rapport
DJOli skrifaði:
gRIMwORLD skrifaði:Samkvæmt persónuverndarstefnunni þeirra þá safna þeir öllum upplýsingum og samtölum, þar á meðal einkaskilaboðum og gætu deilt þeim með hýsingaraðilum til að vinna fyrir þá (bundnir trúnaði)

Þetta er kannski ekki orðað nákvæmlega svona en í lagalegum skilningi þá er ekkert sem hindrar slíkt miðað við stefnuna þeirra.

Þannig að nei takk :)


Ef þetta stemmir er síðan á skjön við GDPR og verður því ekki lengi í loftinu.


Þetta hljómar eins og standard GDPR klásúla sem segir "við erum með undirvinnsluaðila sem eru bundnir trúnaði".

Í dag er enginn sem gerir allt sjálfur = get ekki ímyndað mér annað en að þessi klásúla sé einnig í skilmálum með hverju einasta appi sem þú notar.

En ég er samt eitthvað efins með útfærsluna á þessu.

Það er réttur til að gleymast = það verður að vera hægt að eyða aðgangi...

Hvað gerist svo ef ég vil opna annan aðgang eftir að hafa eytt mínum fyrri?

Appið má ekki tengja nýja aðganginn við þann gamla, það væri líklega lögbrot gegn "réttinum til að gleymast"...

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Fim 19. Feb 2026 09:24
af GuðjónR
Þetta kostar helling, þróun kerfis, búa til app og viðhalda því, App Store og Google Store, netþjónn og rafræn auðkenning svo eitthvað sé nefnt. Að bjóða upp á rafræna auðkenningu er ekki ódýrt. Hvaðan koma tekjurnar ef það eru engar auglýsingar? :-k

Eitt ehf sem bendir á annað ehf í kringum þetta.

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Fim 19. Feb 2026 10:05
af Langeygður
Þetta er þá bara Slepp, allavegana ef fjölskildan lætur það vera.

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Fim 19. Feb 2026 19:36
af Omerta
Klemmi skrifaði:Mig langar bara að allir fari aftur á Hugi.is, hápunktur samfélagsmiðla.
Þurfa þeir ekki bara að skella í instant message ofan á hann og allir sáttir?


Nota bene, þú notaðir kennitöluna þína á hugi.is var það ekki? Minnir að það hafi verið krafa fyrir nýja notendur.

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Fim 19. Feb 2026 20:03
af Langeygður
Var að kíkja á huga.is , síðasta greinin þar 4ára og 8 mánaða.

Re: slapp - Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Ís­lendinga

Sent: Fim 19. Feb 2026 21:24
af Pandemic
Er þetta ekki bara klassískt hugarfar sem sést hér inni? Þið gefið Meta allar upplýsingar um ykkur staðsetningu, áhugamál, einkasamtöl, myndir og vinatengsl og blikkið ekki auga. En um leið og einhver Íslendingur reynir að koma einhverju á koppinn og biður um rafræn skilríki (sem veita í raun ekkert annað en nafn og kennitölu), þá er það allt í einu talið vera stuldur á persónuupplýsingum.

Hvernig ætlum við að komast út úr þessu bandaríska kerfi ef við treystum aldrei evrópskum frumkvöðlum, þrátt fyrir mun strangara laga- og eftirlitsumhverfi?