Síða 1 af 1

Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Mið 11. Feb 2026 17:09
af kizi86
Góða kvöldið Vaktarar, einföld spurning, er einhver síða á Íslandi sem er með tölur eða gröf yfir verðlagsþróun tölvuíhluta síðustu misserin? Það væri andskoti áhugavert að sjá

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Mið 11. Feb 2026 18:10
af Cepheuz
Hérna er gott dæmi á HDD markaðnum.

https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/Au ... 168.action

Ég náði að kaupa einn svona disk á 59.990kr þann 2. janúar.

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Fim 12. Feb 2026 08:06
af johnbig
Cepheuz skrifaði:Hérna er gott dæmi á HDD markaðnum.

https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/Au ... 168.action

Ég náði að kaupa einn svona disk á 59.990kr þann 2. janúar.



ég náði að kaupa Seagate ironwolf pro 16tb á 59.990kr í november

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Fim 12. Feb 2026 10:27
af rapport
https://web.archive.org/web/*/vaktin.is

Þetta er allt loggað... bara spurning hvort/hvernig sé hentugast að birta þetta.

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Fim 12. Feb 2026 11:31
af b3nni
Núna er ég ekki í rekstri en gott er að muna að setja launahækkanir og aðrar hækkanir hluta erlendis til samanburðar ef við ætlum að fara grilla íslenska markaðinn

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Fim 12. Feb 2026 12:18
af rostungurinn77
b3nni skrifaði:Núna er ég ekki í rekstri en gott er að muna að setja launahækkanir og aðrar hækkanir hluta erlendis til samanburðar ef við ætlum að fara grilla íslenska markaðinn


Nei.

Hækkanirnar tengjast aukinni eftirspurn vegna gervigreindar ekki íslenskum kjarasamningum.

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Fim 12. Feb 2026 12:48
af b3nni
rostungurinn77 skrifaði:
b3nni skrifaði:Núna er ég ekki í rekstri en gott er að muna að setja launahækkanir og aðrar hækkanir hluta erlendis til samanburðar ef við ætlum að fara grilla íslenska markaðinn


Nei.

Hækkanirnar tengjast aukinni eftirspurn vegna gervigreindar ekki íslenskum kjarasamningum.

Augljóslega, ég tók það fram líka.

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Fim 12. Feb 2026 12:55
af ejm
Talandi um hækkanir, það er eitthvað skrítið við verðin á skjákortum frá Tölvulistanum á vaktinni - eins og AMD línan sé með gamlan afslátt inni sem kemur ekki fram þegar maður smellir á verðið.
Annað - það eru ekki lengur neinir skjáir undir flokknum "skjákort og skjáir".

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Fim 12. Feb 2026 13:35
af Klemmi
Get alveg sagt þér að hækkanir innanlands hafa enn sem komið er verið minni en erlendis.

Verslanir hér heima virðast ekki hafa hækkað verðið á "gömlum lager" fyrr en hann kláraðist, sem þýðir að verðin "lagga" í einhverjar vikur eða mánuði.

Þeim sem vantar skjákort, mæli með að næla í þau á "gömlu" verðunum, það er allt farið á flug úti og er byrjað að skila sér hingað heim, en ekki af fullum krafti.

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Mið 18. Feb 2026 20:29
af GuðjónR
Vonum að þetta raungerist ekki...

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Mið 18. Feb 2026 20:49
af gRIMwORLD
Ég hefði meiri áhyggjur af yfirvofandi NAND skorti á almenn consumer tæki sem öll nota NAND á einn eða annan hátt. Það á eftir að koma í ljós með árinu en 2027 gæti verið mjög spes.

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Mið 18. Feb 2026 21:29
af Moldvarpan
Klemmi skrifaði:Get alveg sagt þér að hækkanir innanlands hafa enn sem komið er verið minni en erlendis.

Verslanir hér heima virðast ekki hafa hækkað verðið á "gömlum lager" fyrr en hann kláraðist, sem þýðir að verðin "lagga" í einhverjar vikur eða mánuði.

Þeim sem vantar skjákort, mæli með að næla í þau á "gömlu" verðunum, það er allt farið á flug úti og er byrjað að skila sér hingað heim, en ekki af fullum krafti.


Alveg klárlega. Ég er rosalega ánægður með hvað þið reynið að halda verðunum eins góðum, eins lengi og hægt er.

Ég held að verð á flestu eigi eftir að hækka og verður líklega óaðgengilegt í einhvern tíma. Minni, SSD, HDD, GPU, CPU, er allt í uppleið.
Kopar búinn að hækka þvílíkt mikið, sem þýðir að allt hækkar í verði, sérstaklega kælingar með oft mikinn kopar.

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Mið 18. Feb 2026 21:54
af GuðjónR
Já búðirnar hérna heima eru að standa sig mjög vel í þessu ömurlegu ástandi. Á endanum ná hækkanirnar hingað óhjákvæmilega. Ef þið eruð að plana PC build eða breytingar þá er ekki eftir neinu að bíða. Hika er sama og að tapa.

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Mið 18. Feb 2026 22:30
af Henjo
Meh, tölvan sem ég byggði fyrir sex árum og átti að duga í fimm ár þarf að duga í svona fjögur ár í viðbót. Sjáumst hinumegin við þennan brennandi ruslahaug sem AI búbblan er.

Re: Síða yfir verðlagsþróun tölvuíhluta á Íslandi?

Sent: Fim 19. Feb 2026 11:38
af andrith
Er búinn að vera með gæluverkefni í nokkur ár þar sem ég er að scrape-a verð á öllum vörum í íslenskum vefverslunum
Ekki alveg fullkomið eins og er, en ég er með uppfærslu á kantinum þar sem ég er búinn að bæta við þó nokkrum verslunum. Í þeirri uppfærslu safna ég líka fleiri upplýsingum eins og flokk vara og eigindi (x GB RAM til dæmis)
Planið var síðan alltaf að bjóða stjórnendum hér til að nota þetta fyrir vaktina. Áhugasamir geta skoðað á https://prices.geimvera.com